Lesbók Morgunblaðsins - 18.03.1945, Side 1
11. tölublað. Sunnudagur 18. mars 1945. XX árgangur.
laaful Jarpr«etauil^)a b.A
Vestfirðir, háreistir hafinu mót,
heilsa farmannsins skeið,
og Núparnir þínir á stórleitri strönd
standa á verði um hans leið. —
I fjallanna skjóli, við fjörðinn þinn blá,
er fræknasta soninn oss gaf,
fyrir sex tigum ára, úr sæmdarhöfn,
þú sigldir á aldanna haf.
Og bestu föngum var búin þín gnoð,
þar brotalöm engin var,
því kjörviðir voru í kyli og röng,
og knörrinn af öðrum bar
förum, sem lögðu út á lífsins djúp.
— Leiðarstein skorti ekki fley. —
Hann var trúin á okkar elskaða land,
sem þú unnir sem festarmey.
Því furðar mig ekki er farmannasveit
frá okkar dögum jeg sje,
að í lyftingu ber þig nú höfðingja hæst, §
við himin gnæfa þín vje,
fögur og hrein yfir langferðar leið,
lýsandi vizku og dáð. —
Þú hófst þau á loft með þá hjartfólgnu ósk j
að heiðra þitt ættarláð.
í dag er jeg leit þína skrautbúnu skeið
skarta við hafsins brún,
jeg snekkjunni minni á veg hennar vjek, j
með veifuna mína við hún.------
Jeg þakka okkar samflot á langri Jeið, i
— að lendingu ber okkur senn.
Nú sveifla jeg hattinum hátt til þín.
— Við heflum ei seglin enn.
15- febr. 1945
Sigurður Sigurðsson frá Vigur
mmi iii 11111111111111111111111111111
IMMMMMMMMMIMMMI
IIIIIMIIIMMIIIIIIMIIIIMIIIIIIIIIIIMMIIIIIIIIIIMMMI