Tíminn - 04.10.1966, Side 14

Tíminn - 04.10.1966, Side 14
14 5K0TIÐ Á LÖGREGLUNA Framhald af bls. 1. hafði þá maður nokkur, sem talinn er geðvcikur lokað sig inni í skúr við húsið. Kallaði lögreglan til hans og bað hann að koma út úr skúrnum, en maðurinn hleypti þá af riffli í átt að lögreglumönnunum, en kúl an hæfði þá ekki. Brutust þeir þá inn í skúrinn, og sat maðurinn þá í hnipri í einu horni skúrsins og mið aði á þá byssunni í rökkr- inu. Var riffiUinn hlaðinn og spenntur. Tókst iög- reglumönnunum að hand- sama manninn, og færðu hann í fangageymsluna, en þegar þangað kom réðst hann á þá með rýting sem hann hafið falið í sokk sín um. Ekki sakaði lögreglu mennina. Maðurinn var settur í fangageymsluna, en síðan sleppt úr haldi. BSRB-ÞINGIÐ Framhald af bls. 1. um. Við slíkar aðstæður er óaf- sakanlegt að starfsmenn hins op- inbera séu miklu verr staddir í TÍMINN kjaramálum en aðrir þegnar þjóð- félagsins, og er það skýlaus krafa, að úr þessu verði bætt. Þetta þing mun fjalla um skipu- lagsmál samtakanna og verður lögð fyrir þingið tillaga frá banda lagsstjórn um kosningu milliþinga nefndar til þess að athuga og gera tillögur um skipulag samtakanna, en það mál er vissulega nátengt sjálfum kjaramálunum. En það er fleira en kjarabar- áttan í þrengstu merkingu, sem við þurfum að gefa gaum, og vil ég í því sambandi minnast á tvö atriði. Það er orðin brýn nauðsyn fyrir samtök eins og okkar, að hefjast handa um aukna fræðslu- starfsemi innan vébanda samtak- anna. Samtökin þurfa að koma á námskeiðum á sama hátt og tiðk- ast hjá nágrannaþjóðum okkar, þar sem veitt verði fræðsla um félagsstörf almennt og í framhaldi af því fræðsla og þjálfun, sem sérstaklega sé miðuð við starf trúnaðarmanna í okkar samtök- um. Slíkt fræðslustarf er talið sjálfsagt annars staðar, og er ekki aðeins miðað við nýliða í félagsstörfum, heldur einnig til að auka hæfni þeirra, sem þegar hafa fengið reynslu í slíkum störfum. Þá skýrði Kristján frá því, að samband ríkisstarfsmanna á Norð- urlöndum hafi ákveðið að koma á fót sameiginlegum norrænum nám skeiðum. Hann ræddi einnig um nauðsyn orlofsheimila og sagði, að æskilegt væri að B.S.R.B. festi sér land á fögrum og hentugum stað og láti skipuleggja og skapa að- stöðu fyrir einstök félög, sem vilja hefjast handa að koma upp or- lofsheimilum. Forseti fundarins var kjörinn Stefán Árnason frá Starfsmanna- félagi Vestmannaeyja, en fundar- ritarar Kristín Þorláksdóttir frá Starfsmannafélagi Reykjavíkur borgar og Halldór Ólafsson frá Félagi opinberra starfsmanna fsa firði. i/ETUR Framhald af bls. 1. hafa snúið við í Möðrudal á sunnudaginn, en komust allir yfir í dag í slóð hef- ilsins. WARREN-SKÝRSLAN Framhald af bls. 1. þar að baki. 11% voru á því, að það væru kommúnistarnir. Áberandi er, hve miklu færri telja nú öruggt, að Kennedy hafi fallið fyrir byssukúlum Oswalds, heldur en héldu því fram fyrst eftir morðið í Texas í nóvember 1963. í dag lét Arlen Specter, einn úr Warren-nefndinni, þess getið 1 viðtali við tímaritið U.S. News and World Report, að hann hefði ekk- ert á móti því, að rannsókn sú, sem Warren-nefndin stóð fyrir og byggði skýrslu sína á, yrði tekin upp á ný. En hann bætti því við að hann væri sannfærður um, að ný rannsókn myndi ekki leiða neitt annað í ljós. VIENNINGARSJÓÐURINN Framhald af bls. 1. Af hálfu íslands undirritaði Gylfi Þ. Gíslason, menntamálaráð- herra samninginn, af hálfu Dana Hans Sölvhöj og K.B. Andersen, af hálfu Noregs Henrilc Bargem ríkisráðsritari, af hálfu Finnlands, Ele Alenius og af hálfu Svia Ragn ar Edenmam Starfsemi sjóðsins hófst strax á þessu ári og nam hann þá 600. 000 danskra króna, en frá og með næstu áramótum mun hann ráða yfir um þrem milljónum danskra króna árlega. f stjórn sjóðsins verða tiu menn, helmingur þeirra tilnefnd- ur af ríkisstjórnum landanna, en hinir af Norðurlandaráði. Þegar hafa borizt 30 umsóknir um fjár framlög úr sjóðnum, en umsokn- arfrestur rennur ekki út fyrr en 5. október n.k. KIRKJUÞING Framhald af bls. 2. að vera eins konar framkvæmda- sjóður kirkjunnar. Þingið heldur áfram á morgun, þriðjudag og þá hefjast umræð ur um fyrrgreind mál, sem hafa verið í undirbúningi á hálft annað ár. LJÓSMÆÐUR Framhald af bls. 2. spítalanum og Fæðingar- deildinni, skólastjór Hjúkr- unarskólans, auk aðstsnd- enda nýju ljósmæðranna. Tuttugu nemendur munu stunda nám við Ljósmæðra- skólann í vetur og eru 9 í eldri deild og 11 hófu nám ið nú í haust. FINNSKUR LEKTOR Framhaid aí bls. lb skólanum hér. Nokkrir islenzkir stúdentar væru og við nám í há skólanum í Helsinki, allir að iæra byggingarlist, og mætti benda þeim íslenzkum stúdentum eða menntaskólanemendum, sem hyggðu á slíkt nám eða annað í Finnlandi, sem gerði finnskukunn- áttu nauðsynlega, að það yrði þeim mjög í hag að hafa fengið nokkra undirstöðu í finnskri tungu áður en þeir héldu til Finnlands og því í lófa lagið að notfæra sér kennsluna hjá Peura. Jón Kjartansson aðalræðismaður sagði, að í Reykjavík væru nú starfandi og búsettir 40—50 Finnar. Peura lektor kvaðst hafa lagt stund á norræn málvisindi og ver- ið nokkur ár starfandi við háskól- ann í Turku. Þangað hefði komið fyrir fjórum árum franski mál- fræðingurinn Pierre Naert, sem lengi hafi kennt í háskólanum í Lundi og þar áður verið á íslandi, feikilegur málamaður, og væri is- lenzka og finnska meðal þeirra fimmtán tungumála, sem hann kynni til hlítar, og af honum kvaðst Peura hafa lært þá ísle.izku er hann kynni og það væri fyrir hans hvatningarorð, að hann væri híngað kominn, svona væri Pierre Naert enn mikill „íslendingur," hann hefði lagt sig mjög fram um að kynnast hér landi og þjóð og menningu og þýtt „Fögru ver- öld“ eftir Tómas á frönsku. Peura taldi það ekki frágangssök að læra finnsku að hún væri talin erfitt mál, það væri eftir því hvernig á það væri litið, að vísu væru til sextán föll í málinu, en aftur á móti engar forsetningar Aðspurður um rithöfunda í Finnlandi, sagði Peura, að Sill- anpaa væri sá eini, er hlotið hafi bókmenntaverðlaun Nóbels, en ÞRIÐJUDAGUR 4. október 1966 frægasti núlifandi höfundur Finna væri Váaino Linna, sem hlaut bók menntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir þrem árum. Spurningunni um það, hvort Hannu Salama, finnski rithöfundurinn er dæandur var fyrir guðlast nyti vm- sælda í Finnlandi. svaraði *•’ • ra á þá leið, að bók sú, sem har.n var dæmdur fyrir, væri tæpast hægt að telja til mikilla bók- mennta fremur til sorprita, og trúlega skrifuð í fjáröflunarskyni, þótt höfundi eða útgefanda vrði ekki kápa úr því klæðinu, því að bók og ágóði af söli hafi hvort tveggja verið gert upptækt. Aðspurður um það, hvort haldn ir yrðu fyrirlestrar fyrir almenn- ing í háskólanum um finnska bók menntir og menningu, svaraði Peura það enn ekki ákveðið, og viðstaddur prófessor úr mála- deild Háskóla íslands, Halldór Halldórsson, sagði að eftir væri að taka ákvörðun um það. MINNING Framhald af bls. 3 V'ettvang fannst þar við þitt hæfi, stundaðir starf þitt af stakri prýði. Framtíðin virtist við þér blasa, vonum vafin á vegi fremdar. Drottins dómar oss duldir eru, enginn er dagur til enda tryggur. Liggur í leyni lævís dauði, beittan ljá hann ber í hendi. Aufúsugestur þó er hann stundum, þeim sem þjást og þrautir líða. Fölskvalaus ást til æskustöðva brann þér í brjósti til banastundar. Frá þeim var hinzta för þín hafin. Sannur varstu sonur sveitar þinnar. Sárt var fyrir son og föður að sjá þig sökkva í sjávardjúpið. Sungu þér bárur svefnljóð hinztu, viðkvæm vóru þau vögguljóðin. Drottinn var þár í djúpi köldu, engan hans máttur yfirgefur. Almættishöndin sem alla leiðir, bárusæng þig breiddi yfir. Vinur og félagi varzt þú góður, það vér þökkum af þýðum hjörtum. Glaður ætíð með glöðum vinum, harmbót þeim sem hryggir vóru. Skarð er nú fyrir skildi orðið vandfyllt mun það verða lengi. Getið þá verður góðra manna, nafn þitt einnig mun nefnt með slíkum. Varðar ei sjást á votum gröfum orðstírinn einn er æðstur varði. Heiðarleiki og hjartagæði hvað eru betri bautasteinar? Laun V.R. hækka um 1,6% Samkvæmt útreikningi kauplagsnefndar hækkaði kaup greiðsluvísitalan frá 1. september 1966 um 3 stig. Samkvæmt því skal á tímabilinu 1- september til 30. nóvember 1966 greiða 15,25% verðlagsuppbót á grunnlaun í stað 13,42% sem gilti áður, þessi hækkun samsvarar því að öll laun hækka um 1,6% frá og með 1. september 1966. Verzlunarmannafélag Reykjavi'kur. STÖÐVARPLASS ÓSKAST Óska eftir að kaupa stöðvarpláss fyrir fólksbíl. Tilboð óskast send auglýsingadeild Tímans ryrir 10. október merkt „Stöðvarpláss“ Minningarathöfn um son, bróður og tengdabróður okkar, Sigurð Theódórsson fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 7- október kl. 10.30 Athöfninni verður útvarpað Karólína Sigurðardóttir Theódór Ólafsson Hafdís Theódórsdóttir Ásthildur Theódórsdóttir Ingimar Magnússon Jakobína Theódórsdóttir Erlingur Guðmundsson Ólafur Theódórsson Sigríður Mikaelsdóttir. Systir okkar og mágkona, Ingibjörg Jónsdóttir frá Mófellsstöðum andaðist laugardaginn 1. október s. 1. Ólína Jónsdóttir, Sigríður Jónsdóttir, Guðfinna Sigurðardóttir. Faðir okkar Guðjón Eyjólfsson, Eiríksbakka, Biskupstungum, andaðist að Vítisstaðahæli 2. þessa mánaðar að kvöldi. Jarðarförin auglýst síðar. Börnin. Eiginmaður minn, Eggert Kristjánsson stórkaupmaður verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni. miðvikudaginn 5. októ- ber, kl. 14.00. Guðrún Þórðardóttir og fjölskylda uiTrmnrinffiiiiiniii mi'wwuhh—mihiii imn' .. m 11111 wuwihiiiiwi Skrifstofum og vörugeymslum okkar verður lokað miðvikudaginn 5. október vegna jarðarfarar EGGERTS KRISTJÁNSSONAR stórkaupmanns Eggert Kristjánsson & Co. f. Bananar h. f. Kexverksmiðjan Frón h f. Kexverksmiðjan Esja h. f.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.