Tíminn - 01.11.1966, Page 3
ÞRIÐJUDAGUR 1. nóvember 1966
TÍMINN
Skalli skrifar:
Óvinur Reykjavíkur?
I. Þegar Framsóknarmaður sting-
ur niður penna um málefni Rvík-
ur, virðist einJiver fiðringur fara
um stjórnendur borgarinnar. Þeir
halda því nefnilega biákalt fram,
að Framsó'knarmenn séu óvinir R-
víkur. Það hefur sézt á prenti í
stóra blaðinu og einnig komið
fram í útvarpsumræðum. Rök eru
ekki nefnd, en samt er þetta full-
yrt af onkkrum Sjálfstæðismönn-
um, ekki í anda lýðræðis heldur
í klafa einræðis. Sjálfstæðismenn
þykjast vera miklir lýðræðissinn-
ar, en oft á tíðum springur skelin
utan af þvi hjali og einræðið kem-
ur skýrt í ljós. Ég vil nefna í því
sambandi, að engin tillaga, eða
að minnsta kosti mjög fáar, minni-
hlutaflokkunum í borgarstjórn
fæst samþykkt. Þær eru þó alls
ekki fáar, sem fluttar eru. Nei,
alitaf er rökstudda dagskráin til-
búin og hún samiþykkt með 8 atkv.
gegn 7.
En því fer fjarri, að þessir
menn séu almáttugir eða óskeik-
ulir. Skemmzt er að minnasit
greiðsluvandræða borgarinnar upp
á 30 miiljónir. Erfiðleikarnir sam-
anstóðu af ýmsum þáttum og al-
þjóð fékk að heyra frá Geir, að
hann hefði ekki úrræði til þess að
kippa þessu í lag. Einn þátturinn
var það, sem nefnt var greiðslu-
vandræði nágrannasveitarfélaga
(fleirtala). Þar á meðal hlaut
Kópavogur að vera og var hans
skuld 4 milljónir. Nú eru 4 millj-
aðeins 13.3% af 30 millj. Eftir
eru 86.7%. Venjulegt fólk myndi
halda, að ráðizt yrði af krafti á
höfuðástæðu vandræðanna þ. e.
867%in, en það var öðru nær.
Mlb. birti í næstu tölublöðum eftir
fréttaauka Geirs greinar á forsíðu
og í forystugrein og viðtal við
Sjálfstæðismann úr Kópavogi og
þá voru 13.3%in útbásúnuð og
teygð og talin höfuðmeinsemdin.
Svo langt gekk þessi vefur, að bæj
arstjóri Kópavogs varð að birta
leiðréttingagrein, svo að fólk átt-
aði sig á hlutunum. Þótt Geir tal-
aði um nágrannasveitarfélög réð-
ist Mbl. aðeins á Kópavog á sinn
einræðislega hátt. Jafnvel and-
mælti ritstj. Mbl. greiðslutilboðum
sem voru nefnd í grein Hjálmars
bæjarstjóra, þótt víðsfjarri sé, að
tilboðum eigi að skila til ritstj.
Þar hljóta t.d. rafveitustj., vatns-
veitustj., o.fl. að standa nær held-
ur en ritstjórinn Þessi vinnubrögð
ásamt fleiru benda til að lýðræðis
hjal flokksverksmiðju Sjálfstæðis
manna sé aðeins þunn skel.
II. Það hefur talsvert stungið
mig í augun að sjá bifreiðina
R-15412 á götum borgarinnar.
Þetta er heiðgul Trader flutninga-
bifreið, yfirbyggð. Við skrásetn-
ingarnúmerin að framan eru
merki sem sýna, að bifreiðin er
eign borgarinnar. Mig minnir, að
þessi merki séu líka á báðum
hurðum hennar. Þetta er nú allt
í lagi, en þá er komið að vfir
byggingunni. Á báðum hiiðum
og á tveimur stöðum að aftan eru
stærðar fletir með merki BP. Þetta
finnst mér rangt og óviðeignadi.
Það er vissulega stutt í þá hugsun
að borgarstjórnarmeirilhlutinn sé
að auglýsa fyrirtækið, en það eiga
nokkrar auðugar fjölskyldur, sem
dyggilega hafa stutt Sjálfstæðis
flokkinn. Þarna hljóta þó einhver
mistök að hafa átt sér stað og ætti
í landi, sem kennir sig við lýðræði
að vera nægilegt að skora á borg-
aryfirvöldin að láta mála rækilega
yfir þessar auglýsingar af hálfu
meirilhlutans eins og hann er ó-
skeikull að eigin áliti, en varla
hjálpar rökstudda dagskráin
þarna.
III. Þá langar mig að tala nokk-
uð um olíufélög og benzínsölur í
Rvík og koma umferðarmál þar
inn í. Allir eru sammála um, að
benzínsölur séu nauðsynlegar, en
síður um staðsetningu þeirra. Svo
illa hefur tekizt til með tvo þess-
ara staða, að steinsnar frá þeim
hefur fjöldinn allur af umferðar-
slysum- og -óhöppum orðið og við
annan er fólk mjög oft vitni af
umferðarlagabrotum. Þetta eru
sölustaðirnir BP á horni Lauga
vegar og Nóatúns og Shell innar
á Laugavegi við Bolholt. Það, sem
gerir þetta hættulega staði er að
þarna er um tvístefnuakstursgöt-
ur að ræða, sem eru mjög fjöl-
farnar, auk þess sem gatnamót eru
þarna mjög stór að minnsta kosti
•hjá BP sölunni. Þessi stóru gatna-
mót eru nógu hættuleg, þótt eigi
sé hafður þarna kumbaldi, sem
skyggir mikið á útsýni auk umferð
ar að honum og frá. Sú umferð
á að víkja fyrir aðalgötunum sam
kvæmt lögum, en hún er alltaf að
troða sér og trufla aðalumferðina,
svo að stór hætta er af. Þarna
hafa orðið mjög harðir árekstrar
þar sem t. d. sjúkra- og slökkvi-
bifreiðir hafa farið yfir gatnamót
in á rauðu Ijósi. Örugglega hefði
munað um það, ef útsýni hefði
verið gott. Það ætti að vera rétt-
mæt krafa, að þessi sölustaður
yrði fjarlægður og þó fyrr hefði
verið.
Máli skiptir, hvort um einstefnu
eða tvístefnuakstursgötur er að
ræða. Augljóst er, að mi'klu minni
hætta er, þar sem er einstefnu-
akstur. Þá er aðeins umferð frá
annarri hliðinni og auðvelt að
gæta hennar. Slíku er til að dreifa
við sölustaði Esso í Hafnarstræti.
Samt þótti borgarstjórnarmeiri-
hlutanum mikil þörf að loka þar
umferð út og inn í Hafnarstrætið.
Á fyrrnefndum stöðum á Lauga-
veginum er tvistefnuakstur, einnig
stór gatnamót og mikill umferðar
þungi og umferðarhætta. Skilyrð-
in eru sem sagt öll fyrir bendi,
en ekki framtakssemi tii þess að
flytja þessa staði. Enda er þarna
um gæðinga Sjálfstæðisflokksins
að ræða, sem borgarstjórnarmeiri
hlutinn þorir ekki að styggja,
þrátt fyrir hættu, sem steðjar að
vegfarendum. Einnig er fjarri þvi,
að viðskiptalega sé þörf á þessum
tveimur stöðum, svo margir aðrir
eru til og ígildi þessara yrði fljót-
lega sett upp annara staðar. Krafa
mín er sú að loka eigi strax ? dag
og rífa BP-kumbaldann á morg-
un.
IV. Margt fleira mætti tala um
svo sem nýlega bakdyra úthlutm
lóða hér f borg eða þá viðreisn-
ina í heild eða einstaka hluta
hennar. Framanritað verður sjálf
sagt nefnt óvinskapur við Rvik,
en samt ekki af öUum.
NAUÐUNGARUPPBOÐ
annað og síðasta, á hluta í Grensásvegi 22 hér í
borg, þingl. eign Rafgeislahitunar h.f. fer fram
á eigninni sjálfri fimmtudaginn 3. nóvember 1966
kl. 2V2 síðdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í að byggja 1. áfanga Árbæjarskóla
við Rofabæ hér í borg.
Útboðsgögn eru afhent í skrifstofu vorri, Vonar-
stræti 8, gegn 5.000,00 króna skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn
24. nóvember nk. kl. 11.00 f.h.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar
Husqvarna
Haglabyssur
tvíhleypur nr. 12.
Rifflar
6 skota cal 22 L. R.
/
\mnai Sfygemon kl
Suðurlandsbraut 16
Sími 35200.
BLAÐBURDARFOLK
óskast í Kópavogi, austurbæ.
Talið við afgreiðsluna í Kópavogi, sími 40 748.
Vetrarmaður óskast
Fjárræktarbúið að Hesti í Borgarfirði vill ráða dug
legan og áhugasaman mann til fjárgæzlu í vetur.
Upplýsingar í simstöðinni Hesti.
3
Íslenzkur heimilisiðnaður, I
Laufásveg 2.
Höfum mikið úrva' af lal-
legum ullarvömm. silfur-
og leirmunum tréskurði
batik munsturnókum og
fleira
íslenzkur heimilisiðnaður,
Laufásveg 2.
FRÍIVS ERKI
hVnr nven isienzki fri
merki sem Dér sendið
mer fáið þér 3 erlend
Sendið minst 30 stk
JÓN AfíMARS
PO Bo> 965,
Reykjavík.
Brauðhúsíð
Laugavegi 126.
Smurt brauð
Snittur
Cocktailsnittur,
Brauðtertur
Símr 24631.
SKÓR-
INNLEGG
Smíða Orthop-skó og inn-
legg eftir máli Hef einnie
tilbúna barnaskó, með og
án innleggs.
Davíð Garðarsson,
Orthop-skósmiður.
Bergstaðastræti 48,
Sími 18893
Látið okkur stilla og herða
upp nýju bifreiðina Fylg
izt vel með bifreiðinni.
BlLASKODUN
" \
Skúlagötu 32. símt I310G
Skúli J. Pálmason,
héraðsdómslöqmaður
Sölvhólsgötu 4,
Sambandshúsinu 3 hæð
Simar 12343 og 23338 I
HllSBYGGMDlIR
Smíðum svefnherergis-
og eldhúsinnréttingar.
f
1
I
I
SÍMI 32-2-52.
Jón Eysteinsson,
lögfræðingur.
Lögfræðiskrifstofa
Laugavegi 11,
sími 21916-