Lesbók Morgunblaðsins - 20.05.1945, Síða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 20.05.1945, Síða 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSLNS 285 efnafræðinni. Við þessar rannsókn- ir kom smátt og smátt í ljós, að til voru efni, sem ekki var hægt að breyta hvoru í annað. Þetta veikti trúna á hinar grísku kenningar, og upp úr því er farið að reka efna- fræðilegar rannsóknir, ekki í eigin þagsmunaskyni, heldur sem vísinda- grein, þar sem leitað er sem víð- tækastrar samvinnu, og hver birtir árangurinn af rannsóknum sínum. Þróun atómhugtaksins. Það kom brátt í ljós, að Öll efni má kljúfa í tiltölulega fá frumefni. sem ekki ep hægt að kljúfa írekar feða breyta livoru í annað. Til þess- ara frumefna teljast t. d. allir málm arnir. Eiginleikar frumefnanna gerðu það líklegt, að þau væru byggð upp af örsmáum ódeilanleg- Um ögnum, sem allar væru eins í sama frumefni. Agnir þessar fengu nafnið atóm eða frumeindir, en stærð þeirra er allt of lítii til að hægt sje að sjá þær í sterkustu smá- sjám. Lengi vel virtist það vonlítið að menn gætu nokkurntíma orðið var- ir við einstök atóm, og margir litu svo á, að atómkenningin skýrði að vísu ágætlega ýmsa sjerkennilega eig inleika efnanna, en voru þó engan veginn sannfærðir um að efnin væru í raun og veru byggð upp af slíkum smá-ögnum. Þannig var ástatt um síðustn aldamót. En þá rennur upp tímabil, sem gefur atómkenningunni nýtt líf. Það byrjar með uppgötvun á. jáður óþekktu fyrirbrigði, sem fjekk nafnið radíóaktivitet.' . Fyrst'varð þess vart á þann hátt, að ljósmyndaplötur urðu svartar, ef þær lágu nærri vissum bergtegund- um, sem innihalda frumefnið úran. Jjað leit út eins og þessir steinar sehdu frá sjer ósýnilega geisla, sem meira að segja gátu farið í gcgnum Ijósþjettar umbúðir. Rannsóknir á þessu fyrirbrigði voru fyrst og fremst gerðar af hjón unum Curie í París, Þáu fundu að þessir ósýnil. geislar gerðu loftið Jeiðandi fyrir rafmagn og nptuðu þennan eiginleika til að mæla styrk leika þeirra. 1 mörg ár unnu þau að efnagreiningu þessara merkilegu steina og fundu loksjað meiginhluti geislamagnsins fylgdi efni, sem ekki varð talið til neinna hinna þekktu frumefna. Þetta nýja frumefni köll uðu þau radíum, en geislamagn* þess var svo sterkt, að loftið í kring um það varð sjálflýsandi. Yið nánari rannsókn á geislunr þessum kom í Ijós, að þeir eru þrenns konar. Ein tegundin er sama eðlis og Ijósgeislar og útvarpsbylgjur. Þó er bylgjvdengdin miklu minni, en það gerir það að verkum, að þeir verða ósýnilegir og einnig að þeir komast í gegnum næstum því hvað sem er. Onnur tegundin eru örsmáar agnir blaðnar neikvæðu rafmagni, sem kastast með miklum hraða út frá hinu geislandi efni. Agnir þessar voru engan veginn óþekktar áður því að þær eru sams konar og agnir þær, sem flytja rafmagnið til okk- ar gegnum leiðsluþræðina og fá þráðinn í glóðarlampanum til að lýsa — hinar svokölluðu elektrónur. Aðeins var hraði elektrónanna þarna miklu meiri en áður hafði þekkst og gerði það að verkum að þær gátu auðveldlega komist í gegn um þunnar pappír^umbúðir, jafn- vel þó að þær væru Ijósheldár. — Þriðja tegund þessara radíóaktívu ,.geisla“ eru einnig agnir, sem þjóta Þriðja tegund þessara radíóaktíva efni, en þær eru hlaðnar jákvæðu rafmagni og eru miklu þyngri en elektrónurnar. Þær stöðvast 'mjög fljótt ef eitthvað verður á vegi þeirra. í lol'ti komast þær t. d. aðdns fáa cm. Þar sem þær stöðv- ast myndast af þeim frumefnið helí- um, en það tilheyrir hinum eðlu loftegundum og»er ljettast þeirra. Atómmynd Rutherfords. Á þessu stigi málsins er Eng- lendingurinn Rutherford atkvæða- mestur við rannsóknirnar. Með því að rannsaka árekstrá milli helíum- agnanna og atóma mismunandi frumefna, komst hann að raun um að agnir þessar flugu óhindrað gegn urn flest þeirra atóma, sem þær inættu. Þó kom það einstöku sinn- um fyrir, að þær snögg-beygðu cins og þær hefðu rekist á eittvað hart. Af þessum tilraiuium sínum gat Rutherford dregið þá ályktun, að atómið væri engin föst heild, held- ur væri aðal þungi þess eða massi isafnaður jsaman á örlitlu svæði inn- an atómsins. Yið þetta svæði, sem kallað er kjarni atómsins, er einnig tengd jákvæð rafhleðsla, sem hrind- ir heljum-ögnunum frá sjcr þar sem þær hafa einnig jákvæða hleðslu. Aður vissu menn, að elektrónur geta komið frá hvaða efni sem er. ,Það er því eðlilegt að ætla að þær sjeu hlutar af atónuim frumefnarjaia og að hleðsla þeirra vegi upp á móti hleðslu kjarnans, svo að atóm- ið sem heild hafi enga rafhleðslu. Atómmynd Rutherfords minnir jnjög á sólkerfið. í miðju atóminu er kjarninn, þar sem mestur hluti atóm-massans er saman kominn, en. í kringum hann/snúast elektrónurn- ar eins og pláneturnar um sólina. Illeðsla kjarnans og þar með fjöldi elektrónanna, sem snýst f kringuni, hann er mismunandi fyrir mismun- andi frumefni, minnst fyrir þau Ijettustu og mest fyrir þau.þyngstu. f ljettasta frumefninu, vetni, svar- ar kjaraahleðslan til hleðslu einna1' elektrónu, svo að vetuisatómið hefur aðeins eina elektrónu, sem snýst um kjarnan. Þyngsta frumefnið, úr hn, hefur kjarnahleðsluna 92 og 92 élektrónur. Ilelíumkjarninn hefur hleðsluna 2, en það er sarna hleðsla 'og helíum-agnir þæi- hafa, sem hin, radíóaktífu efni senda frá sjer. Massinn er eínnig sá sami, svo að

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.