Vísir - 11.09.1975, Qupperneq 10
KR pantar einnig
leikmann frn USA
Fetar í fótspor Ármenninga og fœr hingað risa til að leika
með körfuknattleiksliðinu í vetur
Nú hafa KR-ingar
ákveðið að feta i fórspor
Ármanns — og ætla þeir
að fá bandariskan
körfuknattleiksmann til
liðs við sig. Þessi
ákvörðun var tekin hjá
stjórn Körfuknattleiks-
deildarinnar i gær-
kvöldi.
„Við höfðum mikinn áhuga á að
fá hingaö tvo leikmenn”, sagði
Gunnar Gunnarsson, gjaldkeri
Körfuknattleiksdeildarjnnar i
viðtali viö Visi. „En þegar við
fórum að hugsa málið betur, varð
það ofan á að fá hingað einn leik-
keppnistimabili aðeins fjórum
stigum á eftir Englandsmeistur-
unum Derby. Tapaði í gærkvöidi
fyrir 4. dcildarliðinu Lincoln.
Þá fóru fram nokkrir leikir i
deildarbikarkeppninni bæði i
Englandi og Skotlandi,
Jimmy Grenhoff náði foryst-
unni fyrir Stoke, en eftir það áttu
leikmenn liðsins i vök að verjast
og aðeins frábær markvarzla
Peter Shilton héltliðinu á floti. En
sóknarþungi Lincoln var þungur
og liðinu tókst að jafna metin og
þegar 22 mínútur voru til leiks-
loka skoraði Dennis Booth sigur-
markið með skalla. bá var eins
og sprengju hefði verið varpað —
áhorfendastæðið hrundi og flytja
varð marga af áhorfendum á
nærliggjandi sjúkrahús.
Þá lentu stóru liðin Manchester
Utd.og Derby i vandræðum gegn
liðum úr 4. deild. Manchester lék
mann, þvi að við vorum hræddir
um aö ef þeir yrðu tveir, myndi
allt spil snúast i kringum þá. En
ef vel gengur og framfarir verða
hjá okkar mönnum, er alltaf sá
möguleiki fyrirhendi að bæta við.
Við erum þegar búnir að setja
okkur i samband við umboðs-
skrifstofuna i Bandarikjunum og
samningar standa nú yfir. Við
ætlum að fá miðherja — tveggja
metra mann — og gangi allt upp,
mun hann væntanlegur i þessum
mánuði.
Stefnt verður að þvi að hafa
Bandarikjamanninn allt keppnis-
timabilið og ekki veitir af — þvi
að Armenningarnir verða erfiðir
viðureignar. Auk þess að leika
með okkur mun hann svo
væntanlega sjá um alla þjálfun
hjá félaginu.
gegn Brentford sem náði óvænt
forystunni i leiknum — en Lou
Macari og Sammy Mcllroy
tryggðu sigur United seint I leikn-
um.
Derby komst i krappan. dans
gegn Huddersfield og þar var
jafnt i hálfleik 1:1 — það var svo
ekki fyrr en langt var liðið á leik-
timann að Charlie George skoraði
sigurmark Derby.
Urslit leikjanna i deildarbikar-
keppninni igærkvöldi urðu þessi:
AstonVilla—Oldham 2:0
Bolton—Coventry 1:3
Crewe—Chelsea 1:0
Derby—Huddersfield 2:1
Halifax—Sheff. Utd. 2:4
Herford—Burnley 1:4
Lincoln—Stoke 2:1
Manchester Utd.—Brentford 2:1
Norwich—Manchester City 1:1
Notth.For,—Plymouth 1:0
Peterborough—Blackpool 2:0
Southport—Newcastle 0:6
York—Liverpool 0:1
Þetta kemur til með að verða
dýrt fyrirtæki hjá okkur — en við
ætlum að vinna vel og ef þessi
ákvöröun verður til þess að lyfta
körfuknattleiknum upp — þá er
tilganginum náð”.
„Loksins
kom högg"
— sagði kvenna-
meistarinn í goifi
um leið og hún só
boltann sinn fara í
holuna í einu höggi
„bar loksins kom högg”
sagði íslandsmeistari kvenna
I golfi — Kristfn Pálsdóttir —
er hún loks eftir að hafa siegið
mörg högg á fimm brautum i
„Silfurkeppninni” á Nesvell-
inum, sá á eftir boltanum sin-
um þjóta af stað í upphafs-
högginu á 6. braut.
Hún mátti lika vera ánægð
með höggið þvi kúlan lenti á
flötinni ogstöðvaðist ekki fyrr
en í holunni. Var þetta i fyrsta
sinn, sem slcgin er hola I höggi
á þessari braut, seni tekin var
i notkun fyrir fjórum árum.
En þetta góða högg nægði
Kristinu samt ekki til að vinna
sér inn verðlaun i keppninni —
aftur á móti fær hún fyrir það
vandað gullúr eins og lög gera
ráð fyrir, og inngöngu I hið
merkilega samfélag golfara,
sem nefnt er Einherjar.
Sigurvegari I keppninni án
forgjafar varð Jakobina Guð-
laugsdóttir frá Vestmanna-
eyjum, sem lék 18 holurnar á
85 höggum. Næstar henni
komu þær Inga Magnúsdóttir
GK á 86 höggum og Jóhanna
Ingólfsdóttir GRá 87 höggum.
Fyrstu verðlaun með forgjöf
hlaut móðir Jóhönnu — Ilanna
Gabríels GR, sem var á 70
höggum nettó. önnur varð
Hanna Gisladóttir GR á 71
liöggi og þriðja Sigrún
Ragnarsdóttir GN á 72 högg-
um. —klp—
Óvœnt tap
Stoke City
Stoke City, 1. deildarliðið sem '
varð í fimmta sæti á siðasta
Þetta eru strákarmr úr 4. flokki Breiöabliks úr Kópavogi, sem uröu íslandsmeistarar I sinum flokki með
þvi aö sigra KA frá Akureyri I siðari úrslitaleik liðanna með 4 mörkum gegn X. Fyrri leiknum lauk með
jafntefli 2:2. Ljósmynd Einar...
tslenzka vörnin var mjög sterk Ileiknum á Leninleikvanginum I Moskvu I gær.seg-
ir i fréttaskeyti frá Reuter i morgun. Hér eru tveir af máttarstólpum hennar, Mar-
teinn Geirsson og Jón Pétursson á réttum stað og bjarga á siðustu stundu.
Þeir eru allir
óðir \ að fara
til íslands
— segir Jóhannes Eðvaldsson um leikmenn
Celtic, sem koma hingað ó sunnudaginn
„Það eru allir hér hjá Celtic mjög
spenntir fyrir ferðinni til tslands, og
komast færri með en vilja,” sagði Jó-
hannes Eðvaldsson, er við höfðum sam-
band við hann i Glasgow i morgun.
„Við leggjum af stað eftir hádegi á
sunnudag og erum að vonast til að ná til
Reykjavikur áð'ur en bikarúrslitaleikn-
um á milli Keflavikur og Akraness er
lokið. A þriöjudaginn leikum við svo viö
mina gömlu félaga I Val, og hlakka ég
og félagar minir hér mikið til þess.
Ég veit ekki almennilega hverjir
verða með I ferðinni, en trúlega verðum
við með okkar sterkasta lið, enda hef ég
sagt þeim, að Valsmenn séu til alls lik-
legir á heimavelli.
Við lékum i gærkvöldi við Stenhouse-
niuir i 8-liða úrslitum deildarbikarsins
og unnum 2:0 á útivelli. Ég held.aðég
hafi sloppið vel frá þeim leik — náði að
leggja upp annað markið, en gekk sjálf-
um illa að skora. A fyrstu minútunni átti
ég t.d. skalla i þverslá, siðan kom bolt-
inn út aftur og þá skaut ég I stöngina.
Bobby Lennox fékk siðan boltann og
skaut í höfuöið á einum, sem stóð á lin-
unni — og þaðan fór boltinn langt út á
völl.
Þannig var leikurinn nær allan tim-
ann — við óðum I tækifærunum, en
náðum ekki aö skora. Vonandi vegnar
okkur betur við mörkin i Laugardalnum
á þriöjudaginn — a.m.k. veit ég, að
ekkert verður slegið af i þeim Ieik.”
—klp—
Sluppu með skrekkinn
Axel Axelsson og Ólafur H. Jónsson i
umferðaróhappi í Þýzkalandi
Fyrir nokkrum dögum lentu þeir fé-
l'agar, Axel Axelsson og Ólafur H. Jóns-
son, i smá umferðaróhappi, þegar þeir
voru að koma af æfingu hjá félagi sinu
Dankersen i Vestur-Þýzkalandi.
„Við vorum að koma frá þvi að leika
æfingaleik viö lið hérna i næsta bæ, þeg-
ar óhappið átti sér stað,” sagði Axel I
morgun. „Viö komum eftir óupplýstum
sveitavegi og I einni beygjunni missti ég
vald á bilnum, sem kastaðist á tré. Ég
og Óli sluppum með skrekkinn, en einn
úr stjórn liðsins, sem var I bilnum með
okkur, var fluttur á sjúkrahús með smá
skrámur.
1 gærkvöldi lékum við æfingaleik við
lið úr 2. deild og unnum auðveldlega —
Óli Jóns var I miklum ham og skoraöi
rnörg mörk. Ég hef ekki getað æft að
neinu ráði ennþá vegna meiðslanna i
olnboganum, — en þetta stendur von-
andi allt til bóta. —
Sigur hjó Standard Liege
Deildarkeppninni var haldið á-
fram I Belgiu i gærkvöldi og þá
leikinn fimmta umferð. Liö As-
geirs Sigurvinssonar Standard
Liege vann á útivelli — en liö
Guðgeirs Leifssonar tapaði.
Úrslit leikjanna I gærkvöldi
uröu þessi:
Beveren—Anderlecht 2:2
Malinois—Burgeois 0:2
RWD Molenbeek—Lokeren 3:1
Beerschot—Antwerpen 2:5
Liegeois—Charleroi 3:2
La Louviere—Standard Liege 0:1
Lierse—Ostend 0:1
Bruges—Malines 0:2
Waregem—Berchem 3:1
Standard hefur nú fengið fimm
stig, en Charleroi eitt stig, efst er
RWD Molenbeek með 10 stig —
hefur unnið aila sina leiki. —BB
Visir. Fimmtudagur 11. september 1975.
Rússneski björninn komst
aðeins einu sinni í gegn!
Fróbœr markvarzla og varnarleikur íslenzka liðsins kom í veg fyrir stórsigur Rússa
Með allt að 10 menn i vörn tókst
íslenzka landsliðinu íknattspyrnu
að halda sovézka landsliðinu i
skefjum i slðari leik liðanna i
undankeppni olympiuleikanna á
Leninleikvanginum í Moskvu i
gær. Aðeins einu sinnLtókst rúss-
neska birninum að koma knettin-
um i netið hjá islendingunum, og
var það skömmu fyrir lok fyrri
hálfleiks — eins og i leiknum við
Belgfu I Liege á laugardaginn
var.
Fyrirfram var búizt við, að is-
lenzka liðið fengi „flengingu” i
þessum leik — alla atvinnumenn-
ina okkar vantaði og menn orðnir
þreyttir eftir tvo erfiða leiki og
löng ferðalög siðustu vikuna. Þar
við bættist, að þeir léku ekki við
neina áhugamenn, eins og Rúss-
arnir vilja kalla sig, heldur 100%
atvinnumenn, sem hafa það ekk-
ert siöur en beztu atvinnumenn
annarra landa.
Það kom lika strax fram i
leiknum, að við atvinnumenn var
að etja. Rússarnir — hvattir til
dáða af um 20 þúsund áhorfend-
um — hófu strax stórsókn, og
máttu islenzku varnarmennirnir
kalla á alla tiltæka aðstoð frá hin-
um, sem framar voru, til aö
halda þeim i skefjum.
Hver sóknin af annarri buldi á
vörninni, en þar var skipulagið
upp á það bezta, og ekkert gekk
hjá Rússunum. Ef varnarmenn-
irnir náðu ekki að stööva þá, sá
Arni Stefánsson um að gripa inn i
— eða þá stangirnar, en tvivegis
„björguðu” þær islenzka liðinu.
Sem dæmi um sóknarþunga
Rússanna, fengu þeir einar 16
hornspyrnur i leiknum, en Islend-
ingarnir aðeins tvær. Tækifæri ts-
lendinganna voru sárafá — það
bezta kom i fyrri hálfleik, er
Hörður Hilmarsson sendi á Teit
Þórðarson, sem skallaði yfir úr
opnu færi.
Sigurmark Rússanna kom á 40.
minútu leiksins. Einn af beztu
mönnum liðsins — Minayev —
komst þá að vltateigshorninu og
sendi snúningsbolta i netið, sem
Arni Stefánsson réð ekki við. t
siðari hálfleiknum átti Minayev
mörg skot á markið — eins og
fleiri i liðinu — en tókst aldrei að
skora.
Framlina Rússanna þurfti að
taka á öllu sinu til að komast i
gegnum islenzka varnarmúrinn,
og þegar það tókst, var uppsker-
an litil, segir i fréttaskeyti frá
Reuter i morgun.
Þar er ekki getið um einstaka
menn, en samkvæmt upplýsing-
um frá AP báru þeir af i islenzka
Pólverjar léku
Hollendinga grótt
. Pólverjar unnu sannfærandi
sigur á Hollendingnum I Evrópu-
keppni landsliða i knattspyrnu i
gærkvöldi 4:1. Leikið var I Chor-
zow iPóllandi og voru áhorfendur
um 100 þúsund.
Pólverjarnir höfðu umtals-
verða yfirburði I leiknum og kom-
ust þeir i 4:0 áður en Hollending-
unum, sem höfðu þá Johan Cruyff
og Johan Neskens I liði slnu, tókst
að svara fyrir sig.
Mörk Póllands skoruöu Grze-
gorz Lato, Robert Gadocha og
Andrej Szarmach tvö, en mark
Hollands gerði Van der Kuylen.
Pólverjar hafa þar meö náð
forystunni íriðlinum, en þeir eiga
eftir að ieika við Holland I Hol-
landi og bæði liðin eiga eftir að
leika viö Itali, sem llka eiga tals-
verða möguleika.
Staðan er nú þessi:
Pólland 4 3 1 0 9:2 7
Ilolland 4 3 0 1 11:7 6
ítalla 3 111 2:3 3
Finnland 5 0 0 5 3:13 0
liöinu Ami Stefánsson, Marteinn
Geirsson, Björn Lárusson og Jón
Pétursson, sem var fyrirliði i
þessum leik. Annars er íslenzka
liðinu hrósað fyrir baráttuna og
vel skipulagðan varnarleik, sem
hefði verið það eina rétta á móti
stórveldinu.
Ferðin kostaði ó
fjórðu milljón!
„Hún verður okkur geysilega
dýr þessi ferö,” sagöi Friöjón B.
Friöjónsson gjaldkeri Knatt-
spyrnusambands islands, er viö
ræddum við hann um kostnað-
arhliðina á ferö landsliðsins til
Frakklands, Beigiu og Rúss-
lands, skömmu áður en lands-
liðið hélt frá Belgiu á sunnu-
dagsmorguninn.
„Farseðlarnir fyrir hópinn i
þessa ferð kostuðu okkur um
þrjár milljónir, og er það stærsti
útgjaldaliðurinn. Hótelkostnað-
ur og fæði er að mestu greiddur
af þeirri þjóð sem við leikum
viö, en um það var samið um
leið og leikdagana. í staðinn sá-
um við um hótelkostnaðinn þeg-
ar þeir heimsóttu okkur, svo
þetta kemur svipaö út.
Fyrir utan þetta kemur ýmiss
annar kostnaður. Get ég nefnt
sem dæmi, aö viö höfum orðiö
aö kaupa meöul, sáraumbúöir
og annaö sllkt fyrir um 70 þús-
und krónur. Margt annað bætist
svo ofan á, og er ekki fjarri lagi
að kostnaöur við ferðina verði
um 3,5 til 4 milljónir.
Ee held að viö komum til með
að ná endum saman sem þó er
ekki alveg komið i ljós. Innkom-
an á leikina viö þessar þrjár
þjóðir heima var nokkuð góð, og
vonumst við til, að hún dekki
allan kostnað okkar viö þessa
löngu og ströngu ferð.” — klp—^
1FORYSTU
■
GRANADA
árgerð 1976
Verð frá kr.
2,080,000,-
Verð til at-
vinnuhílstjóra
FORD
SVEINN EGILSSON HF
FORD HÚSINU SKEIFUNN117 SÍMI 85100