Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1949, Qupperneq 11

Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1949, Qupperneq 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 183 „ T rr 1~W ' - HÖRÐ LlFSBARÁTTA Frh. af bls. 179. svo niður að sjó, bleytti vetling- ana og hýddi mávinn rækilega með þeim. Við þetta brá svo að ræn- ingirtn kom ekki aftur. Ueimsóknir bjarndýra. Einhvern hafísavetur var það, að bjarndýr gengu á land á Glett- ingsnesi. Magnús átti byssu, því að þótt hann vildi ekki skjóta fugla, þótti honum vissara að hafa hana ef bjarndýr kæmi, eða þá Hund- Tyrkinn, sem menn óttuðust mjög á þeim árum. Nú er það eitt kvöld er alt fólk- ið sat í baðstofu, að það heyrir óvæntan brest, og gluggarúðan, sem var aðeins ein, hrynur í mol- um inn á gólf, en bjarndýr sting- ur hausnum inn um gluggann og svipast um. Mun þá hafa slegið ó- hug á fólkið. Bangsi hvarf skjótt aftur úr glugganum og hljóp Magn ús þá til og tróð einhverjum flík- um í gluggagatið. Stundu seinna læsir bangsi klónum í tuskurnar og dregur þær til sín og lítur svo inn í baðstofuna að nýu. En þá hafði Magnús gripið byssu sína og ljet skotið ríða beint í trýnið á honum. Við það hvarf bangsi. Um morguninn, þegar Magnús kemur út, sjer hann hvar björninn liggur niður á klapparbrún og virtist dauður .En svo var ekki, því að þegar Magnús nálgaðist hann, drógst hann fram af klöppinni og komst í vök milli íssins og lands. Þar flaut hann ósjálfbjarga, og virtist dauður, en engin tök voru á að ná honum. Var þetta því Magnúsi sýnd veiði en ekki gef- in. Seinna um daginn sá Magnús annað bjarndýr koma brunandi ofan brekkurnar fyrir ofan bæ- inn. Rendi það sjer á rassinum og fór sem fugl flygi, því að bratt er þarna. En ekki komst Magnús í skotfæri við það, því að það hrað- aði sjer.út á ísinn. Varð svo ekki fleiri bjarndýra vart þarna þelta vor. Sjókona. Þá er að segja frá Brandþrúði. Hún var alla ævi hjá Magnúsi bróður sínum og giftist ekki. Á ungum aldri kyntist hún myndar- legum pilti og hjetu þau hvort öðru trygðum. En svo dó piltur- inn og hjet hún því þá að fella ekki hug til neins annars, og það efndi hún trúlega. Brandþrúður var mesti sægarp- ur og undi sjer best á sjónum. Reri hún jafnan með Magnúsi bróður sínum. Hún hafði altaf stýrt og haft gát á seglum, því að hún var víst meiri sjómaður en hann. Magnús var aftur á móti útsjón- arsamur og aðgætinn. Bæði voru þau veðurglögg með afbrigðum og fóru aldrei á sjó, hvorki til fiskj- ar nje í kaupstaðarferð til Seyðis- fjarðar nema að vel yfirveguðu ráði. Frá Glettingsnesi og inn á Öldu í Seyðisfirði eru nær 6 dansk- ar mílur og í meðfalli 6 klukku- stunda róður með fjórum árum. En þetta reru þau jafnan tvö, þangað til drengir Magnúsar stálpuðust svo, að þeir gátu verið með. Til þess að fara þessar ferð- ir þurfti að sjá út veður næstu 2—3 daga. Og það var segin saga að þeim skeikaði þar ekki og sjald- an eða aldrei teptust þau vegna óveðurs. Árið 1898 var Stefán Filippus- son í Seyðisfirði. Þá komu þau þangað kaupstaðarferð um haust- ið. Seint um kvöldið hitti hann þau á Vestdalseyri. Lá bátur þeirra þar bundinn við bryggju en þau að búa sig undir að leggja á stað. Var þá komið fram í myrkur og spurði Stefán hvort þau væri með rjettu ráði að leggja í slíka lang- ferð undir nóttina, langa og dimma, því að tunglsljós var ekki. Þau svöruðu að óvíst væri um veður næsta dag, en gott yrði um nóttina og stjörnubjart. Það kváðu þau að sjer mundu duga. „Komumst við heim í nótt, með guðs hjálp. Veðrið verður gott í nótt. en útlit fyrir að það breyt- ist með morgninum“. Þetta reynd- ist rjett. Þau komumst heilu og höldnu heim, en ófært veður gerði daginn eftir. Þetta var árið sem þau fluttust frá Glettingsnesi. Fór Magnús þá að búa í Kjólsvík, sem er miðja vegu milli Breiðuvíkur og Glett- ingsness. Kjólsvík er fremur óvist- leg dalskvompa, full af skriðum og gömlu jökulgrjóts rusli, en bó er gróður allmikill milli holtanna. Bærinn stendur við víkina að norð- anverðu og má þar heita sæmilegt útræði. Stundaði Brandþrúður þarna róðra meðan heilsa hennar leyfði, en nokkur seinustu árin var hún farin að heilsu. Seinasti drátturinn. Nú var það einu sinni í ágúst, skömmu áður en hún dó, að veður var gott og hugðust drengir Magn- úsar að fara á sjó. Bað hún þá að lofa sjer að fljóta með, sig langi til að koma á sjó í seinasta sinn. Veittu þeir henni það fúslega. Þá var hún svo lasburða að þeir urðu að bera hana út í bátinn. Var svo róið út á mið. Þá bað hún þá að lofa sjer að renna og vita hvort bíta vildi á krókinn hjá sjer enn einu sinni. Svo rendi hún, en keip- aði ekki. Og eftir litla stund bið- ur hún þá bræður að taka nú við færinu, því að hún treystist ekki á

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.