Vísir - 29.07.1975, Side 3

Vísir - 29.07.1975, Side 3
Vísir. Þriðjudagur 29. júli 1975. 3 Hornbjargs viti: Ekkert einmanalegt þrátt fyrir ís og þoku ,Við sjáum bara ishraflið, en in hið bezta. Langt er frá þvi, að ekkert á aðaiisinn,” sagði þarna sé einmanalegt. Tveir Elisabet Þorgeirsdóttir, tvitug strákar, 11 og 12 ára, eru til stúdina og ráðskona Jóhanns snúninga og 80—90 ferðamenn Péturssonar i Hornbjargsvita, hafa komið við i vitanum i sum- er við röbbúðum við hana i gaer. ar og fengið þar kaffisopa og sumir gist. Er þetta bæði inn- Það var 2 gráðu hiti og mikil lend og erlent bakpokafólk, sem þoka hjá þeim þarna við Horn. þarna kemur að skoða náttúr- Von var á norðlægri átt, svo að una,en Elisabet sagði, aðþarna jafnvel var búizt við, að isinn væri bæði afar sérkennilegt og þokaðist enn nær landi. fallegt. Ekkertsér á gróðrinum, Elisabet er búin að vera ráðs- þótt vetrarlegt sé þarna vissu- kona i 1 1/2 mánuð og likar vist- lega i augnablikinu. ísinn bráðnar ótrúlega fljótt — þrátt fyrir sólarleysi og kulda ,,Ég minnist ekki sumardaga sem þess- ara i áratugi,” sagði Guðmundur Jónsson, annar bóndinn i Mun- aðarnesi i Árneshreppi, Strandasýslu, er við röbbuðum við hann i gær en Munaðarnes er einn af nyrztu bæium i byggð. Hjá þeim þarna norður frá er isinn uppi við land, leiðinda- kuldi og rigning. Munaðarnes er tvibýli og búa þar 12 manns að jafnaði Nú þegar spretta er orð- in góð, eftir mikla þurrka i vor, svo að sum vatnsból sveitunga þornuðu, gerir hann ekki annað en rigna að sögn Guðmundar. Þeir i Munaðarnesi hafa um 200 ær og 3 kýr svona til að hafa mjólk fyrir sig. Þá var grásleppuveiðin ágæt i vor og 20-30 selkópar væru skotnir. Guðmundur sagði, að það hefði verið óvenjumikill reka- viður i ár. Mest af honum er rifið niður og sagað i girðingar- staura. Nú stendur til, að sveitin fái sjónvarp. Tveggja km kapall er kominn i þessu skyni, en enginn mannskapur hefur enn sézt til að leggja hann. Þrátt fyrir kuldann og sólar- leysið bráðnar isinn ótrúlega fljótt og menn eru bjartsýnir á, að þessi óboðni gestur hverfi hið skjótasta. -EVI- Beri maðurinn ekki í Háskólanum í frétt Visis um bera manninn á Hverfisgötunni i gær var sagt, að hann stundaði nám við Háskól- ann. Það var á misskilningi byggt, það var lögregluþjónninn, sem rétti honum njóiabiaðið, sem stundar nám í guðfræði við Há- skólann. Vel klæddir háskóla- neméndur við Hverfisgötu, sem kunna að hafa haft af þessu óþæg- indi, eru beðnir velvirðingar. —ÓT HVER A KISA LITLA? Hver hefur tapað þessum á- gæta ketti? Hann fannst á horninu á Suðurlandsbraut og Kringlumýrarbraut i gærdag. Þeir, sem telja sig kannast við gripinn, hafi samband við Óskar Einarsson, sem vinnur i Sindra. íslenzkir Mexikanar og Spónverjar nema reiðlist í Kópavogi ,,Börnunum þykir góð tilbreyting að kom- ast i islenzka veðráttu enda hitinn i Mexikó 30 gráður árið um kring”, sagði Erna Geirdal, sem búsett hefur verið um árabil i Mexikó. Hún á 4 börn, sem dvelja hér með henni i sumar. Ekkert þeirra talar islenzku, en öll bera þau islenzk nöfn. Við hittum Ernu að máli við reiðskóla þann, sem hesta- mannafélagið Gustur i Kópavogi rekur. Skól- inn hefur aðstöðu i hesthúsaþyrpingu fyrir ofan Fifuhvamminn. Þrjú af börnum Ernu eru á námskeiði i reiðlist, en yngsti sonurinn Carlos Atli, sem aðeins er 4 ára, þykir of ungur i skól- ann. Fjölskyldan býr i Acapulco 200 þúsund manna borg við Kyrrahafið. ,,Ég spái þvi, að það verði næsti staðurinn sem verður i tizku að heimsækja”, sagði Erna og gat þess, að reyndar væru ferðamenn famir að streyma að. í Mexikó er töluð spænska eingöngu. En Erna var svo heppin að kunna það mál, þegar hún fluttist til landsins fyrir meira en áratug. Það mál notar hún við börnin, sem eiga i svo- litlum erfiðleikum með að gera sig skiljanleg á íslandi. Helzt hafa þau getað talað við börn listmálarans Baltasar, sem sækja reiðskólann. Baltasar yngri, sem er 9 ára og er reyndar nýkominn frá Barcelona, þannig að hann er i góðri þjálfun. Erna sagðist ekki geta tekið neitt eitt atriði út úr mexikönsku þjóðlifi og sagt, að það væri öðruvisi en á tslandi: Hver einasti hlutur væri þar svo frábrugðinn islenzkum, að ómögulegt væri að fara að gera upp á milli einstakra þátta. Þó gat hún þess, að til dæmis kaþólska trúin setti afar sterkan svip á allt lif i Mexikó og uppeldi bama væri þar allt öðru visi en hér. Hún sagði, að börnunum þætti stórkostlegt að vera hér, þar sem þau fengju að vera ein úti oghægt væri að hjóla að vild, hvar sem væri. Erna sagði, að veðurfar væri mjög frábrugðið fyrir utan hita- mismuninn. 1 Mexikó væri til dæmis mjög mikil úrkoma á sumrin og væri það aðalástæðan fyrir þvi, að Mexikanar færu úr landi um sumarmánuðina. Sjálf kýs Erna að fara til tslands og i fyrrasumar dvaldi hún einnig hér með börnin. Húsakynni og viðurværi fólks IMexikósagðihún að væri mjög frábrugðið þvi, sem er i Norður Evrópu. Til dæmis mætti segja, að hugtakið „brýnustu nauð- þurftir” væri ekki það sama i löndunum. Mexikani getur legið undir berum himni og nærzt á ávöxtum allt árið. Hann þarf þvi ekki að svelta, enda þótt hann sé vita auralaus. Stéttamismun sagði Erna vera mun meiri en á tslandi, en hins vegar væri kannski erfið- ara að skilgreina fátækt i heitum löndum en köldum. -B.A. Mikið þarf að undirbúa, áður en hægt er að þeysa af stað, og ekki má mikið út af bera með svona óvana hestamenu, til að þeir detti af baki. Krakkarnir eru þó hinir keikustu og láta aliar hugsanir um óvænt slys lönd og leið.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.