Vísir - 24.11.1975, Blaðsíða 10

Vísir - 24.11.1975, Blaðsíða 10
10 Mánudagur 24. nóvember 1975. VISIR Páll Björgvinsson, besti maður Víkings, skorar eitt af sinum 7 mörkum i leiknum við Gummersbach. Viggó Sigurðsson fékk oft að finna fyrir kröftunum hjá Hansa Schmidt enda slapp enginn inn hjá honuin þegjandi og hljóðalaust. Eftir leikinn: Hansi Schmidt gefur eiginhandaráritanir a meðan Jón Sigurðsson situr dasaður inn i búningsklefa. Ljósmyndir Einar Slök byrjun varð Víkingi að falli Gummersbach með Hansa Schmidt í fylkingarbrjósti nóði fjagra marka forskoti sem reyndisf drjúgt á metunum í lokin Slök byrjun íslandsmeistara Vikings varð liðinu að falli þegar það lék við Gummersbach i Evrópukeppni meistaraliða i handknattleik i Laugardalshöli- inni á laugardaginn. Þvi að strax á fyrstu minútum leiksins náði þýska liðið 4 marka forskoti og þá forgjöf réðu vikingarnir ekki við. Vikingar komu hins vcgar á óvart eftir að þeir höfðu áttað sig aðeins á hlutunum og gáfu þýsku meisturunum ekkert eftir i lokin. Staðan i hálfleik var 8:12 fyrir Gummersbach og lokatölurnar 16:19 og unnu þvi vikingar siðari hálfleikinn með einu marki. Fyrstu upphlaup vikinga i leiknum voru hálf klaufaleg og er þar reynsluleysi mest um að kenna og á meðan þeir voru að átta sig á hlutunum höfðu þjóð- verjarnir skorað 4 mörk. Þá skor- uðu vikingarnir sitt fyrsta mark og voru þá liðnar 8 minútur af leiknum. Þessi munurhélst svo út allan fyrri hálfleik og staðan i leikhlé 8:12. Vikingar mættu tviefldir til leiks i siðari hálfleik og það var ekki að sjá neina uppgjöf og þeir fóru að saxa á forskotið smátt og smátt. Og þegar 9 minútur voru til leiksloka tókst þeim að jafna 15:15 við mikinn fögnuð áhorf- enda. En taugar þjóðverjanna voru sterkari i lokin, þeir biðu eft- ir betri marktækifærum og sigr- uðu örugglega i leiknum 16:19 — og skoraði Hansi Schmidt siðasta markið beint úr aukakasti eftir að leiktiminn var útrunninn. Vikingsliðið kom mjög á óvart i þessum leik, eftir heldur slaka leiki að undanförnu. Eftir að þeir höfðu yfirstigið minnimáttar kenndina sem hrjáði liðið i byrjun gáfu þeir þeim þýsku ekkert eftir. Páll Björgvinsson var langbesti maðurinn i liðinu og átti meiri eða minni þátt i flestum mörkunum. Sigurgeir Sigurðsson stóð sig mjög vel i markinu og varði oft mjög vel. Þá má nefna þá Jón Sigurðsson og Þorberg Aðal- steinsson sem komust vel frá leiknum. Viggó Sigurðsson ógnaði vel, en var heldur skotglaður og nýting hans léleg, eða 2 mörk úr 10 tilraunum. „Ég er ánægður með leik minna manna þrátt fyrir tapið”, sagði Karl Bcncdiktsson, þjálfari Vikings, eftir leikinn. „Satt að scgja þá bjóst ég ekki við þes'su svona góðu. Við fengum á okkur ódýr mörk i byrjun sem réðu baggainun. Ef við hefðum byrjað betur þá hefðum við sigrað i leiknum.” Ekki virðist vera mikil breidd i Stórt hjó Fram og Val Þrir lcikir voru leiknir i 1. dcild islandsmótsins i handknattleik kvenna i gær. Komu úrslitin I þeim engum á óvart — nema þá helst hvað sigrar Vals og Fram voru stórir. Valsstútkurnar sigruðu KR með 8 marka mun, 18:10, og Fram sigraði Viking með 14 marka mun — 21:7. Þriðji leikur- inn i gær var á milli Breiðabliks og Armanns og lauk honum með sigri Armanns 14:10. — kip — liði Gummersbach og það vakti athygli að aðeins voru notaðir sjö átta leikmenn og af þeim skáru sex sig verulega úr. Hansi Schmidt sýndi það og sannaði i þessum leik, að hann er enginn venjulegur handknattleiksmaður. Hann hefur greinilega róast með árunum og gerir nú mikið af þvi að senda til samherja — og vöktu linusendingar hans i leiknum mikla hrifningu og gáfu fimm þeirra mörk. Klaus Kater varði mjög vel allan leikinn og honum tókst að verja eitt viti. Af öðrum leikmönnum má nefna Brand (2), Feldhoff (5) og Deckarm (11). „Vikingsliðið kom mér svo sannarlega á óvart með getu sinni”, sagði þjálfari Gummers- bach, Rolf Jaeger eftir leikinn. „Þeir voru harðir i horni að taka, gáfu hvergi eftir og ef þeir hefðu byrjað betur er ekki gott að segja hvað gerst hefði”. Töluverð harka var i leiknum og voru dómararnir Odd Cooper og Terje Antonsen frá Noregi ekki nógu röggsamir. Þeir slepptu mörgum brotum, en sáu samt ástæðu til að kæla sex leikmenn — 4 úr liði Gummersbach i 11 minút- ur og 2 vikinga i 4 minútur. Það var ólikur svipur á leik- mönnum og forráða mönnum þýsku meistaranna Gummers- bach eftir leikinn við llauka i gær en: eftir leikinn við Viking á laug- ardaginn. Þeir gengu skælbros- andi út af eftir leikinn við Viking, en i gær voru þeir bölvandi og ragnandi og sýndu litið af brosinu fagra. Var það kannski ekki að undra, þvi að þeir uröu að sætta sig við tap fyrir „litla liðinu” úr Firðin- um, en við þvi höfðu þeir svo sannarlega ekki búist. Það sást greinilega þegar liðin hlupu inn á — þjóðverjarnir létu sér nægja að senda niu menn til leiks, og höfðu i sparifötunum á bekknum. menn eins og Hansa Schmitd, Feldhof og fleiri stjörnur. Þetta, ætluðu þeir að láta nægja á móti Haukum, en þýskur hroki varð þar fyrir áfalli. Haukarnir sýndu meisturunum i tvo heimana og sigruðu i leiknum með eins marks mun — 23:22. Þjóðverjarnir urðu fyrir þvi á- falli að missa markvörð sinn, Klaus Kader, útaf. Var hann fluttur á sjúkrahús með brotnar og lausar tennur eftir samstuð viö einn félaga sinn. Sá hafði sest „klofvega” á bakið á Svavari Geirssyni, er hann var að fara inn á linuna og skall hann á Kader með fyrrgreindum afleiðingum. „Þetta er fyrsti Evrópuieikur- inn sem við dæmum,” sögðu þeir félagar Cooper og Antonsen. Það var erfitt að dæma þennan leik, bæði liðin léku mjög fast — en beittu þó engum fólskubrögðum. islenska liðið var afar slakt i fyrri hálfleik, en lék aftur á móti skin- andi vel i þeim siðari”. Mörk Vikings: Páll Björgvins- son 7 (5) viti, Þorbergur Aðal- steinsson 3, Jón Sigurðsson 2, Viggó Sigurðsson 2 og þeir Stefán Halldórsson og Erlendur Her- mannsson eitt mark hvor. Mörk Gummersbach: Feldhoff 5, Deckarm 4, Henkels 3, Schmidt 3, Brand 3 og Schlagheck eitt mark. Nýting vikinga var þessi: 13 skot foru framhjá eða voru varin, 10 villur þar sem boltinn tapaðist og 16 mörk. Nýtingin i fyrri hálf- leik var 36% en i þeim siðari 47%, eða samtals 41%. Nýting Gummersbach var þessi: 13 skot fóru framhjá eða voru varin, 7 villur þar sem bolt- inn tapaðist og 19 mörk. Nýtingin i fyrri hálfleik var 57% á móti 39% i þeim siðari eða 49% i öllum leiknum. Sá sem kom i markið i hans stað var mörgum gæðarflokkum fyrir neðan — varði varla skot i 20 minútur — og notuðu Haukarnir sér þann tima til að jafna og komast yfir. Mikil harka var i leiknum enda urðu þjóðverjarnir alveg óðir þegar á móti fór að blása. Var fjórum mönnum frá þeim visað af leikvelli af dómurum leiksins, Karli Jóhannssyni og Hannesi Þ. Sigurðssyni, en ekki nema einum úr Haukum. Annar varþóborinn út af eftir að einn þýsku leik- mannanna hafði sparkað i höfuð hans þar sem hann lá á gólfinu. Ætlaði þá allt vitlaust að verða i húsinu, og lentu þeir m.a. saman Björn Kristjánsson, dómari, og Hansi Schmitd — en sem betur fer fyrir Björn var þar aðeins tekist á með þýskum orðum!! Gummersbach hafði yfir i hálf- leik — 12:11 — en Haukarnir jöfnuðu fyrir 13:13, og komust svo yfir i 16:14. Héldu þeir þeim mun það sem eftir var — hleyptu hin- um aldrei nær en eitt mark — og sigruðu eins og fyrr segir 23:22. Þeir Hörður Sigmarsson og Elias Jónasson voru frábærir i þessum leik. Hörður skoraði 10 mörk — og mistókst tvö vitaköst — og Elias skoraði 7 mörk. Aðrir leikmenn liðsins gáfu þeim litið eftir hvað getu snertir, en voru ekki eins harðir við að skora. — BB Þýskur hroki fyrir ófalli Gummersbach œtlaði að láta „varaliðið" nœgja gegn Haukum, en varð að sœtta sig við tap eftir mikil slagsmál

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.