Vísir - 24.11.1975, Qupperneq 8
8
vísir
Útgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: DaviO Guðmundsson
Ritstjóri og ábm: Þorsteinn Páisson
Ritstjórifrétta: Arni Gunnarsson
Fréttastjóri erí. frétta: Guðmundur Pétursson
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611
Afgreiðsla: Hverfisgötu 44. Simi 86611
Ritstjórn: Siðumúla 14. simi 86611. 7 linur
Askriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands.
i lausasölu 40 kr. eintakið. Blaðaprent hf.
Það verður eftir því tekið,
hverjir skerast úr leik
Rikisstjórnin hefur ákveðið að herða framkvæmd
verðstöðvunarlaganna. I sjálfu sér er það rang-
nefni, þegar rætt er um verðstöðvun, þar eð algjöra
verðstöðvun er ekki unnt að framkvæma. Það er
ógjörningur með öllu að fela verðbólguþróun með
lagaákvæðum einum saman. Þessi hefur lika orðið
raunin eins og eðlilegt er.
I sjálfu sér er óheppilegt að lög af þessu tagi séu
lengi i gildi. Ástæðan er einfaldlega sú, að það er
ekki hægt að framkvæma þau til lengdar. Hitt er
rétt, að verðstöðvunaraðgerðir geta komið að veru-
legu gagni i baráttunni við verðbólguna. Menn
verðaþó að hafa i huga, að þetta eru óeðlilegir verð-
myndunarhættir. Rikisstjórnin hefur allt annað að
gera en skeggræða um það, hvort leyfa eigi nokk-
urra króna hækkun á kaffi eða súkkulaði — svo að
dæmi séu nefnd.
Ákvörðun rikisstjórnarinnar nú um að herða
framkvæmd gildandi laga um verðstöðvun á þó rétt
á sér eins og ástatt er. Á siðustu mánuðum hefur
tekist að draga nokkuð úr hraða verðbólgunnar.
Ljóst er, .Mð ekkert má út af bregða, ef framhald á
að verða a þeirri þróun. Það er þvi eðlilegt að gera
nýtt átak i þvi skyni að koma á auknu jafnvægi i
þ j óðar búskapnum.
í þessu sambandi er þó nauðsynlegt að hafa i
huga, að allar aðgerðir af þessu tagi koma að litlu
haldi, ef ekki tekst heildarsamstaða um virka að-
haldsstefnu. Þessar ráðstafanir eiga þannig að
greiða fyrir hófsömum kjarasamningum. Það
skiptir nú meginmáli fyrir launþega i landinu að
dregið verði úr verðbólgunni. Þvi marki verður að-
eins náð með samstöðu stjórnvalda og hagsmuna-
samtaka.
Verðstöðvunaraðgerðir geta aðeins dugað i mjög
skamman tima. Það liggur þvi i augum uppi, að
þann tima, sem þessar aðgerðir eiga að vera, þarf
að nýta vel. í þeim efnum má engin skerast úr leik.
Viðbrögð hagsmunasamtakanna við þessum
hertu verðstöðvunaraðgerðum eru einkar fróðleg.
Að jafnaði hafa atvinnurekendur verið andvigir
verðstöðvunaraðgerðum og samtök launþega verið
þeim hlynnt. Nú er annað uppi á teningnum.
Fulltrúar verslunarinnar hafa að visu andmælt
þessum aðgerðum kröftuglega. Á hinn bóginn hefur
það vakið athygli, að Vinnuveitendasambandið hef-
ur fallist á þær. Þetta gerist þrátt fyrir þá staðreynd
að staða atvinnuveganna er nú yfirleitt mjög slæm.
Alþýðusambandið hefur fundið það að þessum
nýju verðstöðvunarráðstöfunum, að þær minni um
of á, að kjarasamningar standi fyrir dyrum. Þessi
afstaða bendir til þess, að Alþýðusambandið telji
þessar aðgerðir draga úr kaupkröfumöguleikum.
Hér er komið að kjarna málsins. Spurningin er sú,
hvort menn eru reiðubúnir til þess að fylgja fram
aðhaldsstefnu á öllum sviðum i þjóðarbúskapnum.
Það á eftir að reyna á, hvort þingmenn treysta sér
til að fylgja fram þeirri aðhaldsstefnu, sem fjár-
málaráðherra hefur markað með fjárlagafrum-
varpinu. Og enn á eftir að koma i ljós, hvort sam-
staða næst um kjarasamninga i samræmi við þær
efnahagslegu aðstæður, sem við búum við. Það
verður eftir þvi tekið, hverjir það verða, sem reyna
að skerast úr leik og setja verðbólguskriðuna af
stað á ný.
Mánudagur 24. nóvember 1975. VISIR
Umsjón: GP
M) MPM
Lögregla og sjúkralið stumrar
yfir einu margra fórnarlamba
siðustu hryðjuverkaöldu IRA á
Englandi.
1 Selfridge versluninni hafa
menn verið i óðaönn að setja
upphinar skrautlegu útstilling-
ar sinar, þó aðeins verði hægt að
nota helming þeirra glugga,
sem snúa að Oxfordstræti, þvi
að hinir eru enn i viðgerð eftir
sprengingu fyrir jólin i fyrra.
Alan French, framkvæmda-
stjóri Selfridgeverslunarinnar,
sagði Reuter-fréttastofunni að
sprengjutilræðin að undanförnu
hefðu komið niður á viðskiptun-
um, en hve illa, væri ómögulegt
að segja til um.
Hann sagði, að vegna efna-
hagsörðugleika Breta og veikr-
ar stöðu sterlingspundsins,
fengju erlendir viðskiptavinir
vel andvirði peninga sinna en
milli 25 og 40% viðskiptavina
Selfridge, og það gildir kannski
um allar verslanir við Oxford-
stræti — eru erlendir.
Jólaskrautið
er sprengju-
viðbúnaður
Finustu veitingahús
Lundúna hafa jóla-
skreytingar sinar úr
óbrothættum efnum nú
i ár.
í helstu kjörbúðunum
er leitað að sprengiefn-
um i töskum viðskipta-
vina.
Eigendur kvik-
myndahúsa biðja þess
heitastra bæna, að
sprengjualdan muni
ekki leiða til þess, að
fjölskyldur forðist
opinbera skemmti-
staði.
Frá þvi i ágúst hefur fjöldi
sprengja sprungið á ýmsum
opinberum stöðum i London og
sunnanverðu Bretlandi, og þá
helst i hinu auðuga West End
hverfi, þar sem það kynni helst
að koma niður á auðugri hópi
þjóðarinnar og ferðamönnum.
Nokkrir hafa látið lifið og
hundruðir slasast.
Lögreglan segir sprengjutil-
ræðin vera verk provisional
arms írska lýðveldishersins.
Þau hafa að undanförnu orðið
mun grimmdarlegri. Tuttugu
manns slösuðust núna á þriðju-
dagskvöldið þegar sprengja
sprakk i Walton-veitingahúsinu
og stráði stálnöglum og kúluleg-
um um allt.
Kúlulegur hafa lengi verið
algengar i sprengjum I.R.A. á
Norður-trlandi, en þeim hafði
ekki verið beitt i London, þar til
sprengja sprakk i veitingahúsi
þ. 12. þ.m. og drap einn mann en
slasaði 15.
Waltonveitingahúsið sem er
að sögn veitingahúsaskrár Egon
Dunlop „öruggt skjól þeirra, er
þarsnæða, fyrir umheiminum,”
varð fjórða fórnarlamb
sprengjutilræða á opinberum
matsölustöðum i London.
Lögregluþjónn beinir umferðinni burt frá hættusvæði, þar sem orðið
hefur vart viö eina vitisvélina, sem gera þarf óvirka, áður en fólki
er aítur óhætt.
Eftir það tilræði héldu veit-
ingahúsaeigendur i London með
sér sérlegan fund, þar sem þeir
ákváðu að veita hverjum þeim
sérstök verðlaun, er gæti komið
fram með upplýsingar, sem
leiddu til handtöku tilræðis-
mannanna. Einnig hugleiddu
þeir að setja öryggisvörð á
matsölustaði i borginni.
Scotland Yard hefur komið á
sérstökum varúðarráðstöfun-
um til verndar veitingahúsum,
m.a. að vernda gluggana með
gluggatjöldum er þyngd hafa
verið með plasti, polyester-
himnu eða terylene.
Setja á verði fyrir utan og
leita vandlega á veitingamönn-
um og gestum, ráðlagði leyni-
lögreglan — og gætu þannig
gömul, virðuleg veitingahús
breyst i nokkurs konar her-
skála.
Nú þegar jólin nálgast, verða
stóru kjörbúðirnar mjög
auðveld bráð. 1 fyrra voru
Harrods, Khnighsbridge versl-
unin, þar sem Elisabet drottn-
ing gerir innkaup og Selfridge i
Oxfordstræti, fyrir sprengjutil-
ræðum, án þess að manntjón
hlytist af.
French neitaði að ræða sér-
stakar varúðarráðstafanir
verslunarinnar, en sagði þær
mjög hafa aukist siðan i fyrra.
„A hverju augnabliki eru um
25.000 manns staddir i húsinu”,
sagði hann „þau eru öll á minni
ábyrgð og ég er að reyna að láta
ekici þá ábyrgð gera mig að
taugahrúgu.”
Þótt öryggisverðir séu við
allar dyr, er ekki þö.! á að lei*a
á viðskiptavinum, að uiiti versl-
unarinnar. 1 Harrods-verslun-
inni er hins vegar leitað a fólki
af og til, eftir þvi hvernig and-
rúmsloftið er i London þá og þá
stundina.
Leikhús i London hafa enn
ekki orðið fyrir barðinu á
hermdarverkamönnunum, en
eigendur þeirra vita það, að
hvert það, sem heldur Lundúna-
búum heima við á kvöldin, mun
einnig halda þeim frá leikhús-
unum.
Flestir skemmtistaðir i West
End hafa enn ekki skýrt frá
neinni hnignun viðskipta, þó að
leikhúsin i Westminster hafi
fækkað sýningum vegna minnk-
andi aðsóknar, sem þau kenna
spreng jutilræðunum.