Lesbók Morgunblaðsins - 30.11.1947, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 30.11.1947, Blaðsíða 16
/ 364 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS " / ÁRNASAFNI. Safn Áma Magnússonar í Kaupmannahöfn er sá staðilr, þar sem flest islensk handrit frá fyrri öldum eru niður komin. M101 láta nærri að þar sje 2000 handrit af íslenskum uppruna, og fjöldi íslenskra fombrjefa að auki. Mynd þess'x er tekin í safninu og sjást hjer fimm skinnbækur, misstórar, allar í fomu bandi: trjespjöld, sem haldið er saman með snxr- um í kjölinn. Stærst er Möðruvallahók, eitt aðalhandrit Islendingasagna og flestum bókum dýrmæ.tari. Til samanburðar sjást fáeinar alkunnar bxkur á bak við: orðabók Fritzners í fyremur bindum og íslensk biblía. Fremsl liggur litið skinnhandrit og ein af 1slendingasögum í útgáfu Sigurðar Kristiánssonar. SKRIFLA 1 Reykholti í Borgarfirði er hver sá, sem Skrifla heitir. Hún á fyrrum að hafa verið í Geitlandinu . . . en flutti sig skömmu áður en hraunið brann . . . Það er náttúra Skriflu, að hún gýs ákafar en hún er vön, þegar ókunnugir menn eru of forvitnir að skoða hana, og er henni þá mjög gjarnt til að þeyta á þá logheitum vatnsgusum, þó þeir standi ekki all-nærri henni. Skrifla þolir enga hnýsni eða forvitni um sína hagi. (M. Grímssoa). . HVALREKI Björn Jórsalafara hrakti til Grænlands 1385 og var hann tvo vetur í Eiríksfirði. Það bar til að þar rak steypireyði mikla og var í skutull með marki Ólafs bónda í Æðey á íslandi, og tók Björn til sín skotmannshlutinn, en það var f jórðungur hvalsins, en kvaðst mundu borga Ólafi bónda skotmannshlutinn, er hann kæmi aftur til íslands. — Hannes Þorsteins- son, þjóðskjalavörður, taldi að það gæti varla staðist að Ól'afur í Æðey hafi ver- ið fullþroska og bóndi í Æðey 1385, og muni þessa sögn um steypireyðina óhætt mega heimfæra til Bjarnar ríka Þorleifs- sonar, og hafi sögum um þá nafna verið ruglað saman. í SUNDUNUM inn af Reykjavík var mikill kaupstaður á miðöldum, fyrst við Þemeyjarsund og síðan í Gufunesi. Á fimmtándu öld er oft getið um skipakomur í Þerneyjarsund og til eru brjef, sem virðast hafa verið gerð þar í kaupstaðnum. Þaðan fluttist svo kaupstaðurinn að Gufunesi og í brjefi 1496 er talað um „kapprein í Gufunesi". Þessi forni kaupstaður hefur því verið fyrirrennari Reykjavíkur. BIKARINN í TJARNARKIRKJU Árið 1853 ,var Guðmundur Ketilsson á Illugastöðum á Vatnsnesi sæmdur heiðursverðlaunum hins konungl. danska landbúnaðarfjelags. Var það silfurbikar mikill og prýðilegur með áletruðu nafni hans. Þennan bikar gaf hann Tjamar- kk-kju, og hefur hann síðan verið not- aður þar við altarisgöngur. BLESSAÐUR JÖKULL lllur vegur á Vestfjörðum og Gláma skárst, því að þar fer maður á blessuðum #ökli. (llr brjefi frá Jónasi Hallgríms- syni).

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.