Vísir - 29.07.1975, Síða 7

Vísir - 29.07.1975, Síða 7
Visir. Þriöjudagur 29. júli 1975. 7 Hver er sann- leikurinn um konur Sovét- ríkjannq? „Veikara kynið” er miður vinsælt orð i Sovétrikjunum. Þar veit fólkið litið um, að á Vesturlöndum er gefið undir fótinn hug- myndum konunnar um, að hún sé eitthvað ,,minni máttar”. Tina Asatiani, sem er doktor I eðlisfræöi og stæröfræöi, er fyrir stofnun, sem annast eölisfræöirannsóknir. Hún er þekkt meðal kollega sinna um allan heim. Tina uppgötvaöi eitt af frumefnunum, sem borizf hafa til okkar utan úr geimnum. Þessi uppgötvun leiddi til þess aö henni voru veitt Leninverðlaunin, æöstu verölaun, sem veitt eru í Sovétríkjunum. Konur i Sovétrikjunum starfa i yfirgnæfandi meirihluta utan heimilis. Alls munu það vera 92,5%, sem þiggja laun fyrir aðra vinnu en heimilisstörf. Þær ganga að mestu til sömu starfa og karlmenn og hef- ur viða verið rómað, hversu mjög þær standi jafn- fætis karlmönnum. 190 fag- greinar af 1165 eru ekki taldar aðgengilegar fyrir konur og þvi meinaðar þeim af heilsu- farsástæðum, vegna erfiðis o.s.frv. i hvaða greinar veljast konurnar helzt? Flestar þeirra vinna við störf, sem ekki krefjast mikillar menntunar. í landbúnaði starfa þær á samyrkjubúum að likam- legri erfiðisvinnu. Hins vegar mun fátitt, að konur séu gerðar að bústjórum. í iðnaði vegnar konunum öllu betur en i landbúnaði, en þó virðist sem þeim séu ekki búin sömu skilyrði til að komast áfram og karlmönnum. Þær konur, sem hlotið hafa háskólamenntun, fara mjög mikið i greinar, sem á Vestur- löndum eru i miklum meirihiuta „fög karlmanna”. Þrir af hverjum fjórum læknum Sovét- rikjanna eru konur og aðeins þriðji hver þjóðhagfræðingur er karlmaður. 40% allra verkfræðinga og kennara eru konur. Litil þátttaka i stjórn- ináluin Konurnar eru daufar til þátt- töku i stjórnmálum, lika þær, sem hlotið hafa langa skóla- göngu. Aðeins fimmtungur Kommúnistaflokksins eru kven- menn. t æðsta ráði Sovét- rikjanna hefur engin kona setið frá 1972 samkvæmt vestrænum heimildum. Fréttaþjónusta Novosti hermir hins vegar, að 1/3 af meðlimum þess séu konur. Sinna sinum heimilis- störfum eftir sem áður Það kann að skýra lélega þátttöku i stjórnmálum, að flestar konurnar koma að öllu ógerðu heima fyrir, er þær hafa lokið sinum 8-10 stunda vinnu- degi. Gefur að skilja, að kona, sem unnið hefur annaðhvort i skipasmiðastöð eða við brúar- smiði, er orðin allþreytt á kvöldin. Það eru ekki nægir peningar til að greiða fyrir heimilishjálp og sennilega erfitt eins og i vestrænum löndum að fá hana. Þær konur, sem hærri hafa launin, hafa þó væntanlega meiri möguleika á að létta af sér húsverkunum. Þær virðast eiga greiðari aðgang að tækniskólum en kyn- systur þeirra viða annars IIMIM SIÐAN Umsjón: Berglind Ásgeirsdóttir Serafima Kotova er verk- fræðingur við spunaverk- smiðju i Moskvu. Hún er einnig meðlimur þjóöþingsins. Serafima fékk starf við vefn- aðarverksmiðju, eftir að hún lauk námi. Innan fárra ára hafði hún lært iönina það vel, aö hún var send til framhaldsnáms og lauk siðan prófi við Vefn- aðarstofnunina. Hún var ein af þeim, sem beittu sér fyrir þvi að auka afköst verkalýðsins og fá hæstu mögulegu nýtingu út úr hráefninu. Fyrir þetta varð hún þekkt um öll Sovétrikin. Henni voru veittar viðurkenningar fyrir að hafa skapað áhuga á þvi hjá verkamönnum að standa sig vel. Mesta viðurkenning, sem hægt er að fá, „Hetja sósial- iskrar vinnu”, var veitt Sera- fimi fyrir árangur hennar við að skapa hið andlega ástand meðal vinnukraftsins. staðar. Munu 38,3% af nemendum I tækniskólum vera konur, meðan til dæmis 1.5% af nemendum i brezkum tækni- skólum eru kvenmenn. Hafa ber þó I huga, að ákaflega vinsælt námsform i Sovétrikj- unum er að nema á kvöld- skólum og námskeiðum. Þjóðarbúið missir þá ekkert af starfskröftum við- komandi og hann aflar sér menntunar. Konur munu margar hverjar hafa aflað sér réttinda á þann hátt, sem býður heim grun um, að próf þeirra séu ekki viðurkennd til jafns við þeirra, sem lokið hafa námi á venjulegan máta. Konum mun allviða vera meinaður aðgangur á dulinn hátt með ýmiss konar sér- kröfum, sem þeim tekst ekki að uppfylla. Af hverju hafa þær ekki náð jafnrétti? Tvimælalaust hafa margar þeirra gert það, og eru konurnar Svetlana Fyodorva hefur nýlega lokiö prófi frá Leningradháskólanum sem vélaverkfræðingur. Þar naut hún styrks, sem veittur er til minn- ingar um Lcnin. Dugar ekki frábær námsárangur til að hljóta hann, heldur verður viðkomandi einnig að taka þátt I félagslifi og visindaleg- um tilraunum. þrjár á myndunum gott dæmi um það. En skýringin á aðstöðu hinna, sem láta fara með sig sem annars flokks verur, er sú, að bylting breytir ekki viðhorfi kynjanna hvors til annars. Breyting á stjórnarfyrirkomu- laginu hefur ekki sjálfkrafa i för með sér, að einstaklingurinn liti á sjálfan sig öðrum augum. VINNAN UTAN HEIMILIS- INS HEFUR OFT LEITT TIL AUKINS MISRÉTTIS! Hvernig má það vera? Vinnuálagið á þær, þegar ætlazt er til að þær sinni eftir sem áður heimilinu, leggur á þær tvöfalt álag. Slikt dregur úr möguleika þeirra til að standa sig vel á báðum stöðum. Þá bætir það ekki úr skák, að nauðsynjavörur liggja ekki alltaf á lausu. En stjórnvöld munu hafa mikinn hug á að reyna að bæta eitthvað eða auð- velda lif þessara kvenna. Lifsfyllingin, sem starfið veitir, hjálpar sumum en hvað með hinar? Fátæktin knýr margar til að halda áfram störfum, en aðrar kjósa þetta fremur en vera heima. Margir hafa skýrt hinar háu skilnaðar- tölur i Sovétrikjunum með þvi, að spennan á heimilinu og þreyta húsmóðurinnar valdi miklu um. Geimfari vara- formaður kvenna- ársnefndar Kvennaársnefnd var skipuð, þrátt fyrir að tilgangur hennar ■ væri reyndar ekki að fá kon- urnar út af heimilunum. Vonazt var til, að nefndinni tækist að fá konurnar til að taka þátt i félagsstörfum. Valentina Nikolajeva Teresjkova var kjörin varaformaður nefndar- innar. Hvaö geta sovézku konurnar gert? Þær stefna i auknum mæli inn i skólakerfi landsins og hljóta nú næstum jafnmargar konur og karlar æðri menntun. Þær halda hins vegar áfram að leita i ábyrgðarminni störf og virðist þar vera um uppeldislegt atriði að ræða. Kynin eru þroskuð til ólikra hlutverka, enda þótt konurnar ættu i dag að geta tekizt á við verkefni jafn vel eða betur. Þær virðast hins vegar sjálfar ekki treysta sér til að takast á við ábyrgðarmeiri störf. Það kann að vera vegna mikillar vinnu, sem þær vilja ekki bæta á sig. Konurnar halda hins vegar áfram að taka þátt i þjóðar- framleiðslunni, þær vita, að fjárhagsáætlun rikisins og heimilisins gerir ráð fyrir vinnu þeirra. Starfið kann að vissu marki að veita þeim ánægju, sumum þeirra að minnsta kosti. Konurnar vita og að sovézkt efnahagskerfi kynni að splundr- ast, ef þær vildu ekki lengur una við ástandið. Kvennaárið i Sovét Þrátt fyrir það, að ekki þurfi kvennaár i Sovétrikjunum til að fá konur út á vinnumarkaðinn, var skipuð þar kvennaársnefnd. Varaformaður þeirrar nefndar var geimfarinn Valentina Nikolajeva Tereshjova. Þess mun vænzt, að nefndinni takist að hvetja konurnar til meiri félagslegrar þátttöku. 1 dag eru konur aðeins 1/5 af meðlimum Kommúnistaflokks- ins. Sovézkar konur halda áfram að vera sá hópur þjóðfélags- ins, með örfáum undantekn- ingum, sem er annars flokks. Þetta byggist að vissu leyti á þeirri hefð að skilja á milli kynj- ann og þroska þau sitt i hvoru lagi. Einnig má konunum sjálfum um kenna, þær hafa alls ekki verið nógu harðar i þvi aö ryðja hindrunum úr vegi. Samt sem áður halda konur áfram að vinna vegna þess, að fjárhagsáætlun heimilisins gerir ráð fyrir tekjum þeirra. Starfið kann að veita þeim ánægju og það myndi kollsteypa sovézku efnahagskerfi, ef þær hættu að una þessu ástandi.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.