Vísir - 24.11.1975, Blaðsíða 5

Vísir - 24.11.1975, Blaðsíða 5
VISIR Mánudagur 24. nóvember 1975. 5 Eitt af þvi, sem valdið hefur hvað mestum úlfaþyt i þessu landi á liðnum árum, er vera okkar i NATO og samskipti okkar við Banda- rikin af þvi tilefni. Mér finnst að þar hafi verið deilt meira af kappi en forsjá. Ég tel, að ekki mundi nú saka þótt svipast væri um á þessum vettvangi svona i rólegheitum og dregnar fram i dagsljósið nokkrar myndir, sem áður hafa verið almenningi huldar. Það er at- hyglisvert, að i hvert skipti, sem amerikumenn hafa ætlað að framkvæma einhverja hluti hér, eða fjármagna, þá hafa islending- ar risið öndverðir þar á móti og komið i veg fyrir það. Þetta er i al- gerri andstöðu við það, sem aðrar þjóðir gera, og kem ég að þvi sið- ar. Einu sinni komu þeir með hugmynd um það að leggja varan- legan veg frá Keflavik og upp i Hvalfjörð. Það máttu islendingar ekki heyra nefnt. Svo ætluðu þeir að byggja stóra höfn i Njarðvik. Þá fór allt á sömu leið. A striðsárunum byggðu þeir svo flugvelli hér og spurðu engan að. Þess vegna er flug frá Islandi og til annarra landa mögulegt i dag og þess vegna hefur skapast stór atvinnuvegur i sambandi við flugið. Ef við hefðum verið spurðir, hvort þeir mættu gera þetta, hefðum við vafalitið sagt nei. Eitt atvik skeði þegar striðinu var lokið, sem sýnir glöggt hversu miklir fjármáiamenn við erum. Meðan á striðinu stóð gerðu „gisti- vinir” okkar margs konar mannvirki á landinu, sem okkur voru til einskis gagns og gátu aldrei orðið annað en lýti á landi og byggð. Hluti af þessum mannvirkjum voru braggarnir, sem ennþá standa allviða, rauðir af ryði og öllum til vansæmdar. Þegar herinn kom hingað fyrst, tók hann landið okkar flekklaust og óspillt til sinna þarfa. Ekki hefði það nú verið ósanngjörn krafa frá okkar hendi, að landinu hefði verið skilað aftur til okkar i sömu mynd og það var, en þá skeði það, sem sýnir best hversu vel við kunnum fótum okkar forráð á sviði fjármálanna. Við keyptum allt draslið fyrir stórfé i stað þess að kefjast milljóna króna fyrir það að fjarlægja það og þurrka út allt, sem minnir á hernám, strið og hörmungar þess, og við gátum ekki notað. Þó aðég sé meðmæltur samvinnu viðhinn vestræna heim, þá setti ég fram fyrir nokkrum árum hugmyndir um það, að við ættum ekki að afhenda landið okkar endurgjaldslaust til þeirrar samvinnu. Þessar hugmyndir fengu afarmikinn hljómgrunn hjá almenningi, en stjórnmálamennirnir urðu skelfingu lostnir. Hugmyndir minar féllu ekki inn i kerfið og allt var gert á æðri stöðum til þess að hylja þær gleymsku.Ég held þó að engan sakaði þótt þær væru rifjaðar upp aö nýju. Við erum meðlimir i NATO og það verður best skýrt með eftirfar- andi: NATO er varnarbandalag gegn utanaðkomandi árásum. 1 þvi eru 15 þjóðir og mannfjöldi þessara þjóða samanlagt er ekki langt frá 500 milljónum manna. Ef ráðist er á eitt af þessum löndum, er það sama og að ráðast á þau öll. Þetta er aðalvinningurinn við það að vera i sllkum félagsakap. Það er margviðurkennt að hornsteinn- inn, sem NATO hvilir á, er landið okkar, Island. Hvert það hernað- arlegt stórveldi, sem ræður yfir íslandi, ræður yfir Norður-Atlants- hafinu. Það mun hafa verið skoðun ráðamanna vesturveldanna, að aðstaðan, sem þeir höfðu á Islandi, hafi stytt til muna styrjöldina siðarj, og lesið hef ég um það, að þjóðverjar töldu, að ef þeir hefðu haft þá aðstöðu á Islandi, sem bandamenn höfðu, þá hefðu þeir haft meiri möguleika til að vinna striðið. Þá hefðu þeir getað stöðvað mikið af herflutningum bandamanna frá Bandarikjunum til Rúss- lands, en Island var eini staðurinn þá á jarðkulunni, þar sem slikt var hægast að gera. Ekki er nokkur vafi á þvi, að ef til stórátaka kæmi, þar sem Island yrði jafn-þýðingarmikið og það var i siðari styrjöldinni, þá verður það hernumið aftur og þá kannski af fleiri en einum, eða báðum hinna striðandi aðila en á meðan ekkert slikt skeður, þá höfum við samningsrétt, en þennan samningsrétt höfum við ekki notað nema að nokkru leyti. Ég hef litið þannig á þessi mál og geri raunar enn, að við höfum sýnt litið fjármálavit i samskipt- AÐ SELJA LANDIÐ um okkar viö NATO-þjóðirnar og þá ekki sist Bandarrikin, og miklu minna en aðrar þjóðir gera. Ég tel að við höfum haft aðstöðu til þess að nema þetta land sem við búum á að nýju, gera það betra og bygg- legra, það er að segja ef við hefðum haldið rétt á spilunum. Menn hafa helst bentá, sem mótmæli við þessum skoðunum, að dvöl hers- ins hér sé framlag okkar til þessara samtaka, sem komi okkur til góða i vörnum landsins, auk þess sem við yrðum af siðferðilegum á- stæðum að taka tillit til annarra meðlima samtakanna. Við þessu eru mörg svör til. Ef við erum i samvinnu við aðrar þjóðir, eru þær þá ekki lika i samvinnu við okkur? Vantar ekki eitthvað i samvinnu- hugsjónina hjá þeim þjóðum, sem eru nú þessa dagana að búa her- skip sin til átaka á Islandsmiðum og hafa þegar i öðrum þjóðarsam- tökum útilokað okkur frá betri kjara viðskiptum? Jafnvel þótt þær hefðu allan rétt til þessa, finnst mér skilningur þeirra á þörfum okk- ar til lifsins vera takmarkaður. Sannleikurinn er sá, að það er ekki mikið veður gert út af tvö hundruð þúsund manna þjóð, sem býr á ysta hjara heims. Við erum aðeins.til þegar hægt er að hafa gott af okkur. Tvisvar sinnum hefi ég séð, með skömmu millibili, i sjón- varpinu, þar sem ráðherrar okkar voru á ráðstefnum erlendis að flytja ræður. Sýnt var þegar þeir gengu eftir gólfinu að ræðustóln- um, en þá sá maður yfir salina, en allir stólarnir voru auðir, þar var enginn til þess að hlusta á boðskapinn. Annar salur hinna auðu stóla var i húsakynnum Sameinuðu þjóðanna. Skyldu ekki sendimenn okkar kenna nokkurs kulda þegar þeir tala yfir tómum stólum um lifshagsmunamál okkar? Áður en þeir koma heim er svo búið að birta hinar ágætu ræður þeirra I flestum blöðum borgarinnar og við sem heima sitjum, erum sannfærð um það, að raunverulega séum það við, sem stjórnum heiminum. En málið er ekki svona einfald. Við verðum sannarlega sjálf að gæta okkar hagsmuna. Þessu til stuðnings vil ég geta eins dæmis. Þessa dagana eiga Kaupmannasamtök Islands 25 ára aftnæli. Þessi samtök vinna að sameiginlegum hagsmunum stéttarinnar, en þau heimila þó engum, sem i þessum samtökum eru, að ganga inn i verslun annarra kaupmanna, sem einnig eru i þessum samtökum, og taka þar út vörur án þess að greiða fyrir þær. En þeir geta verið jafngóðir félagsmenn fyrir þvi, hver i sinu lagi og unnið sameigin- legum hagsmunum fullt gagn. Við ræðum þessi mál nánar i næstu mánudagsgrein þann 1. des. Aron Guðbrandsson. FYRRI GREIN Um allan heim eru DYNACO hljóm- flutningstœkin þekkt fyrir framúr- skarandi gœði og hogstœtt verð Hlustið og skoðið DINACO tœkin berið saman verð og gœði Skipholti 19 - Sími 23800 Klappastíg 26 - sími 19800

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.