Tíminn - 01.11.1966, Síða 13
ÞIUTOJUDAGUR 1. nóvember 1966
ÍÞRÓTTIR
TIMINN
ÍÞRÓTTIR
13
FRAM hefur tekið forystu i
Rvíkurmótinu í handknattleik
Alf — Reykjavík. — Fram tók|
forystu í Reykjavikurmótinu í
handknattleik með sigri gegn
Þrótti á sunnudagskvöld, 20 -9.
Hefur Fram hlotið 4 stig. Ár-
menningar höfðu möguleika á að
ná sama stigafjölda, en á síðuslu
stundu tókst Víkingum að jafna
metin og krækja í annað stigið.
Er Ármann því í 2. sæti með 3 st.
Fram átti léttan dag gegn,
Þrótti og sigraði með 11 márka!
mun, eins og fyrr segir. í hálfleik
var staðan 10-5 en í síðari hálfleik
breikkaði bilið fljótlega. Nokkur
harka færðist í leikinn undirlok-
in, og áttu báðir aðilar sök á.
Fram sýndi á köflum ágætan
!eik, en á milli gerðu liðsmenn
sig seka um mikla óvandvirkni, svo
að knötturinn tapaðist oft. Að vísu
tapaðist knötturinn stundum, þeg
ar liðsmenn reyndu hröð skyndi-
upphlaup, en þetta er atriði, sem
öll lið verða að leggja áherzlu á
í stórum sal — og fórna einhverju
i til að geta náð tökum á. Beztu
menn liðsins voru Gunnlaugur,
skoraði 7 mörk, og nýliðinn á Íín
unni, Pétur Böðvarsson, sem skor-
aði 3 mörk. Ingólfur og Guðjón
skoruðu 3 mörk hvor, Gylfi 2 og
Hinrik 1.
Lið Þróttar var sundurlaust.
Skástu menn vom Halldór Braga-
son og Haukur Þorvaldsson, sem
skoruðu 3 mörk hvor. Óli Viðar,
Erling og Guðmundur Axelsson
skoruðu 1 mark hver.
Staðan í mótinu er nú ‘þessi:
Fram 2 2 0 0 43-22 4
Ármann 2 1 1 0 25-22 3
KR 110 0 16:13 2
Valur 2 1 0 1 29-28 2
Víkingur 10 10 12-12 1
ÍR 2 0 0 2 25-39 0
Þróttur 2 0 0 2 19-33 0
Enginn íþróttalækn-
ir þegar slys ber að
Það bar við í íþróttahöll-
inni í Laugardal á sunnudaSs-
kvöldið, að ungur leikmaður
slasaðist á höfði. Þjálfari pilts
ins og starfsmenn hússins,
reyndu að hjálpa piltinum eftir
föngum, en síðan var hann
scndur í flýti á Slysavarðstof
una.
Ekki er iþróttasíðunni kunn
ugt, live alvarleg meiðsli pilts-
ins eru, en í þessu sambandi
vekur athygli, að enginn
íþróttalæknir var til staðar á
keppnisstað. Þegar Ieikir í
meistaraflokki í knattspymu
fara fram, þykir sjálfsagt að
hafa jþróttalækni á keppnis-
stað því að alltaf geta orðið slys
í íþróttum, en varðandi hand-
knattleik og aðrar inniíþróttir
— að glímu undanskilinni —
er málunum öðru vísi háttað.
Það þykir engin nauðsyn að
íþróttalæknir sé til staðar!
En með þessu háttalagi er
verið að leika sér að eldinum.
það er að vísu nokkur kostn-
aður að hafa íþróttalækni, en
hversu dýrt gæti það líka orð-
ið, að hafa lækni ekki til stað
aír? Hér með er skorað á móts-
aðila að endurskoða afstöðu
sína til þessara mála. — alf-
Systurnar skor-
Gunnlaugur Hjálmarsson skorar eitt af
mörkum sínum gegn Þrótti.
(Tímamyndir Róbart)
Alf — Reykjavík. — Systurnar
Sigrún og Björg Guðmundsdóttir,
áttu stóran dag með Val á sunnu-
daginn, þegar lið þeirra mætti Vík
ing í fyrsta kvennaleiknum á
keppnistímahilinu, því að þær skor
uðu öll rnörk Vals í leiknum, 8
talsins. Og auðvitað unnu Reykja-
Víkingum tókst aö jafna
metin á síðustu mínútu
Æsispennandi leik Ármanns og Víkings lauk með jafntefli, 12:12.
Alf — Reykjavík. — Taflstaða
Víkings virtist nær vonlaus á
móti Ármanni, þegar 5 mínútur
voru til leiksloka, þvj að þá höfðu
Ármenningar náð fjögurra marka
Valur að ná
sér á strik?
Valsmenn mættu ÍR á sunnu-
daSskvöld í Rvíkurmótinu í hand-
knattleik og unnu með fjögurra
marka mun, 16:12. Leikur þeirra
var mun betri en fyrsti lcikurinn
á móti KR og virðist sem þeir séu
að ná sér á strik. Leikur þeirra var
léttúr og það brá fyrir skemmti-
legu línuspili — en leikskipulag
var sáralítið.
Hinn gamalkunni landsliðsmað-
ur, Hermann Samúelsson, lék með
ÍR í þessum leik, en styrkti
liðið lítið. Hann gerði sig m a.
sekan um ótímabær skot. Efiaust
gæti Hermann verið liðinu mikiil
styrkur, ef hann félli ekki i þessa
gömlu gildru.
Mörk Vals skoruðu: Bergur 5,
Hermann 4, Gunnsteinn 3, Ágúst
Framhald á & síðu
forskoti, 12-8. En á mínútunum,
sem eftir voru, áttu Víkingar eftir
að rétta sinn hlut. Jón Magnússon
einn af unglingalandsliðsmönn-
unum frá í fyrra, var aðalfallbyssa
Víkings þessar síðustu mínútur.
Þrisvar í röð skoraði hann gull
falleg mörk, án þess, að Ánnann
svaraði. Og á síðustu mínútu skor
aði Þórarinn Ólafsson jöfnunar-
'Hreinn skorar fyrir Ármann gegn Víkingi í hinum spennandi leik liSanna
á sunnudagskvöld.
mark Víkings, 12-12. Var leikur
inn æsispennandi undir lokin sér
staklega, þegar Víkingur lék „mað
ur á mann.“
Þetta var skemmtilegasti leikur
inn í Rvíkurmótinu í handknatt
leik, það sem af er. Ármenningar
voru mjög góðir framan af og í
byrjun síðari hálfleiks en misstu
tökin undir lokin og urðu að sjá
af öðru stiginu. Grimur Valdimars
son er ný og gömul stjarna Ár-
Framhald á 6. síðu
víkur- og fslandsmeisitarar Vals li®
Víkings, sem náði aðeins að skora
tvívegis í leiknum. Valur var
betra liðið, en ólánið elti þó Vík-
ing, sem átti ekki færri en 4
stangarskot í leiknum-
Sigríður Sigurðardóttir lék ekki
með Val í þessum leik, en að
sögn er hún hætt eða mun brátt
hætta að leika handknattleik. JÞað
kom því í hlut ungu stjarnanna að
halda merki Vals á lofti. Til að
byrja með var ekki um ójafna
baráttu að ræða, og þó svo, að
Valur hefði yfir 4-1 í hálfleik, gef
ur það ekki rétta hugmynd um
gang, fyrri hálfleiks, því að í hon-
um áttu Víkingsstúlkurnar 3 stang
arskot.
í síðari hálfleik hafði Valur al-
gera yfirburði og bætti fjórum
mörkum við, og var það sízt of
mikið. Eins og fyrr segir, skor-
uðu systurnar Sgrún og Björg
öll mörk Vals, Sgrún 5, þar af 2
út vítaköstum, en Björg 3, öll upp
úr skyndiupphlaupum. Ekki er eins
mikill glans yfir leik Vals í stór-
um sal og í litla Hálogalandssaln
um, en þó er Valsliðið vafalaust
sterkasta kvennaliðið eins og fyrri
daginn.
Mörk Víkings skoruðu Ásta
og Margrét.
Óli Ólsen dæmdi leikinn vel.
Armann skoraði fyrstu 2 mörk
in, en síðan ekki söguna meir
Alf — Reykjavík. — Byrjunin
hjá Ármannsstúlkunum á móti
Fram í Reykjavíkurmótinu var
skínandi góð, og áður en 3 mín-
útur voru liðnar, höfðu þær sent
knöttinn tvívegis í netið framhjá
Margréti Hjálmarsdóttur, lands-
liðsmarkverði. En þetta var að-
eins byrjunin, og eftirleikurinn
varð í öfugu hlutfalli. Framstúlk-
urnar skoruðu næstu 7 mörkin,
og unnu að lokum 8-3.
Stærsta tromp Fram var fyrir-
liðinn, Geirrún Theodórsdóttir.
Hún skoraði 3 af 4 fyrstu mörk-
um Fram mjög glæsilega, og þar
að auki átti hún upphafið að flest
um línumörkum Fram, sem urðu
4. Hallldóra skoraði 3 og Edda
Framhald á 6. síði’
4T
M