Tíminn - 01.11.1966, Page 14
14
TIMINN
ÞRIÐJUDAGUR 1. nóvember 1966
BROTTFÖR VARNAR-
LIÐSINS
FYamhald af bls. 1.
stofna hann.
11. þing S.U.F. ítrekar, að það
vill, að herinn hverfi af landi
brott svo fljótt sem tiltækilegt og
skynsamlegt þykir.Þingið telur að
íslendingar eigi sjálfir, við brott
för hersins að taka við rekstri rat
sjárstöðvanna og gæzlu nauðsyn
legra mannvirkja Atlant9hafs-
bandalagsins hér á landi. Þingið
vill að þesar breytingar fari fram
sikipulega og stig af sitgi svo að
þær valdi hvað minstri röskun á
aðvörunarkerfi Atlantshafsbanda-
lagsins.
11. þing S-U.F. telur, að þróun al
þjóðamála hafi verið og muni
verða slík — einkum stórminnkað
ar likur á hernaðarátökum milli
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna
— að fullkomlega t.ímabært sé að
vinna að því að bandaríska herliðið
hverfi frá íslandi og íslendingar
taki sjálfir við rekstri ratsjárstöðv
anna og gætu nauðsynlegra mann
virkja Atlantshafsbandalagsins á ís
Indi. I
11. þing S.U.F. rökstyður enn
fremur þessa skoðun með þeirri
staðreynd, að svo róttækar breyt
ingar hafa orðið á hernaðatækni
að mikilvægi íslands sem herstöðv
ar hefur stórminnkað, þótt á hinn
bóginn sé augljóst, að hlutverk ís
lands í aðvörunarkerfi Atlantshafs
bandalagsins — ratsjárkerfinu —
muni verða talið Atlantshafsbanda
laginu nauðsynlegt enn um sinn.
11. þing S.U.F. vill, að þegar
verði hafnar viðræður við aðildar
þjóðir AtlantShafsbandalagsins
um gerð fjögurra ára áæitlunar um
brottför bandaríska hersins af ís
landi og að þjálfaðir verði íslenzk
ir sérfræðingar, sem tækju við
starfsrækslu ratsjárstöðvanna og
gæzlu nauðsynlegra mannvirkja
Atlantshafsbandalagsins stig af
stigi samhliða því, að bandarískum
hermönnum á íslandi yrði fækk
að jafnt og þétt. Kostnaðurinn af
þesum breytingum og gæzlu mann
virk j a Atlantshafsbandalagsins
yrði greiddur af Atlantshafsríkjun
um sameiginlega eftir því, sem um
semdist innan bandalagsins.
Komi til ófriðar, sem vonandi
ÞAKKARÁVÖRP
Öllum, sem minntust mín á áttræðisafmæli mínu,
fimmtudaginn 20. október s.l. sendi ég innilegar þakk-
ir og kveðju.
Svafa Þórleifsdóttir.
Eigjnmað'ur minn,
Steinþór Bjarnason
andaðist að heimili sínu, Háagerði 67, hinn 28. október s.l.
Þorbjörg Guðmundsdóttir.
Lúðvík Jónsson
Hverfisgötu 90,
lézt aðfaranótt 29. október. Jarðarförin auglýst síðar.
Systklnl hins látna.
Útför,
Böðvars Tómassonar
útgerðarmanns, Garði Stokkseyri
fer fram laugardaglnn 5. nóvember, og hefst wieð húskveðju frá
heimili hans kl. 1,30 e. h.
Ingjbjörg Jónsdóttir.
Miklar þakkir fyrir samúð við andlát og jarðarför eiginkonu minnar
og dóttur okkar,
Ruth Johnsen.
Kjartan R. Guðmundsson, lasknir
Bernhard Johnsen, kontorchef
Doris Johnson.
Þökkum innilega auðsýnda samúfl og vinarhug við fráfall og jarðar-
för eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
Snjólfs Snjólfssonar
Efrl-Sýrlaek.
Oddný Egilsdóttir, börn tengdabörn
og barnabörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför
Þórhildar Kristjánsdóttur
Mávahlíð 18
Guðmundur Þórarinsson,
Lydía Guðmundsdóttir, Guðmundur Pétursson,
Jenslna Guðmundsdóttlr, Magnús Andrésson,
Hrefna Guðmundsdóttir, Ólafur Elnarsson,
Kristján Guðmundsson, Anna Friðleifsdóttir
og barnabörn.
Þökkum af alhug öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug
við andlát og útför föður okkar,
Þórarins Bjarnasonar
járnsmiðs,
Börnin.
verður aldrei, hyrfi hið íslenzka
gæzlulið frá gæzlustörfum og tæki
þess í stað við sérstöku hlutverki á
sviði almannavama.
11. þing S.U.F. telur, að öryggi
íslands yrði tryggt, þótt þessar
breytingar yrðu gerðar, og raun
verulegt megingildi íslands í vam
arkerfi NATO — ratsjárkerfinu —
myndi ek;ki minka. 11. þing S.U.F.
telur það fullkomlega næga trygg
ingu í þessu sambandi að aðild ís
lands að Atlantshafsbandalaginu
hefur það í för með sér að árás á
ísland þýðir það sama og árás á
öll aðildarríki Atlantshafsbanda-
lagsins. 11. þing S.U.F. telur enga
ástæðu til að ætla annað en að oð-
ildarríkin myndu bregða skjótt og
vel við, ef á þennan meginþátt At
lantshafsbandalagsins reyndi. 11.
þing S.U.F.trúir því að aðildarþjóð
ir Atlantshafsbandalagsins virði
enn þann fyrirvara, sem íslending
ar settu um aðild sína að banda-
laginu og treystir því fastlega, að
þær myndu taka ofangreindum á-
kvörðunum fslendinga með skiln-
ingi. Ungir Framsóknarmenn telja
að ósk fámennrar þjóðar um að
búa ein í landi sínu án sambúðar
við erlent herlið, sé svo auðskilin
að þar þurfi ekki langan rökstuðn
ing; rétt þykir þó að vitna til
mangyfirlýstrar stefnu Framsókn
arflokksins um að samskiptum
landsmanna og hersins verið stillt
sem mest í hóf meðan hann hefur
hér aðsetur".
ALÞYÐUBANDALAG
Ftamhald af bls i
að passa hann. Ýmsir höfðu
nú búizt við, að einhverra
nýrra grasa kenndi í stefnu
yfirlýsingum landsfundar-
ins. En því miður var það af
og frá. Yfirlýsingar fund
arins eru sömu gömlu lögin
sem Einar Olgeirsson og fé-
lagar hans á Þjóðviljanum
eru búnir að spila síðan á
kreppuárunum. Er sannar-
lega ömurlegt til þess að
vita, að ungir og myndarleg
ir menn, sem sátu landsfund
inn, og margir höfðu búizt
við, að kæmu fram með
nýja stefnu og ný viðliorf,
hafi séð þann kost vænstan
að kyrja bara áfram með fé
laga Einari. Slík frammi-
staða lofar ekki góðu. Þrátt
fyrir öll skrif, allar ræður
og heila árganga af Frjálsri
þjóð er Alþýéuhandalagið
enn óbreytt. Enginn minnt-
ist á nýja stefnu eða nýja
menn. Gamla tóbakið blívur
áfram. Sósíalistaflokkurínn
er enn við líði og kannski
aldrei verið galvaskari en
en nú og ætlar á næstunni
að halda sitt flokksþing.
Honum verður elcki haggað
með þessum ráðum. Alþýðu
bandalagið er andvaua fætt.
þessa lækna hér, sögðu þeir, að
skortur á hjúkrunarliði væri þeg
ar mikið vandamál, sem myndi er
fram í sækir verða mjög alvaríegt
mál, sem erfitt yrði að leysa.
Talsmenn L.R. minntu á, að nú
gildandi kjarasamningur gildir til
1. júlí 1967, og sögðu, að ef þeim
samningum yrði sagt upp, þá
myndi baráttan á næsta ári aðal
lega fjalla um bætta starfsaðstöðu,
en minna um launakjör. Yrði geng
ið harðar fram í því máli í fram
tíðinni en hingað til, og ef starfs
aðstaðan yrði ekki bætt, þá myndu
læknar ekki fást til þess að taka
að sér siúkrahúsvinnu.
Tal barst einnig að sjúkrahús
byggingum hér á landi, og sögðu
stjórnarmenn LR að siíkar bygg
ingar gengu hvergi eins hægt og
hér. Fjárveitingar til að Ijúka við
Landspítalabygginguna væru ófull
nægjandi, einnig sú fjárveiting,
sem væri í þeim fjárlögum, er nú
liggja fyrir alþingi. Eft.ir væm
um 3ja mánaða vinna viö Borgar
sjúkrahúsið, en engir peningar
væru til í þá framkvæmd.
Um þau ummæli fjármálaráð
herra, að læknar hefðu krafizt
1—IY2 milljónar í árstekjur,
sögðu stjómarmenn LR, að sú taia
væri líklega fengin með því að
•grundvalla útreikninga á launum
kandidata, sem ynnu allt að 20
klukkustundir á sólarhrjng. Lækn
ar vildu koma á vinnuhagræðingu
þannig, að unnið yrði á sjúkrahús
unum á fjórskiptum vöktum —
í stað tví og þrískiptra vakta, eins
og nú tíðkast.
Sögðu þeir, að með kröfuum
um bætt launakjör og bætta starfs
aðstöðu væri til þess ætlast, að
læknar gætu gefið sig að einu
starfi — t. d. unnið aðeins á
siúkrahúsum í stað þess að vinna
bæði þar og á eigin stofu. Þannig
myndu sjúklingarnir fá mun
betri þjónustu.
VITA SEINAGANG
Framhald af bls. 1.
ur að hlutast til um samskipti
lækna og sjúklinga og það, hvemig
læknar hagi lækningum sínum.“
Um þetta atriði sögðu talsmenn
Læknafélagsins, að þeir litu svo
á, að SR ætti fyrst og fremst að
vera tryggingaraðili, og að þeir
teldu óeðlilegt að læknar væru
launþegar hjá SR. Sögðu þeir,
að stjóm SR hefði stundum neitað
að semja við vissa hópa eða stofn
anir, og hafi það haft veruleg á-
hrif á aðstöðu lækna til þess að
stunda sitt starf sem skyldi. Einnig
hefði S.R. haft afskipti af því,
hvemig heimilislæknar vísi sjúk-
lingum til sérfræðinga, en þeir
teldu fráleitt að heimilislæknir-
inn réði því ekki sjálfur.
Fram kom á fundinum í sam
bandi við læknaskortinn, að lik-
lega væru um 60 íslenzkir læknar
í Svíþjóð og um 20 í Bandaríkjun
um, og sögðu stjórnarmenn I.R,
að næg ve’Aefni væru fyrir alla
FORSÆTISRAÐHERRA
Framhald af bls. 16
heimboð. Sagði ráðherra að þar
hefði sömu nákvæmái gætt í bú
skapnum og í iðnaðinum. Ilelzta
búgreinin er kornrækt, en auk
þess hefur Einar fimmtíu kýr.
Gripir þessir eru mikið stærri en
okkar nautpeningur. Tafla er við
hvern bás, þar sem skýrt er frá
fæðingardegi kýrinnar og n.yt og
önnur skýrslugerð viðhöfð. Áður
en gengið var í f jósið, vom gestir
klæddir í hvíta sloppa og látnir
stíga á plastskóm inn. Hafði ein
konan í hópnum orð á því, að
þetta væri óþarfi, því fjósið væri
svo þrifalegt. En þá kom það svar
að klæðnaðurinn væri til verndar
kúnum en ekki gestunum og má
það vera mikill þrifnaður. Annars
hafði Einar Gustavsson það að
segja um okkar kúakyn, að það
væri orðið úr sér gengið vegna
skyldleika, og bauð að senda okk
ur tíu forláta gripi (Láglendinga)
til að endurnýja stofninn hér.
Vissi hann um hin ströngu ákvæði
sem hér gilda um slíkan innflutn
ing, en hann taldi að hægt væri
að komast hjá sýkingarhættu.
Forsætisráðherra skýrði frá
ýmsu fleiru, sem bar fyrir augu og
eyru í ferðinni. M. a. sagði hann
að sjónvarp og útvarp flytti orðið
það mikið af uonlýsingum og áróð
ursefni, að það hefði dregið mjög
úr áhrifum blaða. 4uk t>ess eru
blöðin dýr í rekstri, og bera sig
ekki lengur. Um áhrif þessara
breytinga sagði forsætisráðherra,
að svo mætti segja að almennir
fundir væru úr sögunni, ,og stjórn
málabaráttan væri í stöðugt rík
ara mæli háð í sjónvarpi t. d., en
fomstumenn flokkanna ferðuðust
orðið um mest megnis í því augna
miði að halda við trúnaðarsam
bandi við einstaka menn, en héidu
ekki fundi. Hér væri um alþjóð
legt fyrirbæri að ræða, og for
sætisráðherra sagðist halda, að
allir hefðu orðið varir við slikar
breytingar hér á landi.
Forsætisráðherra drap á ýmis
legt fleira á fundinum með blaða
mönnum, sem hér er ekki rúm til
að rekja.
FRÁ ALÞINGI
Framhald af bls. 7.
leggja það gjald á útveginn, sem
þetta frumvarp gerði ráð fyrir.
Halldór E. Sigurðsson las upp
mótmælasamþykkt útvegsmanna
á Akranesi, sem hafði verið ein
róma gerð. Ræddi hann síðan nokk
uð erfiðleika útgerðarinnar og,
iðnaðarins. Þetta frumvarp væri
undirstrikun á þeim hringlanda
hætti, og stefnuleysi, sem nú væri
ríkjandi í stjóm landsins. í sum-
ar hefði verið ákveðið að hætta
niðurgreiðslum á smjörlíki og
sagt, að ekkert gerði til, þótt verð
lagið hækkaði, menn fengju það
bætt með vísitölu. Svo hefði verð
lagið verið látið hækka og nú
væri ákveðið að fara að greiða nið
ur aftur og nú eru teknar ákvarð
anir um nýjar niðurgreiðslur,
sem nema hundruðum milljóna,
með nokkurrra daga millibili. Nú
er lagt frumvarp um skatt
á útveginn til að styrkja iðnað,
sem er að gefast upp. Svo eftir
nokkra daga verður komið með
annað' frumvarp til að styrkja þá
atvinnugrein, sem þennan skatt
á að greiða. Þannig er það eitt í
dag og annað á morgun. Þetta
frumv. er aðeins sönnunargagn um
þetta stjórn- og stefnuleysi og
ekkert annað.
Jóhann Hafstein iðnaðarmála
ráðherra, varði frumvarpið og
taldi, að með skattlagningunni
væri raunverulega um tilfærslu
innan útgerðarinnar að ræða,
þar sem skatturinn kæmi þyngst
niður á stærri bátunum, en
minni bátarnir notuðu innlend
veiðarfæri.
Jón Skaftason mótmælti þeirri
skoðun ráðherrans, að frumvarp
ið yrði til hagræðis minni bátun
um.
Birgir Finnsson sagði, að opin
ber gjöld Hampiðjunnar lág, skv.
skattskránni, en kvaðst ekki vilja
taka afstöðu til frumvarpsins á
þessu stigi.
Skúli Guðmundsson sagði opin
ber gjöld fyrirtækja æði mörg
fleiri en fram kæmu í skattskránni
og ítrekaði óskir sínar, um að
nefndin uthugaði gaumgæfilega
hve há þau opinberu gjöld væru,
sem á veiðarfæraiðnaðinum
favíldu.
Atkvæðagreiðslu um nefnd var
frestað.
Blaðburöarfólk óskast
á Gunnarsbraut, Snorrabraut, Miðtún, Hátún,
Nfálsgötu, Grettisgötu, Skipholt og Bólstaðahlíð.
Upplýsingar á afgreiðslu blaðsins í Bankastræti 7
sími 1-23-23.