Vísir - 05.11.1975, Qupperneq 20
20
Visir. Miðvikudagur 5. nóvember 1975
Ég bið aft heilsa Tomos, hvislahi
Tarzan aö Erot um leið og þeir skildu.
Ykkur gengur vonandi betur næst
Hér stendur, að fyrir
fimmtiu rúblur getir þú
fengið tónlistina að hvaða lagi,
sem samið hefur verið.
k
**
spa
Spáin gildir fyrir fimmtudaginn
6. nóv.
tlrúturinn
21. mars—20. april:
Það væri ráðlegt að endurskoða
íramtiðaráætlunina og gera á
henni bragarbót. Seinni hluti
dagsins er varasamur, farðu var-
lega.
m
Nautið
21. apríl—21. mai:
Þér áskotnast hlutur eða
peningar, sem annar ætti að
hljöta. Gættu þin á ósvifnu og
ágengu fólki. Notaðu kvöldið til
að uppfræða sjálfan þig.
M
Tviburarnir
22. mai—21. júni:
Vertu ekki of léttúðugur, maki
þinn eða vinir þolir enga óvar-
kárni. Fjárhagsáætlunin þarfnást
endurskoðunar.
Krabbinn
21. júni—23. júli:
Forðastu að eyða tima annarra
með sifelldu tali um heilsu þina
og áhyggjur. Þú hefur
tilhneigingu til að skjóta allri
vinnu á frest.
Ljónið
24. júll—23. ágúst:
Ástarmálin ganga ekki nógu vel i
dag. Þú hittir aðlaðandi persónu
af hinu kyninu en vertu ekki of
ákafur. Eyddu Evöldinu við að
lagfæra það sem úr lagi er
gengið.
Meyjan
24. ágúst—23. sept.:
Óánægju gætir vegna vinnu
semþú þarft að leysa af hendi,
vertu ekki of fljótfær við að kippa
þvi i lag. Eyddu kvöldinu hjá
barninu þinu eða þeim sem þér
er annt um.
Vogin
24. sept.—23. okt.:
Áhrif morgunsins skýra fyrir þér
menn og málefni. Samneyti þitt
við annað fólk er heldur yfirborðs
kennt. Reyndu að vera góður
gestgjafi i kvöld, skemmtu gest-
um þinum með smellnum skritl-
um.
Drekinn
_________ 24. okt.—22. nóv.:
Varastu að handleika hluti of
kæruleysislega. Treystu ekki um
of á verðmætamat þitt. Kvöldið
er vel fallið til stuttra ferða og
samræðna.
Bogniaðurinn
23. nóv.—21. des.:
Innan skamms tekur þú þátt i
mikilvægri rannsókn eða at-
hugun, láttu niðurstöðurnar ekki
koma þér á óvart. Vanræktu ekki
félagslifið. Kvöldið er heppilegt
til að koma fjármálunum i samt
horf.
u
Steingeitin
22. des.—20. jan.:
Þú virðist heldur niðurdreginn,
og áhyggjufullur, en láttu hugg-
ast, lausnin er á næsta leyti.
Kvöldið býður upp á náin sam-
skipti.
Vatnsberinn
21. jan.—19. febr.:
Forðastu að eigra um aðgerða-
laus i dag. Hlustaðu á það sem
aðrir hafa til málanna að leggja
og reyndu að fá botn i málið.
Fiskárnir
20. febr.—20. mars:
Aðstæðurnar blekkja þig i dag.
Félagi þinn kemur ómerkilega
fram við þig, ef um viðskipti er
að ræða þá taktu þvi með rósemi.