Lesbók Morgunblaðsins - 18.03.1945, Qupperneq 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS J
153
Edv. Munch: Frá Ásgarðsströnd..
Munch var oft óánægður með
myndir sínar, er ]iæi' vorp fullunn-
ar. Það kom líka fyrir að „skissur“
hans voru meiri listaverk en full-
gerðu myndirnar. Óánægja hans
með fullgerðu myndirnar var vafa-
laust oi’sök þess, hve oft hann mál-
aði sama efni.
Eitt sinn bauð jeg honum 2000
krónur fyrir skínandi „skissu“ sem
hann hat'ði hjá sjer úti í Eikaskjóli.
— Þetta er gott verð fyrir fáein
strik, sagði hann. En jeg get ekki
selt hana. Jeg þarf' að halda áfram
með myndina. Maður getur ekki
'hætt í miðju kafi þó byrjunin sje
góð.
Nokkrum klukkustundum seinna,
hringdi hann til mín og sagði:
Nú getið þjer fengið þessa skissu
fyrir 1000 krónur. Þjer munið að
þjer buðtið 2000 fyrir liana. Jeg hef
haldið áí'ram með hana. Nú skul-
uð þjer koma og s.já hana.
★
MUNCH bygði upp myndir sínar
með öryggi svefngöngumanns. —.
Þyngdarhlutföll myndanna vegast
á. Fólkið í myndum hans stendur
þar föstum fótum, rje't ems og
það hafi skotið rótum í jörðu niður.
Munch málaði myndir eins og
sýnirnar festust í minni hans. ^
Hann lýsir ekki því, sení
fyrir augun ber, með því að renna
augunum til eftir sjónfletinum. —•
Þessvegna er alt skýrasta í miðju
myndanna. En eftir því sem nær
dregur útjöðrununr verður alt ó-
Munch var hinn óþreytandi til-
raunamaður. Hann var altaf að
reyna fyrir sjer. Væri hann óánægð-
ur með einhverja nrynd, þá ljet
hann hana óhreyfða vikum saman.
Þá ljet hann myndirnar stundum
út í sól og.regn. Það kallaði hann
„hrossalækningu“. Á þann hátt
breyttist oft litaráferðin, og þessar
ósjálfráðu breytingar urðu til þess
að hann hjelt áfrarn nreð myndina.
Mjer finst myndir nrínar þurfr
einhvern elliblæ, sagði hann. Sól og
regn samræmir oí't litina. Meðan
myndirnar eru nýjar. er eiilhver
harka yfir þeim, sem þarf að hverfa.
★
MUNCII hefir nrálað landslags-
nryndir bæði frá Þýskalandi og
Frakklandi, en þrátt fyrir það var
hann óvertju staðbundinn listamaðí
ur. Megnið af land^lagsmyndum
hans er frá Osló-íisðinum og ná-
grenni hans. Einkurn \'ar horrunr
lagið að mála landslagsmyndir
frá ströndunum, í vetrarham,
skóga og sljettur. Auk þess hefir
hann málað sæg af andlitsmyndum.
greinilegra.
1