Vísir - 24.11.1975, Síða 24

Vísir - 24.11.1975, Síða 24
vísm Mánudagur 24. nóvember 1975. SÍS stofn- ar ferða- skrifstofu Stofnuð hefur verið ný ferða- skrifstofa i Reykjavík, sem heitir Samvinnuferðir. Aðal- hluthafar eru Samband is- lenskra samvinnufélaga, Sam- vinnutryggingar og Oliufélagið. Hlutafé er 15 milljónir króna, og hefur kaupfélögum, felags- mönnum þeirra og félagasam- tökum verið gefinn kostur á að gerast aðilar að ferðaskrif- stofunni. Fyrstu stjórn hlutafélagsins, sem ferðaskrifstofuna stofnaði, skipa: Erlendur Einarsson, for- maður Valur Arnþórsson, Axel Gislason, Hjalti Pálsson, Hall- grimur Sigurðsson og Sigurður Þórhallsson. Framkvæmdastjóri er Böðvar Valgeirsson, sem verið hefur framkvæmdastjóri skrif- stofu SÍS i Hamborg. -AG BRAUT RÚÐUR OG GRINDVERK OG REIF UPP HRÍSLUR Það er vist óhætt að segja að maður hafi gengið berserks- gang á föstudagskvöldið. Maðurinn var ölvaður, og seint á föstudagskvöldið braut hann rúður, braut grindverk og reif upp hrislur. Þetta átti sér stað við Skipasundog viðar. Lögreglan tók manninn i vörslu sina, og gisti hann hjá henni þá um nóttina. -EA. Bresku togararnir eru nú farnir að hætta veiðum um leið og varðskip birtist, hvort sem þeir hafa dráttarbát sér til verndar eða ekki. Varðskip kom að 13 brezkum togurum undan Mið-Austurlandi um fimmleytið i morgun. Hjá þeim var dráttar- bátur, en þeir hifðu allir inn i snatri og létu reka eftir það. -ÓT. Fögn- uðurj Kröflu Nýja húsið i Kröflu er nú komið undir þak, og i tilef ni þess hélt Kröflunefnd starfsmönnum sinum boð s.l. föstudag, þar sem veittur var kokteill og smurt brauð. Kröfluncfnd mætti vitaskuld i hófinu og þar flutti Jón Sólnes þakkarávarp til starfsmanna. Kröflubyggingin er að sögn manna fyrir norðan álika stór og allar byggingar i Reykjahlið. Þessar myndir voru teknar á föstudaginn, annars vegar af byggingunni — og hins vcgar af Sólnes á tali við Kristján Grant, bilstjóra. Ljósm. Snæbjörn Pétursson — EB. GUÐMUNDUR J. FORMAÐUR VERKA- MANNASAMBANDSINS Stal veski Tveir menn voru handteknir á Hótel Borg á laugardags- kvöldið, grunaðir um að hafa stolið peningaveski. Annar viðurkenndi þjófnaðinn, en hinn reyndist ekki viðriðinn málið. Það var karlmaður sem saknaði veskis sins og annar aðili á Hótel Borg týndi peningabuddu sinni. Buddan kom i leitirnar, en hins vegar kvaðst eigandinn ekki finna þar þúsund krónur, sem þar hefðu átt að vera. -EA. Guðmundur J. Guðmundsson, varaformaður Dagsbrúnar, var einróina kjörinn formaður Verka mannasambands tslands á þingi, þess nú um helgina. Þinginu lauk um eitt i nótt Miklar umræður urðu um kjaramálin á þinginu. Hermann Guðmundsson i Hlif, Jóna Guðjónsdóttir og Eðvarð Sigurðsson, sem verið hafði formaður verkamanna- sambandsins, gáfu ekki kost á sér i stjórn sambandsins. Varaformaður Verkamanna- sambandsins var kjörinn Karl Steinar Guðnason ! Keflavik, sem áður var ritari þess, en Þórunn Valdemarsdóttir tók við ritarastörfum hans. -EKG. Þriggja manna fró Olafsfirði saknað Þriggja manna frá Ólafsfirði var saknað á iaugardag, og kom til kasta björgunarsveitarinnar þar að aðstoða mennina þcgar til kom. Mennirnir þrir fóru i eftirleit i Héðinsfjörð, til þess að huga að kindum, sem þér héldu að væru þar. Um klukkan 6 sama dag, þegar ekkert hafði frá þeim heyrst, var ákveðið að gera út leit. Björgunarsveitin ætlaði þegar af stað, en um það leyti komu boð frá Siglufjarðarradiói um að mennirnir væru staddir i skopbrotsskýli i Vik I Héðins- firði. Báðu þeir að sjálfsögðu um að verða sóttir. Astæðan fyrir þvi að þeir lentu i skýlinu var sú, að á þá skall dimm viðri með snjókomu þegar þeir ætluðu að snúa heim. Tóku þeir það þá til bragðs að snúa við i Héðinsfjörð aftur. I skýlinu er talstöð og gátu- mennirnir þvi komið boðum til Siglufjarðar. Björgunarsveitin i Ólafsfirði fékk 20 tonna bát, önnu, til Kom til kasta björgunar- sveitarinnar en mennirnir fundust fljótlega umráða og höfðu siðan með sér tilneyrandi tæki i Héðinsfjörð. Þegar þangað kom var það mikil kvika á firðinum, að þar var ekki lendandi. Var þvi skotið út linubyssu til mannanna i landi og þannig komið gúmmibát til þeirra A tólfta timanum um kvöldið voru þeir komnir aftur til Ólafs- fjarðar. -EA. Norðmenn undirbjóða Islendinga í Portúgal Heyrst hefur að norðmenn undirbjóði svo fiskmarkað i Portúgal, að erfitt geti reynst fyr- ir okkur fslendinga að ná nokkr- um samningum. Fulltrúar á veg- um Sölusanibands islenskra fisk- framleiðenda komu frá Portúgal nú um helgina án þess að hafa náð samningum. Visir hafði samband við einn sendimanna, Tómas Þorvalds- son, og spurði hann hvort rétt væri með undirboð Norðmanna. Tómast sagðist ekkert vilja láta hafa eftir sér á þessu stigi máls- ins, þeir hefðu engar sannanir i höndunum. Hann benti þó á þá staðreynd að norðmenn hefðu rikisstyrktan sjávarútveg upp á 30 milljarða svo þeir væru i sterkri aðstöðu. Einnig benti hann á hvernig farið hefði á Suð- ur-Ameriku markaði, sem áður hefur verið rætt og ritað um i fjöl- miðlum. A það hefði þó ekki fylli- lega reynt á þessu stigi hvort það komi til með að hefta samninga þeirra nú. Hann sagði umræðurnar hafa snúist um sölu á 3-4 þús. tonn af blautverkuðum, en þó að megin- magni þurrkuðum fiski. Portú- galar höfðu leyfi til að kaupa 3 þús. tonn. Tómas sagði að lokum að verð hefði lækkað mjög mikið á fisk- mörkuðum erlendis eða um 25-40% og jafnvel meira. Stendur sala á ufsa þar verst. — VS Flugleiðir og Iscargo vilja flutn- inga varn- arliðsins Hjá utanrikis- ráðuneytinu liggja nú umsóknir hjá Iscargo og Flugleiðum um flutning a fyrir varnar- liðið. Bæði félögin sækja um farþega- og vöruflutninga og hefur Hans G. Andersen fengið málið til at- hugunar. Flugfélag Islands og Loft- leiðir hafa nokkur undanfarin ár sent viðkomandi yfirvöldum og varnarliðinu á Keflavikurflug- velli umsóknir og beiðni um að fáað taka viðþeim flutningum á farþegum og vörum, sem varnarliðið sér nú um sjálft. Ekki hefurorðið af samningum. Fyrir nokkrum vikum itrekuðu Flugleiðir þessa um- sókn sina, en þá hafði Iscargo sótt um þessa flutninga. Yfirmenn varnarliðsins munu þó hins vegar sjá þá annmarka á þvi að láta Flugleiðir eða Iscargo annast þessa flutninga, að hvorugt félaganna getur tryggt, að verkföll stöðvi ekki flutningana. Mál þetta er nú i athugun hjá utanrikisráðuneytinu, yfir- mönnum varnarliðsins og viðkomandi stjórnardeild i Washington i samræmi við bókun, sem gerð var, er varnarsamningur tslands og Bandarikjanna var undir- ritaður. -AG.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.