Tíminn - 08.11.1966, Qupperneq 7
ÞRIÐJI^DAGUR 8. nóvember 1966
ÞINGFRETTIR
TÍSVBNN
ÞINGFRETTIR
• •
LISTASOFN OG LISTSYN-
INGAR UTAN REYKJAVÍKUR
Ingvar Gíslason flytur ásamt
Ólafi Jóhannessýni tiHögu til
iþingsályktunar í sameinuðu þingi
um listasöfn og listsýningar utan
Reykjavíkur.
TJUagan er svohljóðandi:
Alþingi ályktar að kjósa 7
manna nefnd til þess að gera til-
lögur um stofntm og starfrækslu
opinberra listasafna utan Reykja
víkur. Jafnframt skal nefndin gera
tillögur um það í samráði við sam-
f ök m yn dli starjrranrra' hve rn ig helzt
maatti stuðla að því, að haldnar
verði fleiri myndlistarsýning
ar, (samsýningar og sérsýning-
ar), utan höfuðborgarinnar. —
Kostnaður við störf nefndarinn-
ar greiðist úr ritissjóði.
í greinargerð segin
Tillaga þessi hefur áður verið
flutt, en ekki Klotið afgreiðslu.
Fylgdi henní svohTjóðandi grein-
argerð:
Landsbyggðin utan Reykjavíkur
er ærið fasfcek dð listasöfnum og
undantekniíg, ef myndlistar-
menn þjóðírinnar sýna verk sin
opinberlegí annúrs staðar en í
Reykjavíkt Jafnvei á Akureyri eru
myndlistapýningac fágætir við-
burðir. STkt ástand er engan veg-
inn 'freilkvænlegt. Hversu háska-
legt. sen það er landsþyggðinni
að dragíst aftur úr í atvinnuleg-
um efnum, — og um það er e»g-
mn ágremingur — þá felst einn-
ig dulin, ef efckl augljós hætta,
þegar menningarskilyrði eru að
yerulegum mun lakari á einum
stað en öðrum. Félags og menn-
ingarlegur ójöfnuður meðal þjóð
arinnar, hvort heldur er milli ein
stakra stétta eða landshluta, hef-
ur hættu í för með sér, sem gefa
þarf nánar gætur og hindra sem
framast má verða.
Telja má með réttu, að löngum
hafi menningarlegur jöfnuður,
verið aðal íslenzku þjóðarinnar.
Lista- og bókmenntaáhugi var sam
eign allra, hvort sem þeir voru
efnaðir eða örsnauðir. Menning
arskilyrði voru almennt lík í lands
hlufunum. Því er vari; að heilsa
nú á tímum. Ójöfn menningar-
skilyrði eru næsta áberandi í land
inu. Þær tvær listgreinar, t- d.
sem gróskumestar hafa verið síð-
ustu áratugi, myndlist og tónlist
óru mjög einskorðaðar við Reykja
vík. Á það þó alveg sérstaklega
við um myndlistina. Listsýning-
ar, hver annarri. betri, eru tíð-
um haldnar í höfuðborginni. Líð-
ur varla sú vika, að ekki sé eitt-
hvað að gerast í Listamannaskál-
anum eða Bogasal Þjóðminja-
safnsins. Menntaskólanemar í
Reykjavík hafa komið upp tveim
ur ógleymanlegum myndlistar-
sýningum í vetur í húsakynnum
skólans. Útlend list er einnig
sýnd við og við í höfuðborginni.
Með þessu er þó alls ekki sagt,
að ekkert standi til þóta í listmál
um höfuðborgarinnar. Lista-
mannaskálinn er t.d. gerónýtt hús
og með öllu ósamboðinn sem list
sýningarstaður. Það breytir hins
vegar ekki þeirri staðreynd, að
Reyikjavík ein nýtur nær alls þess
sem gerist í myndlist á fslandi.
Þessi mál em almennt í algerri
vanrækslu úti um landið. Úr þeim
þarf að bæta með sérstöku|ogskipu
legu átaki í anda þeirrar tillögu,
sem hér er flufct. Þjóðfélaginu ber
að búa svo um hnútana, að öllum
landsmönnum sé tryggð sem jöfn
ust aðstaða til að kynnast því, sem
gerist og gerzt hefur í listum hér |
á landi. Með þeim hætti má skapa!
frjálsa list fyrir fólkið, gera list-1
ina að álmenningseign.
Eitthvað er bogið við i menningari^s ójafnaðar. Slík þró-
það þjóðfélag, sem stefnir tilun er þeim mun ógeðfeildari hér
Ingvar Gíslason
á iandi, sem vitað er, að íslenz'ia
þjóðin hefur ávallt verið listelsk
og listnjótendur óháðir þjóðfé-
lagsaðstöðu og búsetu. Enda er
mikill áhugi á listum í sveitum og
kaupstöðum víðs vegar um landið.
I%un» áhuga má glæða og veita
fúllfcaegju með skynsamlegri list-
kynningu og stofnun listasafna svo
víða sem kostur er. Þeir tiltölulega
fáu iistamenn, sem sýnt hafa verk
sín úti um land haaf orðið aufúsu-
gestir.
Stofnun listásafna utan Reykja
víicur þarf að undirbúa svo vel,
að við verði unað um langa fram-
tíð. Fjárhags- og skipulagsgrund
völlur verður að vera traustur og
veita svigrúm til eðlilegrar fram
þróunar. Þótt listasöfn séu stofn-
uð i kaupstað, sýslu eða stærri
landshluta, þá ber þeim eigi að
síður að vera á „landsmælikvarða“
þau eiga að sækjast eftir hinu
bezta í listum. En æskilegt er og
raunar sjálfsagt, að þau sinni einn
ig sérstaklega þeirri listsköpun,
sem kann að eiga sér stað inn-
an hvers safnhverfis. Mundi þá
væntanlega koma í ljós betur en
ella, hvers virði slík list er í raun
og veru. En umfram allt ættu al-
menn listasöfn að gefa sem sann-
asta mynd af listmenningunni á
hverjum tíma.
Annað aðalatriði þessarar til-
iögu er, að ráð verði fundin til
þess að fjölga myndlistarsýning-
um utan höfuðborgarinnar. Ef -til
vill er fjölgun listsýninga nauð-
synlegur undanfari stærri að-
gerða í listmálum landsbyggðar
innar. Virðist það og tiltölulega
auðleyst verkefni. Víða eru sæmi
legar aðstæður til myndlistar-
sýninga, og ef þær væru nýttar
sem kostur er, mætti stórlega
fjölga listsýningum úti um land
án teljandi viðbúnaðar eða kostn
aðar.
1
Veiðifélag stofnað um Mýrarkvísl
Reykjahverfi og vatnasvæði hennar
Síðastliðinn föstudag hinn 4. i lagsstofnunina, og hún samþykkt
nóvember, komu landeigendur og með öllum atkvæðum veiðirett
veiðiréttareigendur við Mýrar- og areigenda.
Reykjakvísl, Langavatn, Geita- j í stjórn hins nýstofnaða veiði
fellsá, Kringlugerðisá og Kringlu-; félags voru þessir kosnir:
vatn í Suður-Þingeyjarsýslu sam
an á fund í félagsheimilinu að
Hveravöllum í Reykjahverfi og,
stofnuðu. með sér veiðifélag um
fyrrgreint vatnahverfi, að fengnu
samþykki veiðimálastofnunar
innar, samkvæmt lögum um lax
og silungsveiði.
Á fundinum voru mættir 29
af 36 veiðiréttareigendum auk
Jakobs V. Hafsteins, lögfræðings
í Reykjavík, sem væntanlegs leigu
taka vatnahverfisins, enda hafði
fhann í ágústmánuði síðastliðn-
um hvatt hlutaðeigandi með ítar
legu bréfi til slíkrar veiðifélags
stofnunar, fyrst og fremst með
laxarækt í þessu víðáttumikla
vatnahverfi fyrir augum. í byrj-
un september síðastliðnum var svo
undirbúningsfundur að félags-
stofnuninni haldinn með mikilli
þátttöku veiðiréttareigenda.
Mjög mikill áhugi var ríkjandi
á stofnfundi veiðifélagsins, um
ræður miklar og fjömgar, og full
komin samstaða að lokum um fé-
★★ Emil Jónsson mælti í gær fyrir stjórnarfrumvarpi um staðfestingu
á alþjóðasamþykkt um takmörkun á ábyrgð útgerðarmanna.
★★ Elnar Olgeirsson mælti fyrir frumvarpi um barnaheimili og
fóstruskóla. ,
★★ í efri deild var fram haldið 1. umræðu um stjórnarfrumvarp um
breytingar á lögum um almannavarnir. Ræddi Jóliann Hafstein um
þróun þessara mála hér á landi. Svaraði hann ræðu Alfreðs Gíslasonar.
Alfreð Gíslason sagði, að ekkert væri gert raunhæft enn í almanna-
vörnum Iandsins.
★★ Gils Guðmundsson inælti fyijir frumvarpi sínu um iistamannalaun
og Listasjóð. !
Hermóður Guðmundssson, bóndi
í Árnesi, Vigfús Guðmundsson,
bóndi og oddviti að Laxamýri, Jó-
hannes Kristjánsson, bóndi í
Klambraseli, Jón Buch Einarsson,
bóndi að Einarsstöðum og Pétur
JónSSon, bóndi í Árhvammi, en í
varastjórn Gunnlaugur Gunnars
son, bóndi í Kasthvammi og
Tryggvi Óskarsson, bóndi að
Þverá.
Fundurinn kaus í arðskrárnefnd
þá Atla Baidvinsson, bónda að
Hveravöllum, Steingrím Bald
vinsson, bónda í Nesi og Hreiðar
Arnórsson, bónda í Árbót. Endur
skoðendur voru kosnir þeir Jón
Gunnlaugsson, bóndi í Skógum og
Þórður Jónsson, bóndi í Laufa-
hlíð.
Fundurinn samþykkti einróma
að leita fyrst samninga við Jakob
V. Hafstein um leigu á vatnahverfi
félagsinS til næstu 10 ára, fyrst
og fremst á grundvelli laxaræktar
í vatnahverfinu, og að gerður yrði
varanlegur göngufiskavegur upp
Þverárfossa, sem hingað til hafa
verið ólaxgengir.
í framhaldi af umræðum um
laxfiskaræktunarmálin, klak kyn
bætur og eldi, samþykkti fund-
urinn eftirfarandi ályktanir, er
sendar yrðu þingmönnum kjör-
dæmisins, svo og einnig blöðum
og útvarpi, samhliða fréttinni um
félagsstofnunina:
„Fundur i Veiðifélagi Mýrar.
kvíslar og vatnahverfis heuiiar,
haldinn að félagsheimilinú að
Hveravöilum í Reykjahverfi, föstú
daginn 4. nóvember, 1966 sam
þykkir að beina þeirri áskorun til
allra þingmanna Norðurlands-
kjördæmis eystra, að þeir á yfir
standandi Alþingi beiti sér fyrir
setningu og framgangi eftirtai-
inna mála:
1. Að leggja fyrir Alþingi sér-
stakt frumvarp um byggingu full
kominnar klak- og eldisstöðvar á
laxfiski við vatnasvæði Laxár í
Aðaldal, þar sem lögð yrði aðal-
áherzla á ræktun og eldi á hinum
væna og sterka stofni úr Laxá í
Aðaldal í stórum stíl, svo að dreifa
megi eldis- og gönguseiðum frá
stöðinni í íslenzkar laxveiðiár,
og á þann hátt stórauka og um
leið bæta hinn íslenzka laxa-
stofn, jafnframt því einnig að
dreifa seiðum úr þessari klak- og
eldisstöð til annarra ríkisklak-
stöðva og einkaklakst. með þjóð-
ar hag og heill fyrir augum. Lögð
sé áherzla á það í ' væntanleg-
um lögum, að framkvæmd um
byggingu stöðvarinnar sé hrað-
að svo sem framast er unnt og
henni lokið eigi síðar en á næstu
2—3 árum, að undangengnum ít
arlegum athugunum fróðustu,
manna, útlendra og innlendra
sérfræðinga, hvar við vatnasvæði
Laxár í Aðaldal sé ákjósanlegast
að byggja slíka stöð, eða í næsta
nágrenni við umrætt vatnasvæði.
2. Að vinna ötullega að því, að
bannað sé með lögum að veiða
lax í lagnet í ám og vötnum í
námunda við þá staði, þar sem vit
að er fyrir, að hrygningarstöðvar
laxins eru, svo og einnig þar, sem
vitað er að flóðs og fjöru gætir
langt upp í ár og jafnvel veiði-
vötn.
3. Að veitt sé rífleg fjárveit
ing á fjárlögum til að vinna að
útrýmingu svartbaks *— veiði-
bjöllu — við ósa veiðivatna, en
sannað er, að þessi fugl er hinn
mesti skaðvaldur og ræningi
á seíði, bæði lax og silungs, á
göngu þeirra úr veiðivötnum í fjó
fram.
4. Að Alþingi samþykki sér-
stakar ráðstafanir til rannsókn
ar á hinni miklu netaveiði á laxi
við Grænland hin síðari ár, með
það fyrir augum, að fá sem fyrst
skorið úr því, hvori þessi mikla
netaveiði hafi ekki hin skhðvæn-
legustu áhrif á íslenzka laxastofn
inn.
5. Að stórauka framlag á fjár
lögum til laxamerkinga og jafn-
framt að skylda bæði ríkis- -og
einkastöðvar til merkingar á öll
um gönguseiðum, er stöðvarnar,
láta frá sér fara og sleppt er í
ár og vötn.
6. Að Alþingi samþykki að láta
nú þegar fara fram rannsókn á
gerð og kostnaði við byggingu og
rekstur fiskeldisstöðva í sveitum,
með það fyrir augum, að bændur
geti hafið slíkan atvinnurekstur
með útflutningssölu á eldisfiskum
fyrir augum.
Samþykkt var með almennu
lófataki.
Hermóður Guðmundsson fundarst.
Axel Baldvinss., Steingr. Baldvins
son, ritarar.
HESTUR
ÓSKAST
Er kaupandi aS þægum,
tömdum hesti, 6—8 vetra
fyrir 10—12 þús. Hestur-
inn þarf að vera ólatur, en
ekki fjörugur. Þeir, sem
vildu sinna þessu, sendi ná
kvæma lýsingu á hestinum
til afgr. blaðsins, fyrir 30.
þ m. merkt „Þægur hestur”
I