Vísir - 24.11.1975, Qupperneq 1
VISIR
65. árg. — Mánudagur 24. nóvember 1975 — 267. tbl.
Stríða við sjúkdóm
— og sjúkrasamlag
Frá fæöingu hefur Helga Guðmundsdóttir, sem nú er 6 ára, átt
við sjúkdóm i briskirtii að striða. Hún þarf stanslausa umönnun
foreldra.húntekurinn kynstrin af lyfjum daglega, og þarf aö sofa
i gufutjaldi á næturnar.
En kerfiö hefur ekki verið of lipurt við að gera Helgu né for-
eldrum hennar lifið Icttara. — Sjá bls. 3.
Foreldrar
óhugalitlir
um umferð-
arfrœðslu
„Foreldrar
barna virðast
næsta áhuga-
litlir um um-
ferðarfræðplu”,
segir nýráðinn
umsjónarkenn-
ari með um-
ferðarfræðslu i
skólum, Guð-
mundur Þor-
steinsson.
— Sjá bls. 3.
Patrick Wall
styðurókvörðun
bresku togara-
skipstjóranna
Hugur í þingmönnum,
sagði íslenska
sendiróðið í morgun
— Mcr virðist af ummælum
stjórnmálamanna að það sé
grundvöllur l'yrir þvi að flotinn
verði sendur á islandsmið,
sagði Iielgi Ágústsson, i is-
lenska sendiráðinu i London við
Visi i morgun. — Nú vil ég alls
ekki fullyrða um hver niður-
staðan verður en ýmsir þing-
menn liafa gefið yfirlýsingar
um að beita verði tiltækum ráð-
um til að vernda togarana.
— Þingmaðurinn Patrick
Wall, sagði i útvarpsviðtali að
ákvörðun skipstjóranna um að
hóta heimsiglingu ef þeir fengju
ekki herskipavernd, hefði verið
rétt. Ég hef þó ekki heyrt aðra
þingmenn gefa jafn ákveðna
yfirlýsingu.
— Þótt almenningur hér I
London taki þessu með ró er
geysilegur áhugi hjá fjölmiðlum
og sendiráðið er nánast eins og
simstöð. Fréttamenn eru stöð-
ugt hringjandi til að fá upp-
lýsingar og viðtöl.
— Við veitum það auðvitað
fúslega en okkur þykir verst að
fréttamennskan er mjög lituð i
sumum tilfellum. Það koma
ekki alltaf fram þau atriði sem
okkur finnst skipta megin máli.
— ÓT.
Stjórnarflokkar rœða
samningsdrögin í dag
Afstaða stjórnarflokkanna
til samningsuppkastana við
Vestur-Þjóðverja liggur enn
ekki fyrir.
Fundir i þingflokkum
stjórnarflokkanna veröa i dag
kl. 2, og verður landhelgis-
málið þar rætt og afstaða
tekin til samningsdragana við
vesturþjóðverja.
Siðar i dag kemur Land-
helgisnefnd saman til fundar,
og i morgun var fundur rikis-
stjórnar. -EKG
„í athugun hvort við
sendum herskipin”
— Það er i athugun hvort
senda skuli herskip á miðin
við island til verndar togurun
um, en engin’ákvörðun hefur
enn verið tekin, sagði tals-
maður breska sjávarútvegs-
ráöuney tisins við Visi i
morgun.
Brezku togararnir hafa
hótað að sigla út úr land-
helginni á hádegi i dag ef þeir
hafa þá ekki fengið loforð um
herskipavernd.
— Það hafa auðvitað verið
fundir um þetta mál, og
ákvörðunar er að vænta bráð-
lega. En enn sem komið er,
liggur ekkert ákveðið fyrir,
sagði talsmaðurinn.
-ÓT.
Hlaut alvarlegt höfuðhðgg ó sjó
Skipverjiá Verði ÞH slasaöist
i morgun, að þvi er talið var al-
varlega. Hlaut hann höfuðhögg
og barst Slysavarnarfélaginu
hjálparbeiðni á 10. timanum i
morgun.
Báturinn var á netaveiðum
suður af Grindavik og var beðið
um þyrlu og lækni. Leitað var til
varnarliðsins, sem sendi þyrlu á
vettvang. Læknir frá sjúkra-
húsinu i Keflavik var með.
Klukkustund eftir að hjálpar-
beiönin barst, var þyrlan komin
á staðinn, og var maðurinn
fluttur á slysadeild Borgar-
spitalans.
-EA.
I
BÆJARSTJÓRI VESTMANNAEYJA:
HRÍINSAÐUR AF
ÖLLUM ÁBURÐI
UM FJÁRMÁLAÓREIÐU í STARFI
Sigfinnur Sigurösson, bæjar-
stjóri i Vestmannaeyjum, hcfur
algjörlega verið hreinsaður af
öllum grunsemdum og áburði
um ócðlilega og óheiðarlega
mcöferð fjár.
A fundi bæjarstjórnar Vest-
mannaeyja i gær var lögð fram
niöurstaöa nefndarsem kannaði
fullyrðingar um að bæjarstjór-
inn hcfði misuotað aðstöðu sina
og fjármuni bæjarins. Þar kom
fram að bæjarstjórinn hefði
ekkert gert sem ámælisvert
gæti talist.
i framhaldi af þessu áliti
samþykkti bæjarstjórnin ein-
róma eftirfarandi: „Bæjar-
stjórn samþykkir niðurstöður
nefndarinnar og harmar þau
mistök sein hér hafa oröið og lit-
ur svo á að málinu sé þar með
lokið".
í niðurstöðu rannsóknar-
nefndarinnar kom fram að mis-
tök hefðu orðið á milli launa-
deildar og fjármáladeildar. Inn
á reikning bæjarstjórans var
lagt kaup sem þegar var búið að
greiða. — Sigfinnur sagði i við-
tali við Visi i morgun að hann
hefði frétt af þessu, þegar hann
var staddur i Reykjavik að
vinna að uppgjöri við Viðlaga-
sjóö.
Hann kvaðst hafa bakfært
upphæðina þegar er hann kom
aftur til Vestmannaeyja. Hann
kvaðst þó vilja taka fram að
hann hefði átt inni hjá bæjar-
sjóði laun fyrir öll nefndastörf
frá 1. ágúst.
Sigfinnur kvaðst hafa gert all-
ar ráðstafanir til að leita réttar
sins i þessu máli. Hann gagn-
rýndi mjög skrif Dagblaðsins
um þetta mál og sagði, að rit-
stjóri Vestmannaeyjablaðs sem
hefði komiö þessu öllu áf stað
hefði komið til sin með bréf og
beðist afsökunar á þessu frum-
hlaupi sinu.
Siðan sagði Sigfinnur: „Það
er meira en nóg aö gera við
endurreisnarstarfið hér i Eyj-
um. Það er meira virði að vinna
að þvi heldur en að standa i
málaferlum og pólitisku narti.
Þess vegna hef ég ákveöið, að
gera ekkert meira i þessu
máli”.
— ÁG —
Landi gegn landa
Þcir Guðgei Leifsson t.v. og Asgeir Sigurvinsson mættust i leik i fyrstu deildinni belgisku i gær. Lfk-
lega hefur þaö veriö sérstök tilfinning fyrir þá að keppa hvor á móti öðrum með erlendu Iiði á erlendri
grund.
Lið Asgcirs, Standard Liege, sigraði lið Guðgeirs, Charleroi S.C. með 4 mörkum gegn 3. Hvorugur is-
lendingurinn skoraöi mark. — Sjá iþróttir i opnu
íslendingur í 3. sœti
heimsmeistarakeppni
í kraftlyftingum opnu