Lesbók Morgunblaðsins - 16.04.1950, Qupperneq 8
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
010
MlM
Keisarahöllin í Addis Abeba.
til þess að vera borgarstjóri í höí-
uðborginni Addis Abeba, Þjóðverja
til þess að kenna nýtísku landbún-
að og verslun með landbúnaðaraf-
urðir, Englending til þess að vera
dómstjóri í hæstarjetti og Svía til
þess að stjórna lífverðinum.
Ethiopia er stórt land og fyrir
fáum árum var það ósnortið af
menningu hvítra manna. En nú
hefur þjóðin íengið hug á þvi að
komast upp úr ómenningunni. Og
í staðinn fyrir höfðingjastjórn,
reynir keisarinn nú að koma þar a
lyðræðislegri stjórn. Ráðherrar
hans eru ekki lengur kynflokka
hofðingjar, heldur eru þeir valdir
með tilliti til hæfileika sinna. Sjálf-
ur hefur keisarinn tekið að sjer
mentamálaráðuneytið. Honum hef-
ur tekist að vekja þekkingarþorsta
hjá þjóð sinni. Hann leitaði til
British Council um aðstoð og bað
það að senda sjer 50 kennara. Það
var ekkx hægt "Þá var folkið hvatt
til sjálfsnáms. Sendimenn British
Council segja að þeir hafi engan
frið á götum úti fyrir börnum. Þau
eru ekki að biðja um peninga eða
sælgæti, eins og börn i Evrópu, þau
eru að biðja um bækur.
Ekki er hægt að segja að Ethiopia
hafi farið alveg varhlula af hjálp
eftir stríðið. Hún fekk lán bæði í
Bandaríkjunum og Sviþjóð er
námu 3,7 miljónum dollara. Og svo
á hún von á að fá 25 miljón dollara
hernaðarskaðabætur hjá ítölum. —
Utanríkisverslunin er um 20 nulj.
dollara á ári, en gæti þó verið meiri,
því að þeir hafa meira af nautgrip-
um og landbúnaðarafurðum en þeir
geta selt.
Og svo er þar ein auðlind. Það er
olía. Olíulindir eru nú eftirsóttari
en gullnámur, og gráðugir útlend-
ingar bjóða miljónir i olíulinclirnar.
Haile Selassie er akveðmn i þvi
hvað hann á að gera við þær mrl-
jcnir. Hann ætlar að reisa sjúkra-
hús, heilsuhæli, skóla, ná í lækna
og kennara, og umfram alt að koma
upp prcntsmiðjum tii þess að
prenta kcnslubækur handa öllum.
^W ^W ^W -W 'Jkí
BERNARD SHAW
EINU SINNI kom amerískur kvik-
nryndajöfur nokkur til Shaw og
mælti með þessum gorgeir og sjálí
byrgingskap, sem einkennir suma
menn:
— Herra Shaw, jeg ætla að íilma
nokkur leikrit yðar. Jeg þekki þau
og þau liæfa okkur, því að hið
besta er ekki of gott fyrir okkur.
Það skiftir en£u máli hvað það
kostar.
Sliaw svaraði: — Herra minn,
jeg sje að þjer eruð mikill lista-
maður, en jeg er aðeins rjettur og
sljettur h\ersdagsmaður. Það er
því slikt regindjúp staðfest úkkar
í milli að við munum aldrei skilja
hvor annan.