Tíminn - 01.11.1966, Blaðsíða 5

Tíminn - 01.11.1966, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 1. nóvember 1966 TÍMINN 5 Úfgefandi: FRAMSÓKNARIFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón tíelgason og Indriði G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Aug- lýsingastj.: Steingrímur Gíslason. Ritstj.skrifstofur t Eddu- húsinu, símar 18300—18305. Skrifstofur: Bankastræti 7. Af- greiðslusími 12323. Auglýsingasími 19523. Aðrar skrifstofur, simi 18300 Áskriftargjald kr. 105.00 á mán. tnnanlands — í lausasölu kr. 7.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h. f. 11. þing S.U.F. 11. ingi Sambands ungra Framsóknarmanna lauk á sunnudag. Þingið sóttu um 130 fulltrúar hvaðanæva að á landinu. Var þetta hið myndarlegasta þing, er gerði margar merkar ályktanir um þjóðmálin. Var einhugur ríkjandi á þinginu um málefnin og má sérstaklega benda á, að þingið gerði nýjar ályktanir um varnarmálin, sem samþykktar voru í einu hljóði. í ályktuninni um varnarmálin sögðu ungir Framsókn- armenn, að þeir teldu aðild íslands að Nato eðlilega að óbreyttum ástæðum, en vísuðu jafnframt til fyrirvar- ans, sem settur var af íslendinga hálfu, er ísland gerðist aðili að Nató, þ.e., að á íslandi væri ekki her á friðar- tímum, að það væri á valdi og samkvæmt mati íslend- inga sjálfra, hvenær hér væri her og hvernig hann væri búinn og íslendingar hefðu ekki í hyggju að stofna her. Ungir Framsóknarmenn vilja, að herinn hverfi úr landi svo fljótt sem tiltækilegt og skynsamlegt þykir og ís- lendingar taki við rekstri ratsjárstöðvanna og gæzlu nauðsynlegra mannvirkja Nato hér á landi. Vill þing ungra Framsóknarmanna, að þegar verði hafnar viðræð- ur við aðildarþjóðir Atlantshafsbandalagsins um gerð fjögurra ára áætlunar um brottför bandaríska hersins af íslandi og að þjálfaðir verði íslenzkir sérfræðingar, sem tækju við starfrækslu ratsjárstöðvanna og gæzlu mannvirkja stig af stigi, samhliða því, að bandarískum hermönnum á íslandi yrði fækkað jafnt og þétt. Kostn aðurinn af þessum breytingum yrði greiddur af Nató- ríkjunum sameiginlega. Komi til ófriðar, sem vonandi verður aldrei, hyrfi hið íslenzka gæzlulið frá gæzlustörf- um og tæki þess í stað við sérstöku hlutverki á sviði almannavarna, og Nató við mannvirkjum. Það þarf ekki að koma á óvart, að ungir Framsóknar- menn álykti á þennan hátt um varnarmálin. í fyrrasum- ar ritaði Tómas Karlsson greinar um þessi mál hér í blaðið, þar sem þessi stefna kom fram og var rækilega rökstudd og sýnt fram á, að það væri sjálfsagt og auð- velt íslendingum að taka við því raunverulega hlutverki, sem varnarliðið hefði hér — og til þess þyrftu íslending- ar engan her. Það er líka ljóst nú, að það eru fleiri en ungir Framsóknarmenn, sem þessari stefnu vilja fylgja fram. Þess verður greinilega vatt í öðrum stjórnmála- flokkum. Fyrirvarinn, sem íslendingar settu um aðild sína að Nató og fullt samkomulag var um með Sjálfstæð- isflokknum, Framsóknarflokknum og Alþýðuflokknum og undirstrikaður var rækilega af þáverandi utanríkis- ráðherra, Bjarna Benediktssyni, er í fullu gildi og á hann má aldrei ryk falla- En þá er spurningin, hvernig á að gera hann virkan og framkvæmanlegan við ríkjandi aðstæður. Hafi menn ekki svar við því, er ekkert lík- legra en hér verði bandarískur her um aldur og ævi. Ungir Framsóknarmenn hafa nú gefið sitt svar. Það er líklegt, að þeir verði margir, sem vilja taka undir við þá. Samtök ungra Framsóknarmanna eru sterkustu stjórn- málasamtök ungs fólks á íslandi. Á ályktanir þessara samtaka er því hlustað. Þessi samtök hafa starfað vel og verið Framsóknarflokknum mikill styrkur. Örlygur Hálfdanarson lét nú af formennsku samtakanna og Jón Abraham Ólafsson af varaformennsku eftir að hafa gegnt embættum sínum með mikilli prýði í 6 ár samfleytt. Tíminn vill þakka þessum mönnum fyrir góð störf i þágu flokksins og býður hinn nýja formann, Baldur Óskarsson, velkominn til samstarfs- Valdhafarnir mega ekki hafa van- trú á landi og þjóð að leiðarljósi Útdráttur úr ræðu Einars Ágústssonar alþingismanns á fundi í Framsóknarfélagi Rvíkur 25. októher síðastliðinn. Fundarefnið liér hefur verið nefnt: Atvinnuvegirnir eftir 7 ára viðreisn. Forsætisráðherrann nefndi framsöguræðu sína á Varðarfundi um daginn: Á vega mótum velgengni og vandræða og sjá auðvitað allir, að hér er um sama málefnið að ræða. Rík isstjórnin hefur búið við hagstæð skilyrði hvað aliar ytri aðstæður snertir, samt erum við nú að hennar eigin dómi staddir á vegamótum, þar sem vandræði eru til annarar handarinnar. Menn þurfa auðvitað ekki að staldra lengi við til þess að koma auga á það, sem þessu veldur- Hér á stjórnarstefnan síærstan hlut að máli. f sumar var mál flutningur ráðherranna sá, að ís- lendingar væru svo sjálfstætt fólk, að þeir þyldu ekki að þeim væri stjórnað. Þetta hefur eflaust átt að sætta fólk við þá staðreynd sem allir sáu, að ráðherrarnir hafa alveg kiknað undir þeirri byrði, sem þeir hafa árangurs laust reynt að axla i 7 ár, að stjórna landinu. Hér hefur verið látið reka á reiðanuin, stefnan svonefnda þverbrotin í öllum meginatriðum, það sem mest var fordæmt á fyrstu mánuðunum hefur orðið þrautalending til að verjast áföllum. Dýrtíðinni átti að halda í skefjum, það var fyrsta boðorðið og jafnframt það sem allra verst hefur verið hald ið. Óðaverðbólga hefur geisað og afleiðing þess er sú, að atvinnu vegimir eru á heljarþröminni. Peningapólitík og ráðstafanir gegnum bankana áttu að vera þýðingarmikill hlekkur í fram kvæmd stjórnarstefnunnar, en afskiþtin af þeim hafa tekizt þannig, að vegna ónógs fjár- magns er fjöldi einstaklinga o; fyrirtækja nú að gefast upp. Mönnum eru sjálfsagt enn í fersku minni umræður um þau greiðsluvandræði, sem Bograr- sjóður Reykjavíkur hefir.* búið við undanfarna mánuði. Borgar stjórinn gaf ýmsar skýringar á því, hvað þessu ylli, og sumar þeirra voru harla léttvægar. En ein skýring hans var alveg áreið anlega rétt: Landsbankinn neit- aði um aukinn yfirdrátt, fyrir- greiðsla Reykjavíkurborgar . í þessum viðskiptabanka sínum var því sem næst hin sama í krónutölu og árið áður, þrátt fvr ir hækkaða fjárhagsáætlun, aukna fjárþörf og örugga vissu fyrir meiri tekjum eíðar á árinu en nokkru sinni fvrr. Halda menn að bmkastjórn Landsbankans hafi íieitað um 20—30 milljón króna viðhótavlán í stuttan tíma vegna vantrausts á endurgreiðslugetu borgarsjóðs eða viljaleysis til að firra borgarstióra þeim álitshnekki, sem af greiðsluvandræðumim leiddi? Eg héld ekki. Eg held að Landsbankinn hafi neitað vegna þess, að hann taldi sig ekki geta greitt úr þessum vand.a vegna fjárskorts. En af hverju er þetta svona? Af hverju getur þessi stóri og sterki banki ekki lánað Reykia vík þá peninga, sem barna þurfti Einar Ágústson í tiltekinn, stuttan tíma? Af hverju geta viðskiptabankarnir yfirleitt ekki greitt úr tímabundn um rekstrarörðugleikum við- skiptamanna sinna? Ástæðan ,er fyrst og fremst stjórnarstefnan, ástæðan cr framar öðru sparifjárbindingin og þær miklu kvaðir, sem ríkis valdið leggur á viðskiptahankana. Öllum viðskiptabönkum og sparisjó.ðum er nií gejrt að greiða til Seðlabankans í' sparifjárbind ingu 30% af nýju sparifé. Til viðbótar verða þeir að kaupa ríkistryggð skuldabréf f.vr ir 10% af sparifjáraukningunni. Þessi 40% sem viðskiptabönkun um hefur verið gert að frysta á þennan hátt nema nú einhvers staða rnálægt 2000 miiljónum króna. Nú er ég ekki að segja að sparifjárbinding geti ekki ált rétt á sér út af fyrir sig. Slik binding er hagstjórnartæki, sem víða hefur verið gripið til í þvi skyni að draga úr þcnslu. En ég vil halda fram að svona mikil binding á öðrum eins verð bólgutímum og gengið hafa yfir þjóðina að undanförnu, eigi ekki rétt á sér vegna þess, að spari fiáraukningin er ekki raunvcru leg. Hún er fyrst og fremst krónu fjölgun en ekki raunveruleg verð mætasköpun, sem því svarar. Maður, sem átti t. d. 100 þús. krónur í sparisjóði fyrir svo sem einum áratug, þarf sjálfsagt að eiga 1 millj. kr. til þess að vera jafnt settur í dag. Afleiðingin af því, að svo mikið er bundið af sparifénu, þessu sparifé, sem ekki er ný verðmæti heldnr fleiri krónur, er sú að bankarnir verða að takmarka fyrirgeiðslu sina til fyrirtækjanna í mörgum t.ilfellum við sömú krónutölu og árið áður, en þótt forsvarsmenn fyrirtækj anna geti sannað mcð óyggjandi rökum að tilkostnaðurinn hafi vaxið um einhverja ákveðna prö sentu vegna dýrtíðaraukningar- innar. Þetta er það, sem orsakar það ekki hvað sízt, að ýmis fyrirtæki eiga nú í meiri rekstrarfiárörðug leikum en nokkru sinni fyrr- Þrátt fyrir þetta heldur ríkis sjóður ótrauður áfram að keppa við bankana um spariféð með því að bjóða fram ríkistryggð skuldabréf með þeim kjöruin, sem engum banka er leyfilegt að bjóða, vísitölutryggð með há um vöxtum. Þessi bréf renna æv inlega út eins og heitar lummur, að undanförnu hafa þau selzt upp fyrsta morguninn sem þau hafa verið fáanleg. Einnig á þennan hátt rýrast möguleikar viðskipta bankanna til útlána. Þannig er það, að viðskiptabank arnir eru nú flestir ef ekki allir fjárvana. Þeir verða að vísa ósk um viðskiptamanna sinna um aukna fyrirgreiðslu á bug, enda þótt forstöðumenn fyrirtækja geti sannað með óyggiandi rök um að þau geti ekki haldið áfram að starfa nema að fá lán in hækkuð a. m. k. scm vcrð bólguvextinum svarar. Útlánaaukning bankanna hefur á þessu ári orðið til ágústloka rúmar 1000 millj. kr. en var 941 milljón á sama tíma í fyrra. Meg inástæða þessarar hækkunar mun vera hversu mikið er nú af óseldum sjávarafurðum í landinu. Ennfremur er alveg vafalaust að vegna rangra inn- kaupa hefur hrúgazt upp í land- inu ótrúlegt magn af ólíkasta skrani, sem enginn veit hveriær muni seljast, eða hvort yfirleitt nokkur vilji kaupa. Er vafalaust að verulegt fjármagn er bundið á þennan hátt. Með hliðsjón af þessu er sýnt, að hækkun útlána er ekki næg til þess að fyrirtæki getj haldið áfram rekstri. Mörg beirra verða að loka. Ráðaleysi valdliafanna gagnvart verðbólgunni er svo al- gert að mörg stór fyrirtæki, sem fram undir þetta hafa verið hornsteinar íslenzks efnahagslífs eru nú að því komin að hætta rekstri sínum og sum þegar bú in að loka. Um einstakar greinar atvinnu lífsins hafa aðrir ræðumenn rætt hér í kvöld, svo ég get sleppt því að mestu. Þó langar mig til að segja liér örfá orð um iðn aðinn. Þessa atvinnugrein tekur forsætisráðherrann fyrir í vega mótaræðunni og segir þelta m. a. „En ef við viljum eins og gert hefur verið, veita innlendum iðnaði vernd, þá kostar sú vernd það, að við verður að borga mcira verð heldur en ella fynr vöruna. Sumir, sem býsnast yfir verðbólgunni segja áð verðbólg an sé að drepa iðnaðinn. En ein mitt iðnaðurinn á sinn þátt í okkar háa verðlagi " Síðar segir í ræðunni, eins og hún er birt í Morgunblaðinu: „Við sjáum það einnig af tiltekn um dæmum, að ef íslenzkur iðn aður fellur í rúst, þá hækka er- lcndir framleiðendur sína vöru, þannig að við verðum að borga meira en elln. Þess vegna er ís- lenzkur iðnaður einn þáttur í því að halda hér uppi sérstöku og sjálfstæðu þjóðfélagi. En hann kostar það, að við verðum að hafa hærra verölag en ella." Hvað fá mcnn þá út úr þcssu? Mér virðist þarna sagt í fyrsta lagi, að íslenzkur iðnaður sé verð bólguvaldur og orsaki það, a? menn verði að kaupa dýrari vör ur en ella, væntanlega af því, að Framhald á 6. síðu

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.