Lesbók Morgunblaðsins - 18.03.1945, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 18.03.1945, Page 1
11. tölublað. Sunnudagur 18. mars 1945. XX árgangur. laaful Jarpr«etauil^)a b.A Vestfirðir, háreistir hafinu mót, heilsa farmannsins skeið, og Núparnir þínir á stórleitri strönd standa á verði um hans leið. — I fjallanna skjóli, við fjörðinn þinn blá, er fræknasta soninn oss gaf, fyrir sex tigum ára, úr sæmdarhöfn, þú sigldir á aldanna haf. Og bestu föngum var búin þín gnoð, þar brotalöm engin var, því kjörviðir voru í kyli og röng, og knörrinn af öðrum bar förum, sem lögðu út á lífsins djúp. — Leiðarstein skorti ekki fley. — Hann var trúin á okkar elskaða land, sem þú unnir sem festarmey. Því furðar mig ekki er farmannasveit frá okkar dögum jeg sje, að í lyftingu ber þig nú höfðingja hæst, § við himin gnæfa þín vje, fögur og hrein yfir langferðar leið, lýsandi vizku og dáð. — Þú hófst þau á loft með þá hjartfólgnu ósk j að heiðra þitt ættarláð. í dag er jeg leit þína skrautbúnu skeið skarta við hafsins brún, jeg snekkjunni minni á veg hennar vjek, j með veifuna mína við hún.------ Jeg þakka okkar samflot á langri Jeið, i — að lendingu ber okkur senn. Nú sveifla jeg hattinum hátt til þín. — Við heflum ei seglin enn. 15- febr. 1945 Sigurður Sigurðsson frá Vigur mmi iii 11111111111111111111111111111 IMMMMMMMMMIMMMI IIIIIMIIIMMIIIIIIMIIIIMIIIIIIIIIIIMMIIIIIIIIIIMMMI

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.