Vísir


Vísir - 29.07.1975, Qupperneq 16

Vísir - 29.07.1975, Qupperneq 16
VÍSIR Vlsir. Þriðiudagur 29. júli 1975, Alltof jafn hress! 1 eina tið átti hann metið i að varpa kúlunni, hann Þorgeir bóndi i Gufunesi, sá lands- frægi afreksmaður. Hann hefur nú lagt átta áratugi að baki og þykir gaman að fást við Iþróttirnar engu að siður. Ilann var um helgina með flokki frjálsiþróttamanna og áhugafólks i Noregi, og hér reynir hann sig I hringnum. Okkur sýnist hann kunna tökin á kúlunni ekki siður en þeir yngri. (Ljósmynd Bj-Kj-> Maður slasaðist alvariega i á rckstri iHeyðarfirði á laugardag inn. Hann variluttur með flugvél til Reykjavíkur og liggur nú á gjörgæzludeild Borgarspitalans, Er liðan hans eftir atvikum. Þarna rákust saman Reykja- víkurbill og annar af Austfjörð- um. Þetta var á neðstu brúnni á Fagradal, og var Reykjavlkur- bfllinn, með hjónum á sumar- ferðalagi, rétt i þann veg að kom- ast yfir brúna, er áreksturinn varð, og köstuðust bflarnir sinn á hvorn brúarstólpann. ökumaður Austfjarðabílsins slasaðist mest, hlaut slæm höfuðmeiðsli. Konan úr Reykjavik slasaðist einnig nokkuð, en mun óbrotin, og far- þegi i austanbílnum hlaut nokkr- ar skrámur. Þetta fólk var flutt á sjúkrahúsið á Egilsstöðum. öku- maður Reykjavikurbilsins slapp ómeiddur. — Bilbeltin héngu ó- notuð i báðum bilunum, að sögn löggæzlumanns á Reyðarfirði. —SHH Stöðugur hallarekstur ó íslenzka ríkinu: EN VID ERUM SAMT EKKERT Á KÚPUNNI island er ekki að verða gjaldþrota að matiólafs Tómassonar hjá Seðlabanka ís- lands, er bornar voru undir hann tölur júni- mánaðar um vöru- skiptajöfnuð við önnur riki. Hallinn fyrstu 6 mánuði þessa árs er tæpir 14 milljarðar. En hvernig er hægt að mæta slíkum halla ár eftir ár? Á sama tima i fyrra var hallinn á átt- unda milljarð miðað við þáverandi gengi. Ólafur sagði, að hér innan- lands væri leitazt við að bæta hag landsmanna með gengis- breytingum og innflutningi fjár- magns. Tekin væru lán eftir þvi, sem frekast væri unnt. En hvar getum við fengið lán og njótum við enn sama láns- trausts og á góðu árunum? Ólaf- ur sagðist verða að játa, að það væri ekki lengur, en þó væri enn mögulegt að fá lán. Þá benti hann á það, að til dæmis seljendur þeirra skipa, sem tslendingar kaupa, lánuðu oft upp i 80% af verði þeirra. Stærstu liðirnir I innflutningi, sem alls nam um 35 milljörðum, eru skip eða þrir milljarðar sex hundruð sextiu og sex milljónir. Þá nemur innflutningur til ISAL mjög svipaðri upphæð. Ólafur benti hins vegar á, að tap eða gróði Islenzka álfélagsins hefði engináhrif á gengismál Islands. Þeir yrðu sjálfir að flytja inn fjármagn, ef mismunur á inn- flutningi og útflutningi væri ein- hver. Útflutningur nam i júnimán- uði rúmlega fjórum og hálfum milljarði. Sjávarafurðir voru þar tæpir fjórir milljarðar, en iðnaðarvörur voru seldar úr landi fyrir 411 milljónir. Ólafur sagði, að tölurnar væru að vissu leyti ýktar. Til dæmis væri innflutningur metinn á þvi verði, sem varan kostaði, þegar búið væri að greiða tryggingar og farmgjöld. Útflutningsverð- mæti væru reiknuð á vörunni, þegar hún væri komin inn fyrir borðstokk en ekkert tillit tekið til kostnaðar við útflutning-B.A. Akraborgar kemur í gagnið um helgina? „Ætli brúin verði ekki tilbúin öðru hvoru megin við helgina,” sagði Gunnar B. Guðmundsson hafnarstjóri um bílabrúna fyrir Akraborgina, sem beðið hefur verið með mikilli óþreyju. Þeir á Akranesi ættu jafnvel að vera til- búnir með sina á föstudag. Það verður margur bileigand- inn léttur á brúnina að þurfa ekki að aka fyrir Hvalfjörð, en geta I staðinn keyrt beint um borð i Akraborgina. Að visu hefur ferjan flutt 10—11 bila i hverri ferð, en menn hafa þurft að panta fyrirfram til að vera vissir um að fá far. Nú bæt- istviðrúm fyrir um 40 bila, þegar bfladekkið nýtist. Ef fleiri en einn eru i bilnum kostar farið undir bilinn kr. 200. Ef aðeins einn er i honum kostar undir bilinn kr. 400. Fargjaldið á mann er kr. 600. —EVI— Meiri útsvarsgreiðslur til sveitarfélaganna „Þetta þýðir i stuttu máli, að mismuninum á persónuafslætti og tekjuskatti skai ráðstafað til greiðslu tekjuútsvars,” sagði Magnús Guðjónsson, fram- kvæmdastjóri Sambands Is- lenzkra sveitarfélaga, en sá reit- ur álagningarseðiisins fræga, sem tilgreinir fullan persónuaf- slátt og ónýttan persónuafslátt, hefur vafizt fyrir mörgum. Magnús sagði, að i lögum um ráðstafanir i efnahagsmálum og fleira frá 28. april siðastliðnum, hefði verið breytt ákvæðum um svokallaðan persónuafslátt. 1 fyrra var veittur skattaafsláttur, sem menn fengu þá endurgreidd- an, en nú heitir þetta persónuaf- sláttur. Nemi hann hærri fjárhæð en reiknaður tekjuskattur, leggur rikissjóður mismuninn fram til greiðslu á útsvari. Ef eitthvað verður énn umfram, fellur það niður. A undanförnum árum hefur verið heimild til að fella niður út- svar hjá fólki með lágar tekjur, svo sem ellilifeyrisþegum og námsmönnum. Með þessari breytingu á skattalögunum fá sveitaríélögin útsvar þessa fólks, — ónýttur persónuafslóttur gengur til greiðslu útsvaranna en úr hendi rikissjóðs, þannig að tekjur sveitarfélaganna aukast við þetta um nokkur hundruð milljónir um allt land. Sú upphæð, sem mögulega kemur til lækkunar útsvars með þessu móti, er tilgreind i siðasta reit álagningarseðilsins. —SHH 4 slökkvibílar og 12 manns sendir í brunakall: íbúarnir höfðu slökkt sjólfir er liðið kom íbúar í neðanverðri upp af værum blundi á er fjórir slökkviliðs- Mosfellssveit hrukku sunnudagsmorguninn, bilar geystust upp Vesturlandsveginn upp i Reykjahverfi. Sem betur fór var þó minni hætta á ferðum en leit út fyrir i fyrstu. Kviknað hafði I rúmdýnu I timburhúsi þar efra, en ibúum hússins hafði tekizt að slökkva eldinn með handslökkvitækjum og vatni, er liðið kom á vett- vang. Að sögn slökkviliðsins var tal- in hætta á, að meira kynni að verða úr eldinum, og þvi voru þessir f jórir bilar sendir og með þeim tólf manns. Á meðan var varalið kallað inn á stöðina til að vera til taks, ef á þyrfti að halda þar efra eða annars stað- ar. —SHH

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.