Tíminn - 01.11.1966, Blaðsíða 16
Baldur Oskarsson var ein-
iBnBHKBaMiMBHHBaHMHBBMaBnHH
róma kjörinn formaður SUF
m
EJjReykjavík, mánudag.
liL þingi SU(F var Slitið
síð-
Baldur Óskarsson
Vatn og raf-
magn vantar
til nýbygginga
í Garðahreppi
KJ-ReykjavÍ!k, mánudag.
Byggðin í Garðalhreppi er nú
fcomin langleiðina upp að Vífils
stöðum, og má segja að byrjað
sé þar á fleiri og færri nýjum
húsum á „Flötunum" í viku
hverri. Allt eru þetta einbýlishús,
mangvisleg að útliti, og yfirleitt
vinna eigendurnir mikið við þessi
hús sjálfir. Eru húsin mjög mis-
langt á veg komin, sum eru þeg
ar orðin fofclheld en önnur
skemmra á vegi. Eitt er það sem
vanhagar mjög um í þessu nýja
hverfi, við Sunnuflöt, og er það
vatn og rafmagn. Er hvorugt fyr
Framhald á bis. 15.
degis í gær í Tjarnarbúð í Reykja
vík. Þingfundir hófust kl. 9.30 í
gærmorgun, og var þá fjallað um
álit eftirtalinna nefnda, og geng
ið frá samíþykkt þeirra:
Atvinnumálanefnd, Mennta og
If élagsmiáilan eifind, Sam gön gu mál? -
nefnd, Skipulagsnefnd, Fjármála
nefnd, Verkalýðsmálanefnd, Alls-
herjarnefnd og Stjórnmálanefnd.
Halle Jörn Hansen, frá sam
tökum ungra vinstri manna í
Noregi, ávarpaði þingið og flutti
kveðjur frá samtökum sínum, en
hann var einn þriggja erlendra
gesta, er þingið sátu.
Fráfarandi formaður, Örlygur
'HáiMánarson, ávarpaði þingið og
þakkaði stjórn og sambandsfélög
um gott samstarf, en hann hefur
verið formaður samtakanna's. 1.
6 ár, og lét nú af því starfi
sökum aldurs.
Síðan hófust kosningar. Stjórn
sambandsins skipa eftirtaldir
menn:
Baldur Óskarsson, formaður,
Reykjavík, Sigurður Geirdal, V3ra
formaður, Kópavogi, Björn Teits-
sori, , ritari, Brún, Suður-Þing.
Bjarni Bender, Reykjavík, gjald
keri. Meðstjórnendur: Alvar Ósk-
arsson, Reykjavík, Garðar Hann
esson, Aratungu, Árnessýslu, Már
Pétursson, Reykjavík, Ingimund-
ur Magnússon, Hafnarfirði, Iler-
mann Einarsson, Vestmannaeyj-
um, Gísli Sighvatsson, Kefiavjk,
Ingi B. Ársælsson, Reykjavík og
Daníel Halldórsson, Rvk.
Varamenn í stjórn: Ólafur Ragn
ar Grímsson, Reykjavík, Páil
ILýðsson, Litlu-Sandvík, Theódór
A. Jónsson, Reykjavífc, Davíð
Aðalsteinsson, Arnibjarnarlæk,
Mýrasýslu, Guðmundur Magnús
son, Leirvogstungu, Þorsteinn Ragr.
arsson, Akranesi, Friðgeir Björns
soh, Reykjavík og Haukur Bjarna
sori, Reykjavík.
Endurskoðendur: Þórir Gunn-
arsson og Sigþór Jóhannsson. Til
vara: Erlingur Bertelsson og Gísli
Jónsson.
Helgi Bergs, ritari Framsókn
arflokksins, flutti þinginu snjalla
ræðu. Flutti hann þingfulltrúum
kveðju framkvæmdastjórnar Fram
Framhald á bls. 15.
FLUG-
VÉL
NAUÐ-
LENTI
KJ-Reykjavík mánudag.
Um klukkan tólf í dag
nauðlenti tveggja sæta flug
vél á túninu við VífMsstaði.
Tveir menn voru í vélinni,
en hvorugan sakaði, og
gengu hinir rólegustu heim
að Vífilsstiöðum í kaffi eftir
nauðlendinguna.
Vélin sem hér um ræðir
er nýja listflugvélin sem
kom til landsins í sumar TF-
ABC, og var á æfingaflugi
yfir Vífilsstöðum þegar
hreyfillinn drap skyndilega
á sér. Sögðu sjónarvottar að
vélin hefði verið að taka
„dýfu“ oig verið á uppleið
er hreyfillinn stöðvaðist.
Flugmennirnir reyndu
árangurslaust að koma hreyfl
inum í gang aftur, en tókst
ekki, og lentu því á túninu.
Hjól vélarinnar settu þeir
ekki niður, heldur lentu
„magalendingu“ og skemmd
ist skrúfan og eitthvað und
ir vélinni í lendingunni.
Tékkneska listflugvélin TF-
ABC nauðlent á túninu við
VifilsstaSi í gær.
(Tímamynd K. J.
BrétKassagerðarinn
ar er ekki svaravert
— sagði iðnaðarmálaráðherra, er vandamál umbúðaiðnaðar*
ins voru til umræðu á alþingi í gær.
TK—Reykjavík, mánudag.
í umræðunum um veiðarfæra
skattinn á Alþingi í dag beindi
Þórarinn Þórarinsson fyrirspurn
til iðnaðarmálaráðherra í tilefni af
ummælum hans um ástand iðnaðar
ins, varðandi bréf, sem alþingis
mönnum ■ hefði borizt frá Kassa
gerð Reykjavíkur. Spurði Þórarinn
hver afstaða iðnaðarmálaráðherra
væri til þess máls, er þar væri um
rætt.
Framhald á bls. 15.
Voru SAAB bíl-
arnir ótryggðir?
SJ-Reykjavífc, mánudag.
Sjópróf vegna skemmdanna á
SAAB bifreiðunum hófust s. 1.
fimmtudag og stóðu þá yfir í
fjórar klukfcustundir. Daginn eft
ir héldu sjóprófin áfram og stóðu
frá kl. 16 til miðnættis, og varð
þá að fresta róttarhöldunum, þar
sem gögn vantaði svo sem ljós
myndir og skoðunargerð, sem
framkvæmd var á lestum skipsins.
Skipið sigldi á hafnir við Faxa
flóa á laugardag, en gert er ráð
fyrir að hægt verði að Ijúfca sjó
prófum innan skamms.
Eftir því sem Tíminn hefur
komizt næst, þá voru SAAB-bif-
reiðarnar ekfci tryggðar af ís-
lenzku tryggingarifélagi, og kynnu
að hafa verið óvátryggðarmeð öllu
Tryggingarikostnaður mun vera
nálægt 1500 krónur á nýrri bif
reið og greiða kaupendur bifreið
anna það gjald, a. m. k. ef Lif
reiðin hefur verið tryggð í flutn
ingum. Flutningsgjald á nýrri
bifreið er frá 3—5000 krónur að
öllum jafnaði.
■vv •w.yvv —' wv -f vy w
Forsætisráðherra skýrir frá Svíþjóðarför
B0NDI 0G ÞINGMAÐUR
BAUD 0KKUR 10 KÝR
IGÞ—Reykiavík, mánudag.
Dr. Bjarni Benediktsson,
for
Byggðin þenst út á „Flötunum" í Garðahreppi, og
stcðum. og vanta“ bæði vatn og rafmagn.
her er mynd af húsunum sem eru í byggingu næst Vífils
(Tímamyn.l K. J.)
sætisráðlierra, boðaði blaðamenn
á sinn fund í dag og skýrði þeim
frá nýafstaðinni boðsferð til Svi
þjóðar, en þar var hann í síðastlið
inni viku ásamt konu sinni, frú
Sigríði Björnsdóttur og föruneyti.
Sagði forsætisráðherra að þeim
hefði verið tekið afbragðsvel, hvar
sem þau komu og rómaði hann
mjög alla gestrisni Svía.
Forsætisráðherrann átti fund
með Erlender og nokkrum ráð
herrum úr rikisstj. og hitti auk
þeá^ ýmsa stjónmálamenn. Rædd
voru viðhorf í alþjóðamálum og
þá sérstaklega efnahagsmálum.
EFTA og EBE, en Svíar hafa mik
inn áhuga á þessum málum. For
sætisráðherra sagðist hafa gert
grein fyrir viðhorfi tslendinga.
Sagði hann jafnframt að það hefði
úrslitaþýðingu að við fvlgdumst
vel með því sem væri að gerast
í þessum efnum.
Minnst var á norrænt varnar
bandalag, en í þeim umræðum
kom fram, að eins og «akir standa
þá sé ljóst að ekki er tímabært að
slíkt bandalag leysi Nato af hólmi.
Einnig var minnzt á Loftleiðir í
viðræðunum við Erlander. Loft
leiðamálið er í athugun hjá sér
fræðingum og Svíar gátu þvj ekk
ert um málið sagt á bessu stigi,
en þeir eru okkur velviljaðir.
Forsætisráðherrann heimsótti
þrjú mikil iðnaðarfyrirtæki og
kom á Sænska dagblaðið, setn er
annað stærsta blað, sem kemur út
að morgni í Stokkhólmi. Upplagið
er 170 þús. eintök, en þar sem
Svíar eru 40 sinnum mannfleiri
en við, þá er útbreiðsla blaðsins
minni en hér tíðkast. Iðnfyrirtæk
in, sem forsætisráðherrann skoð
aði voru Ericson (sími), Saab
(herflugvólar og bílar) og Facit
(skrifstofuvélar). Sagði forsætis
ráðherra, að í öllum þessum fyrir
tækjum hefði verið lærdómsíkt að
sjá hversu vinnubrqgð væru þar
hárnákvæm. í ferðinni um Aust
ur-Gotland heimsótti forsætisráð-
herrann bónda og þingmann, sem
þar rekur stórt bú. Heitir hann
Einar Gustavsson og er í Mið
flokknum (áður Bændaflokkurinn)
Hafði hann hitt Einar á fundum
Norðurlandaráðs og itti þangað
Framhald á bls. 14