Vísir


Vísir - 29.07.1975, Qupperneq 4

Vísir - 29.07.1975, Qupperneq 4
i4 Vísir. Þriðjudagur 29. júli 1975. STYRKIR til háskólanáms í Grikklandi Grisk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau bjóði fram i löndum sem aðild eiga að Evrópu- ráðinu fimm styrki til háskólanáms i Grikklandi háskólaárið 1976—77. — Ekki er vitað fyrirfram hvort einhver þessara styrkja muni koma i hlut islendinga. — Styrkir þessir eru eingöngu ætlaðir til framhaldsnáms i griskri tungu og sögu og eru veittir til 1—3 ára námsdvalar. Styrk- fjárhæðin er 5.000 drökmur á mánuði, auk ferðakostnaðar til og frá Grikklandi. Umsækjendur skulu hafa lokið háskóla- prófi áður en styrktimabil hefst. Umsóknir um styrki þessa, ásamt stað- festum afritum prófskirteina og meðmæl- um skulu sendar menntamálaráðuneyt- inu, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 1. september nk. — Sérstök umsóknareyðu- blöð fást i ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 24. júli 1975. ^fréttiniar VISIR Laus staða Við Bændaskólann á Hvanneyri er laus til umsóknar staða kennara við bændadeild og búvisindadeild Bændaskólans, með fóðurfræði og lifeðlisfræði sem aðal- kennslugreinar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir, með upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu sendar landbúnaðar- ráðuneytinu fyrir 24. ágúst 1975. Landbúnaðarráðuneytið, 28. júlí 1975. 190 skátar fóru i fyrradag til Noregs á Nordjamb, 14. alheimsmót drengjaskáta í Lillehammer „Nú skundum við á skátamót..." ,,Nú skundum við á skátamót.....”. Svona er byrjunin á einum skátasöngvanna, og án efa hefur þessi laglina komiö upp i hugann hjá einhverjum af þeim 190 skátum, sem á sunnu- daginn söfnuðust saman við farþegaaf- greiðslu Loftleiða. bessi stóri hópur var nefnilega að leggja upp til Noregs. en þar hefst á miðvikudaginn 14. alheimsmót drengja- skáta, jamboree. Nordjamb, en svo er mótið kallað, er haldið á vegum Norðurlandanna fimm, Dan- merkur, Sviþjóðar, Noregs, Finnlands og Islands. Rammi mótsins er kjörorðið „Fimm fingur — ein hönd”. og á að vera tákn um bræðralag skáta um heim allan. Einnig má lita á kjörorðið sem tákn þeirrar nor- rænu samvinnu, sem kemur fram i þvi samstarfi, sem lýtur að þvi að halda mót sem þetta. Þríþœtt mót „Við litum á Nordjamb sem mót i þrem þáttum”, sagði Bergur Jónsson, er á sæti i kynningarnefnd mótsins. ,,I fyrsta lagi er mótið sjálft, i öðru lagi alþjóðaráðstefna drengja- skáta, sem hefst strax að mót- inu loknu i Kaupmannahöfn, og siðast en ekki sizt gesta- heimsóknir skáta hvaðanæva úr heiminum á einkaheimili á Norðurlöndunum fyrir og eftir mótið. Má þar benda á hóp skozkra skáta, sem dvalizt hafa hér undanfarna daga.” ,,Það má segja, að við förum i heimsókn fyrir og eftir mótið”, sagði Rúnar Brynjólfsson frá Hafnarfirði, einn af fararstjór- um islenzku þátttakendanna á Nordjamb. „Við leggjum upp frá Reykjavik á sunnudagseftir- miðdaginn og fljúgum til Osló. Þar tekur einn nágrannabæj- anna við okkur en það er Bær- um, vinabær Hafnarfjarðar i Noregi. Þar gistum við um nótt- ina, en förum i skoðunarferð um Osló, áður en við leggjum upp i hópferðabilum til Lillehammer, þar sem mótið er haldið. Eftir mótið, þann 7. og 8. ágúst, fara islenzku þátttakend- urnir i tveimur hópum yfir til Sviþjóðar, þar sem þeir skipta sér niður á 5 bæi, en þar verímr dvalizt á einkaheimilum i sex daga. Heim koma siðan flestir um Kaupmannahöfn 16. og 17. ágúst”, sagði Rúnar að lokurn. Fararstjórar islenzku þátt- takendanna eru auk Rúnars, þeir Hörður Zophaniasson frá Hafnarfirði, sem er aðalfarar- stjóri, óskar Pétursson, Reykjavik, og Lúðvik Jónsson, Keflavik. r I mörg horn að líta Það verður mikið um að vera þessa tiu daga, sem mótið stendur yfir. Alls verða um 18 þúsund skátar á mótinu, 15 þús- und almennir þátttakendur frá 95 þjóðum, en 1600 dróttskátar frá Norðurlöndunum i sérstök- um vinnubúðum og rúmlega 1000 i yfirstjórn og fyrirliðar. Islendingar taka virkan þátt i þvi að halda þetta mót. Héðan eru um 160 skátar i yfirstjórn mótsins og i starfsmannabúð- um. íslendingar standa fyrir einni af tiu tjaldbúðum mótsins, Heklu og er Arnlaugur Guð- mundsson tjaldbúðastjóri. —JR Heimsókn fyrir og eftir mót

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.