Tíminn - 04.10.1966, Blaðsíða 2

Tíminn - 04.10.1966, Blaðsíða 2
ÞRIÐJUDAGUR 4. október 1966 2 TÍMINN Hin kunna söngkona Ingela Brander er farin að syngja fyrir gesti í Lídó. Gafst blaða- mönnum tækifæri til að spjalla við söngkonuna og umboðs- mann hennar, Fritz Ruzicka, sem undanfarna áratugi hefur verið umboðsmaður kunnra skemmtiskrafta á fslandi, m.a. Ninu og Friðriks, sem héldu tónleika í Austurbæjarbíói fyr- ir átta árum síðan. Ingela kvaðst vera rafmagns verkfræðingur að menntun en kvaðst hins vegar hafa meiri ánægju af því að syngja og leika á saxófóninn, sem hún hefur leikið á, síðan hún var átta ára gömul. Er ekki að efa, að gestir í Lídó kunni vel að meta söng þessarar ungu og bráðfallegu söngkonu. Söngkonan mun koma fram á kabarett í Austurbæjarbíói á miðvikudagskvöldið en þar munu auk hennar koma fram Ómar Ragnarsson með nýtt skemmtiatriði, Sextett Ólafs Gauks o.fl. SKÁTA- DAGUR FB-Reykjavík, mánudag. Á sunnudaginn var haldinn skátadagur á tjaldsvæði borgarinn ar í Laugardal. Þar voru reist tjöld og þrautabrautir, sem menn gátu spreytt sig á. Skátadagurinn hófst klukkan 2 og frani til klukk- an 6 fóru fram leikir ýmiss konar og kaffisala. Klukkan hálf níu um kvöldið byrjaði varðeldur, sem stóð fram til klukkan 10. Að hon- um loknum var flugeldasýning. Á varðeldinum voru sungnir skáta- söngvar og sýndir leikþættir við góðar undirtektir áhorfenda. Skáta dagurinn er til þess ætlaður að kynna börnum og fullorðnum skátastarfið, en í sambandi við hann hófst innritun, sem haldið verður áfram f Skátaheimilinu. Gert er ráð fyrir, að næsta sunnudag verði Skátadagur hald- inn við Eskihlíð. Myndina tók ljósmyndari Tímans GE. 9 Ijósmæður ótskrifast KJ-Reykjavík, máftudag. Á föstudaginn var Ljós- mæðraskóla íslands sagt upp í aðalkennslustofunni í nýbyggingu Landspítalans, að viðstöddum mörgum gest um. Er þetta í fyrsta sinn sem skólanum er slitið, eft ir að nýtt kennsluskipulag var tekið þar upp, en núna er námstíminn við skólann tvö ár. Níu ljósmæður brautskráð ust frá skólanum, og hlutu allar góðar einkunnir á lokaprófi. Yfirlæknir Fæðingadeild- arinnar Pétur Jakobsson flutti skólaslitaræðuna, en áður söng Guðmundur Jóns son við undirleik Ólafs Vign is. Móheiður Sigurðardóltir flutti ávarp fyrir hönd hinna nýútskrifuðu ljós- mæðra, og auk hennar töl- uðu við athöfnina Guðrún Magnúsdöttir yfirljósmóðir, Freyja Antonsdóttir ritari Ljósmæðrafélags íslands og landlæknir dr. Sigurður Sig- urðsson. Viðstaddur voru læknar og hjúkrunarkonur á Land- Framhald á bls. 14 Póst- og símamálaráðherra hef- ur látið hafa það eftir sér að ekki verði komið til móts við óskir starfsmannanna, og munu því all- ir 45 starfsmennirnir sem sagt hafa upp störfum hætta í Gufu- nesi. Auglýstar hafa verið stöð- ur við Loftskeytastöðina í Gufu- nesi, og hafa nokkrir sótt um, en talsverðan tíma tekur að þjálfa hina nýju starfsmenn til starf- anna. í gær voru lesnar tilkynningar frá Gufunesi á bylgjunni „2790“, þess efnis að draga yrði allveru- lega úr þjónustunni á þessari bylgju; en land og bílastöðvar hafa hana. Aðeins það nauðsyn- legasta er afgreitt, svo sem veð- urskeyti frá Hveravöllum og þ.h. Nýskipun prestakalla og kirkju- sjóður aöalmal kirkjuþingsins SJ-Reykjavík, mánudag. Fundur Kirkjuþinfis hófst kl. 10 í morgun, í safnaðarsal Nes- kirkju. Herra biskup Sigurbjörn Einarsson setti þingið með ræðu. Sleipniskosn- ingar á fimmtu- dag og föstudag Kosning fulltrúa á ASÍ þingið fyrir Bifreiðastíórafélagið Sleipni fer fram á skrifstofu félagsins Freyjugötu 26 n.k. fimmtudag og föstudag frá kl. 13—21 báða dag- ana. Tveir listar hafa komið fram og aðalmenn á A-lista eru Pétur Kristjónsson og Einar Steindórs- son. Varamenn á listanum eru Sveinbjörn Gíslason og Valgeir Sighvatsson. Þetta er í fyrsta sinn sem Bif- reiðastjórafélagið Sleipnir kýs sérstaka fulltrúa á ASÍ þing, en áður var félagið deild í Bifreiða stjórafélaginu Frama. Síðan fór fram kosning kjörbréfa nefndar. 1. forseti var kjörinn séra Gunnar Árnason og 2. vara forseti Þórarinn Þórarinsson, fyr verandi skólastjóri. Skrifarar vora kjömir sr. Sigurður Guðmunds son, prófastur á Grenjaðarstað og Steingrímur Benediktsson skóla- stjóri í Vestmannaeyjum. Þá var kosið I allsherjarnefnd og laga- nefnd. Að þessu loknu flutti biskup skýrslu kirkjuráðs, og síðan var lagt fram aðalmál kirkjuþingsins, frumvarp til laga um skipan presta kalla og prófastsdæma, samið af nefnd sem skipuð var af ráðherra í fyrra til þess að endurskoða prestakallaskipunina. Jafnhliða var lagt fram frumvarp frá Kirkju ráði um stofnun Kirkjúsjóðs. Drög að þessu frumvarpi var lagt fyrir síðasta Kirkjuþing. Lagt er til að þessu frumvarpi verði skeytt við frumvarpið um skipan prestakalla, og úr því verði samfelldur laga- bálkur. Með stofnun kirkjusjóðs er hug myndin sú að gera kirkjunni fært að lagfæra það vandræðaástand sem ríkir víða úti á landsbyggð- inni, þar sem prestþjónustan er mjög ófullkomin. Einnig hefur kirkjan hug á þvi að geta grip- ið inn á fleiri svið þjóðlífsins, en forsenda frekari framkvæmda er að hafa eitthvað frjálst fé undir höndum. Þessum sjóði er ætlað Framhald á bls. 14. Háskólafyrirlestur um félagsvísindi Prófessor T.E. Chester frá Manchester dvelst nú hér á landi í boði Háskóla íslands f því skyni að gera ráð um, hvernig skipu- leggja megi hér nám í félagsfræði. Prófessorinn mun halda opin- beran fyrirlestur í 1. kennslustofu Háskólans þrlðjudaginn 4. októ- ber kl. 5.30. Efni fyrirlestrarins, sem fluttur verður á ensku verður The role of social studies in the univesity. Öllum er heimill aðgangur. Prentarar á ASÍ-þing SI. laugardag klukkan 16. var útrunninn frestur til að skila til- lögum um fulltrúa hins íslenzka prentarafélags á 30. þing Alþýða sambands íslands. Aðeins ein til- laga kom fram og eru því eftir- taldir menn sjálfkjörnir fulltrúar félagsins á næsta þing A.S.f. Aðalfulltrúar: Jón Ágústsson, Óðinn Rögnvaldsson, Pjetur' Stef- ánsson, Stefán Ögmundsson. Varafulltrúar: Ellert Ág. Magn- ússon, Pálmi A. Arason, Jón Már Þorvaldsson, Guðrún Þórðardótt- ir. STÖÐUGT FÆKK- AR í GUFUNES! KJ-Reykjavík, mánudag. Stöðugt fækkar starfsmönnum í Loftskeytastöðinni í Gufunesi, og hefur starfsemi stöðvarinnar dreg ist all verulega saman núna yfir helgina. Kosnir ASÍ-fulltrúar Verkalýðsféllags Húasvíkur. Frá skólaslltum Ljósmæðraskóla (slands á föstudaginn. Hinar nýútskrifuðu Ijósmæður sltja fremst og eru FulItrúar^ Verkalýðsfélags Húsa frá v. talið. Þórey Baldursdóttir, Reyðarfirði, Sigurborg Kristinsdóttir Akranesl, Móhelður Sigurðardóttir, Birt jJinJssonS'Albert"11 ''Th^ SVemn ingaholti Árn., Hildur Halldórsdóttir, Rvík., Herdís Björnsdóttir Keflavík, Helga Ásmundsdóttir Eyrarbakka, j Qunnar Jónsson og Guðrún Si'’ Guðrún Davfðsdóttir, Rvik., Áslaug Hauksdóttir Rvík., og Jónína Helgadóttlr Eyjaflrði. (Tfmamynd Kárl) I fúsdóttir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.