Vísir - 11.09.1975, Qupperneq 13
Visir. Fimmtudagur 11. september 1975.
13
Fyrsta skiptið
— heitir ný bók, sem vekur heimsathygli, en þar skýra 28
frœgar persónur fró fyrstu kynferðisreynslu sinni
„Mae West var þrettán ára, þegar hún missti
meydóm sinn, standandi á baktröppunum heima
hjá sér.
Gabb-rithöfundurinn, Clifford ‘irving, hafði
sín fyrstu kynmök við konu sitjandi á salernis-
skái.
Og það var brjóstamikii blues-söngkona, sem
kenndi Liberace, að Iffið ætti sér fleiri hliðar en
rétt aðeins píanóleik — og skildi svo varalit eftir
á hvítu buxunum hans fínu," segir í fréttaskeyti
frá Reuter.
Þessar hreinskilnislegu játn-
ingar er allar að finna i nýrri
bók, sem ber heitið „Fyrsta
skiptið”. Bera þær með sér,
hvaða tímamót þaö eru i lifi
manneskjunnar, sem bókin
fjallar um. Hún er byggð á viö-
tölum við 28 manns, allt heims-
frægar manneskjur, sem opin-
bera lesendum það, sem hingað
til hefur heyrt til allra leyndustu
einkamálum hvers og eins.
Það hafði kvisazt út, að þessi
bók væri i smiðum, og hefur
hennar siðan verið beðiö með
nokkurri eftirvæntingu. Þykir
hún likleg til að vekja heimsat-
hygli.
Ekki eru endurminningar
allra viðtalenda bókarinnar jafn
angurværar af fyrstu kynferðis-
reynslu þeirra.
Leikkonan, Dyan Cannor^
minnist þess, að meydómsmiss-
irinn vakti hjá henni andstyggð
á karlmönnum og leiddi hana út
i fikniefnanotkun fyrst en siðan
vaknaði hjá henni trúaráhugi,
sem reif hana upp úi; fikniefnun-
um.
Hún leitaði hælis með trúar-
iðkanir sinar i afskekktu heim-
ili þeirra hjóna, Roy Rogers,
kúrekaleikara og Dale Evans.
„Ég leyfði ekki karlmanni að
snerta mig i langan, langan,
langan tima, fimm eða sex ár,”
er haft eftir henni i bókinni.
Leikkonan var sannfærð um,
að enginn vildi lengur við henni
lita af þvi að hún var ekki lengur
hrein mey. En Cary Grant kom
henni þá til hjálpar og varð
fyrstur til að leiða hana inn á
annan hugsanagang.
En eftir að slitnaði upp úr
hjónabandi þeirra „þyrmdi
þetta allt yfir mig aftur, sektar-
kennd og hvað eina” ..og hún
hallaði sér að fikniefnunum á
ný, LSD, kókain, marijúana, og
fleira.
Saga hennar fékk þó góðan
endi. Með aðstoð sálfræðinga
„get ég nú i fyrsta sinn notið
kynlifsins fordómalaust,” segir
Cannon.
Kyntáknið, Mae West, sem nú
er 83 ára að aldri, ljóstrar upp:
„Ég hef ekki verið karlmanns-
laus lengur en viku frá þvi að ég
var 13 ára gömul. Ég get ekki án
þeirra verið og hef notið
margra. En ég hef ekki fengið
alla þá menn, sem ég hefði vilj-
að.”
Clifford Irving, sem skáldaði
upp ævisögu margmilljóna-
mæringsins, Howard Hughes,
og varð heimsfrægur fyrir, þótt
tiltækið kostaði hann fangelsis-
vist, minnist sinnar fyrstu
reynslu i þessari bók. „Það var i
baðherberginu á setu salernis-
skálarinnar með þessari lika
beinastöng. — Það var hálfmis-
heppnað. Ég man, að ég vildi
kyssa hana, og henni fannst ég
bilaður að vera með svoleiðis
tilþrif.”
Liberace telur sig heppnari,
en það var söngkona, sem leiddi
hann fyrstu sporin, þrettán ára
gamlan. En vegna þess að hún
klindi varalit i buxurnar hans,
Dyan Cannon
var hann með lifið i lúkunum af
hræðslu viö að móðir hans
mundi komast aö þvi. — „Ég
held annars, að mér hafi verið
nauðgaö,” segir hann.
Leikkonan, Debbie Reynolds,
segist hafa verið jómfrú, þegar
hún 23 ára giftist söngvaranum,
Eddie Fisher. — „Ég var jóm-
frú, þegar ég giftist, eins og
móðir min var á undan mér, og
móöir hennar á undan henni.”
Hún segist ekki einu sinni
hafa kunnaö að kyssa rétt.
Liberace
Mae West
Debbie Reynoids
22. ágúst, föstudagur.
ÆVINTÝRAFERO UAA BREIDA-
FJORO. Vinningshafi býður með sér
f jórum gestum í flugferð með Vængjum
til Stykkishólms. Þaðan er svo siglt um
eyjasund Breiðafjarðar. Hádegisverður
á Veitingahúsinu Nonna innifalinn. Kom-
ið aftur að kvöldi.
VINNINGSNÚAAER: 5387.
23. ágúst, laugardagur.
Haustfegurðá Þingvöllum. Vinningshafi
og gestur hans dvelja að Valhöll á Þing-
völlum frá föstudegi til surinudags, þar
sem þeir njóta þjónustu hótelsins i hús-
næði, mat og drykk.
VINNINGSNÚAAER: 7942.
24. ágúst, sunnudagur.
FJÖLSKYLDUFE RÐ AD HÚSA-
FELLI. Gerð er ferð að Húsafelli 12.-14.
september þegar sérkennilegt umhverf ið
skrýðist haustlitum. Vinningshafi fær
sumarhús til ráðstöfunar, hentugt fyrir
4ra manna fjölskyldu, með sundlaug og
gufubaði i næsta nágrenni.
VINNINGSNÚAAER: 15921.
25. ágúst, mánudagur:
SKEAAAATISIGLING UAA VIDEYJAR-
SUND. Vinningshafi býður með sér 15
vinum og kunningjum i skemmtisiglingu
með Akraborginni á sunnudagseftirmið-
degi kl. 3. Siglt er um Viðeyjarsund og
staldrað við á Akranesi, og innifalið er
kaffi og með þvi á Hótel Akranes.
VINNINGSNÚAAER: 18686.
26. ágúst, þriðjudagur.
VETRARFEGURD VIÐ SKJALF-
ANDA. Ferðfyrirtvo með Flugleiðum til
Húsavikur, þar sem dvalið er á Hótel
Húsavik frá föstudegi til sunnudags. Or-
stutt i fagurt skiðaland.
VINNINGSNÚAAER: 21481.
27. ágúst, miðvikudagur.
AAEÐ 18 GESTI „HVERT A LAND
SEAA ER". Vinningshafi fær til umráða
18 manna langferðabif reið með bílstjóra,
i 3 daga. Þannig getur hann boðið með
sér fjölskyldu og vinum í skemmtiferð.
VINNINGSNÚAAER: 24756.
28. ágúst, fimmtudagur.
A NORDURHEIAASKAUTI. Að þessu
sinni ferðast vinningshaf i og gestur hans
með Flugleiðum til Akureyrar, þar sem
gist er i 2 nætur á Hótel Varðborg. Þaðan
er gerður „heimskautaleiðangur" og
Grimseyingar sóttir heim.
VINNINGSNÚAAER: 27036.
29. ágúst, föstudagur.
A ESKIAAOASLODUAA. Ferð næsta
sumar fyrir tvo á eskimóaslóðir á Græn-
landi. Flogið verður með Flugleiðum til
Kulusuk og eskimóaþorpið Kap-Dan sótt
ar. Komið aftur að kvöldi.
VINNINGSNÚAAER: 33914.
30. ágúst, laugardagur.
LEIKHÚSFERD TIL AKUREYRAR.
Vinningshafi og gestir hans fljúga með
Flugleiðum til Akureyrar á laugardegi,
þar sem búið verður á Hótel KEA. Um
kvöldið eru vinningshafar gestir leik-
félagsins. Komið aftur á sunnudags-
kvöldi.
VINNINGSNÚAAER: 41473.
31. ágúst, sunnudagur.
HRIKALEIKI HORNSTRANDA. Ferð
með Flugleiðum fyrir tvo til isaf jarðar.
A Isafirði er búið á Hótel AAánakaffi, og
gerður leiðangur með Flugfélaginu Ern-
ir I útsýnisflug yfir Hornstrandir.
VINNINGSNÚAAER: 54258.
1. september, mánudagur.
FÆREYJAFERÐ. Flug með Flugleið-
um fyrir tvo til Þórshafnar og dvöl á
Hótel Hafnia föstudag til þriðjudags.
Skipulagðar skoðunarferðir bíða gest-
anna í Þórshöfn.
VINNINGSNÚAAER: 31597.
2. september, þriðjudagur.
TIZKA I FARARBRODDI. Við bjóðum
vinningshafa og gesti hans til Kaup-
mannahafnar á kynningu á skandina-
viskum tizkufatnaði, „Scandinavian
Fashion Show". Farið verður með Útsýn
og staldrað við frá föstudegi til mánu-
dags. Hótel og morgunverður innifalinn.
VINNINGSNÚAAER: 63005.
3. september, miðvikudagur.
ÚTSYNI YFIR LANDID. Útsýnisflug I
einn dag með nýrri Cessna 310 frá Flug-
þjónustu Sverris Þóroddssonar. Innifald-
ir eru 4 flugtímar og vinningurinn gildir
fyrir vinningshafa og 3 gesti.
VINNINGSNÚAAER: 43459.
4. september, fimmtudagur.
Skoðunarferð fyrir tvo til Vestmanna-
eyja með Flugfélagi Islands. Farið að
morgni, máltið á Hótel Vestmannaeyj-
ar. Komið aftur að kvöldi.
VINNINGSNÚAAER: 68217.
5. september, föstudagur.
VIKA I VATNSFIRÐI. Vikudvöl fyrir
tvo i landnámi Hrafna-Flóka. Dvalið
verður á hinu glæsilega hóteli þelrra
Vatnsfirðinga, Hótel.Flókalundi. Fæði er
innifalið.
VINNINGSNÚAAER: 47589.
6. september, laugardagur.
VIKA I LUNDÚNUAA. Vinnlngshafl fer
I ferð með útsýn til Lundúna, þar sem
dvalið verður i viku á Hótel Cumberland,
rétt við Hyde Park Corner. AAorgunverð-
ur innifalinn.
VINNINGSNÚAAER: 72015.
7. september, sunnudagur.
Ferð til Luxemborgar með Flugleið-
um. Þaðan verður f logið til Bahamaeyja
og svo aftur til Luxemborgar og síðan
heim.
VINNINGSNÚAAER: 58433.
AÐALVINNINGUR
Tveggja vikna ferð til Bangkok I Thai-
landi fyrir tvo með Útsýn. Ævintýraslóð-
ir, sem fáir Islendingar hafa lagt leið
sina um.
VINNINGSNÚAAER: 60421.
UALÞJÓÐLEG VÖRUSÝNING REYKJAVÍK 1975