Vísir - 17.12.1975, Qupperneq 11
VISIR Miðvikudagur 17. desember 1975.
11
NÝJAR HLJÓMPLÖTUR Á. Á. RECORDS
Skortir allar
upplýsingar
Þá er Ámundi Ámunda-
son ioksins orðinn þátt-
takandi í ,,hljómplötu-
flóðinu mikla" með út-
gáfu hljómplötunnar
„HRIF nr. 2".
„Hrif 2” er ansi athyglisverð
plata, þvi að á henni koma fram
fimm hljómsveitir, með tólf ný
lög.
Þetta eru hljómsveitirnar
Pónik, Hvitárbakkatrióið, Spil-
verk þjóðanna, söngflokkurinn
Nunnurnar, og Bergþóra Árna-
dóttir, athyglisverð söngkona að
austan.
Eitthvað hefur Amundi þó
verið að spara blekið þegar
umslag plötunnar var hannað,
þvi fátækar eru uppláyingarnar
á þvi, þvi miður.
Þó liggur eitt ljóst fyrir, og
það er að Jakob Magnússon
hefur stjórnað öllum upptökun-
um, sem voru gerðar i Hljóðriti
h/f, Majestic Studio og R.A.
Studio.
Hlutdeild Jakobs má greini-
lega heyra i allflestum lögun-
um, sbr. pianóleik.
NUNNURNAR: flytja tvö lög
á plötunni „Lucifers Carnival”
eftir þá félaga Jakob M. og
TómasT.og „River Boulevard”
eftir B. Maurits.
Hið fyrrnefnda er betra lagið,
og má þar heyra að góður
bassaleikari er á ferð, mjög lik-
lega Tómas sjálfur.
SPILVERK ÞJÓÐANNA: á
fjögur lög á plötunni
„PANOLA”, „EGILS APPEL-
SÍN”, „ITS ONLY ME” og
„SUMMERS ALMOST GONE”,
öll eftir Spilverið sjálft.
„PANOLA” á sennilegast rót
sina að rekja til Egils, ákaflega
viðkunnanleg jass-ballaða.
í „Egils appelsini” bregður
svo fyrir fjári skemmtilegum
hljóðfæraleik á banjó og fiðlu,
en greinilegt er að Spilverkið
hafði ekki afklæðst stuðmanna-
klæðunum við upptöku þessa
lags.
„Its only me” syngur Egill
mjög vel, og greinilega má
heyra að Jakob M. hefur komið
mjög við sögu i laginu sbr. út-
setningu. Fleiri raddir hefðu
ekki sakað i laginu, sem annars
er með betri lögum plötunnar.
„Summer almost gone” hefur
Jakob útsett mjög vel miðað við
aðrar útsetningar Spilverksins,
þar sem litt hefur borið á
trommum og rafmagnsbassa.
Lagið hefur allt til þess að
bera að vera eftir Sigurð
„bjólu”.
HVITARBAKKATRIÓ: Jakobs
Magnússonar á tvö lög á plöt-
unni „MOVING ON” og
„WHERE WERE YOU”.
Bæði eru lögin góð. „Moving
On” róleg melódia, en „Where
Were You” aftur á móti öllu
hraðara og eftir þá félaga
Tómas og Jakob.
BERGÞÓRA ARNADÓTTIR:
syngur tvö lög á plötunni, „ÉG
ELSKA”, og „ÞRÁ”, og skilar
hún hlutverki sinu mjög vel.
Bergþóra hefur ekki sungið
inn á plötu fyrr, mér vitanlega,
og eftir að hafa hlýtt á hana á
þessari plötu a.m.k. i laginu
„Þrá” leyfi ég mér að vona að
hún láti ekki staðar numið.
Lagið hefur hún sjálf samið
við ljóð B. Braga.
„Ég elska” er engu siðra lag,
en einhvem veginn finnst mér
eins og söngur Bergþóru sé
kæfður i full sterkum hljóðfæra-
leik, i lagi sem hefur að bera
hugíjúfan texta, og á þvi bæði
að vera rólegra og ekki eins
spunnið upp.
PÓNIK: flytja að lokum tvö
lög á plötunni, „Ég sakna þin”
eftir Þorvald Halldórsson og
„Sólarlag”.
Hið siðarnefnda er öllu
áheyrilegra, án þess þó að vera
á nokkurn hátt gott lag.
Greinilega má heyra mismun
á þessum lögum, og öðrum lög-
um plötunnar, senda sennileg-
ast hljóðritað undir allt öðrum
kringumstæðum þar sem að
útbúnaður hefur ekki fullnægt
hljóðfæraskipan Póniks.
„Ég sakna þin” er svarti
sauður plötunnar, og hefði plat-
an tvimælalaust getað verið án
þess.
Þetta hefur verið smá rabb
um efni „Hrif 2”, þvi miður
getur Tónhornið ekki upplýst
ýmislegt sem fróðlegt væri að
vita um einstök lög hennar þvi
eins og fyrr segir þá fylgja eng-
ar upplýsingar. Það finnst Tón-
hominu slæmt, og hyggst bæta
upp á næstunni.
Tónhorninu finnst það litils-
virðing hljómplötuútgefanda
við hinn „almenna kaupanda”
að veita ekki betri upplýsingar
um efni plötunnar en þær sem
ritaðar eru á albúmið, en þær
eru ansi fátæklegar.
Eitt þarf hlustandinn að hafa i
huga er hann hlýðir á „Hrif 2”.
Spilverk þjóðanna hljóðritaði
lög sin fyrr á þessu ári, löngu
áður en að þeirra eigin plata var
komin á umræðustig, þannig að
lita ber á lög Spilverksins sem
algera byrjun á þeirri braut
sem Spilverkið nú er á.
— örp
Vilhjálmur V. byrjaður á ný
Þau eru orðin mörg árin siðan
að Vilhjálmur Vilhjálmsson
söng siðast inn á hljómplötu.
Vilhjálmur hefur undanfarin
ár starfað i Luxembourg sem
flugmaður, en er nú aftur kom-
inn heim og er farinn að gera
merkilegustu hluti svo sem að
bjarga útgerðarfélögum, strlða
rútubilstjórum m.m. og allt
þetta gerir hann fljúgandi.
Hið merkilegasta við þetta
alit saman er, aðVilli hefur ekki
týnt röddinni, þvi eftir öll þessi
ár um þessar mundir þenur
hann hana sem mest suður i
Firði.
Vilhjálmur er nefnilega að
syngja inn á enn eina hljóm-
plötu, I þetta sinn án Ellu syst-
ur, og lögin eru eftir Kristján
frá Djúpalæk.
Nánar verður sagt frá atferli
Villa seinna.
örp
NÝJAR HLJÓMPLÖTUR___Árni Johnsen
„Ég skal vaka"
Það er um það bil ár siðan að ég
hitti Arna Johnsen á förnum
vegi, og sagði hann mér þá að
næsta plata sin myndi innihalda
ljóð Laxness, en þá var hann ný-
búinn að gefa út hljómplötu sina
„Þú veist hvað ég meina”.
Ég óskaði Árna alls hins
besta, en satt að segja bjóst ég
ekki við að hann myndi ráðast i
þetta verk.
Það er hann samt svo sannar-
lega búinn að gera, og smekk-
lega i þokkabót.
„Ég skal vaka” venst mjög
vel, og hún hefur að geyma ein-
stakan sjarma.
Óþarfi er að rekja efni hennar
sérstaklega, þvi eins og fyrir-
rennari hennar, „Þú veist hvað
ég meina”, er hún vel úr garði
gjörð, hvað upplýsingar til
hlustendans varðar.
Upphaflega stóð til að plata
þessi kæmi út fyrr á þessu ári,
sem hefði verið æskilegra, en
þar eð „útgefandinn tilvonandi
gleymdi að rifa af dagatali
sinu”, dróst útgáfa hennar á
langinn, (eða lánginn, eins og
Laxness skrifar)!
Árni hefur þvi gefið hana út
sjálfur, og stofnað til þess út-
gáfufyrirtæki með þvi merki-
lega nafni „Milljónaútgáfan
Einidrangur”.
Einidrangur þessi mun vera
skertittur einn, er stendur upp
úr sjó vestast i vestmannaeyja-
klasanum, og hefur i gegn um
árin staðið af sér brim og stór-
sjó. Vonandi styrkir það þetta
nýja fyrirtæki Arna.
Arni vill oft á tfðum verða full
hávær i söng sinum, og gefur þá
fáum kost á þvi að syngja með,
en á „Ég skal vaka” kveður við
önnur visa.
Ami syngur af einlægni, og i
lögum eins og t.d. „Þingvalla-
veginum”, mætti halda að ein-
hver allt annar væri á ferðinni,
svo mjúklega fer Arni með ljóð-
ið.
Þá ber að geta um þátt Jón
Sigurðssnar, en hann hefur út-
sett öll lögin mjög skemmtilega,
og á hann stóran þátt i þvi að
gera plötuna jafn heilsteypta og
raun ber vitni. Tvær „Nunnur”
leggja Arna til lið og raddir i
fjórum lögum, eða þær Drifa
Kristjánsdóttir og Helga Stein-
sen.
Þorsteinn Magnússon, gitar-
leikari úr Eik, leggur til smá
„Búðardals-filingu” i Ijóðinu
„Reikningsskil” og Jón
Arni Þórisson úr Litið eitt spilar
á mandólin i ljóðinu „Um hina
heittelskuðu”, og kemur það
skemmtilega á óvart. Sigriður
„Carmen” Magnúsdóttír og
Garðar Cortestaka þátt i tveim-
ur lögum með Árna, að
ógleymdum meistaranum sjálf-
um Laxness, sem fer sjálfur
með tvö ljóð sin „Bráðum kem-
ur betri tið” og „Striðið”.
Við hiðsiðarnefnda hefur Árni
gert mjög smekklegt lag, en
ljóðið sjálft höfðar til Bjarts i
Sumarhúsum (úr Sjálfstæðu
fólki) er hann orti til dóttur
sinnar Astu Sóllilju.
Gaman hefði verið að heyra
Laxness lesa fleiri ljóð sin, en
það var vfst ekki meiningin með
þessari plötu, kannski að
„milljónafyrirtækið” hugsi til
þess næst.
Sem sé, „Ég skal vaka” er
heilsteypt, róleg plata, sem að
minum dómi býr yfir vissum
sjarma, þeim sama sem ávallt
er nærri þegar Laxness á i
hlut.
Orp.
Nýjar hljómplötur
— Hljómar 016
„GLEÐILEG JÓL"
Hljómar gleðja eflaust marga
um jólin, með útgáfu þessarar
plötu.
Eins og nafn hennar „Gleðileg
jól” bendir til, þá er eingöngu
um jólalög að ræða, ný og gömul
i vandaðri útsetningu Hljóma.
Reyndar hafa þeir skipt plöt-
unni bróðurlega á milli sin þeír
Þórir Baldursson og Gunnar
Þórðarson en báðir hafa þeir út-
sett sex lög hvor. Af útsetning-
um Þóris vekur „Klukkna-
hljómur” mesta athygli, enda
hefur Þórir gert samning við
þýskt útgáfufyrirtæki, um út-
gáfu þessa lags á tveggja laga
plötu.
„Gleðileg jól” má teljast
gallalaus, hún nær fullkomlega
sinu takmarki, að vekja upp
jólastemningu, henni fylgja
sannast að segja kertaljós,
klukknahljómur, og ilmur frá
jólamat mæðranna.
Eitt lag hefur Gunnar Þ.
samið fyrir plötuna, „Jóla-
snjór”, mjög smekklega gert
hjá Gunna, getur hlustandinn
næstum séð snjóflyksurnar faila
um leið og hann hlýðir á lagið.
Fjórir jólasveinar annast
allan undirleik, (Hljómar). en
auk þeirra koma fram sem fyrr
segir Þórir Baldursson og systir
hans Maria (all in the family!)
Þetta er að minu mati góð
jólaplata, og á eflaust eftir að
gleðja marga um þessi jól, svo
og ókominn.
„Klukknahljómur” ber höfuð
og herðar yfir önnur löe plöt-
unnar sökum útsetningar Þóris,
en fjörugu lögin „Snæfinnur
Snjókarl”, „Hátið i Bæ”, og
„Jólasveinninn minn”, fylgja
þvi fast eftir.
— örp