Lesbók Morgunblaðsins - 05.11.1950, Side 12

Lesbók Morgunblaðsins - 05.11.1950, Side 12
512 * LESBÓK MORGUNBLAÐSINS BÖRN SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA —- .. -«■ Ef œskan vill rjetta þjer örvandi hönd þá ertu á framtiðar vegi. — (Þ. E.) ÞEIR, sem nú eru börn, eiga að bera hugsjón Sameinuðu þjóðanna fram til sigurs. Og börn í öllum löndum hafa tekið opnum örmum boðskapnum um frið og bræðralag manna, boðskapnum, sem felst í stefnuskrá og mannrjettindaskrá Sameinuðu þjóðanna. Þetta sjest best á brjefum þeim, sem Trygve Lie berast dags daglega frá börn- um í öllum heimsálfum. Brjefin eru óteljandi og forustu- mönnum Sameinuðu þjóðanna þyk- ir vænt um þau. Brjefin sýna það, að æskan um allan heim er að slá skjaldborg um málefni friðar og mannrjettinda. — Hverju einasta brjefi er svarað og til þess eru valdir ótal menn, sem best kunna skil á hugsunarhætti barna. Með þessu móti er verið að safna al- heimsher, ekki vopnuðum her, held -ur hersveitum barna, sem lofa því að gera alt sem þau geta til þess að vernda friðimi, svo lengi sem þau lifa. Sameinuðu þjóðirnar telja það skyldu sma að hafa samband við börnin um allan heirn, því að þar er sú kynslóð sem á að taka við af þeim, sem nú eru fremstir í fylMngu og koma í frarnkvæmd hugsjón þeirra um einingu allra þjóða á jörðinni, samtök og sam- vianu í stað stríðs og styTjalda. Meðal barnanna á að koma upp fríðarher um alla jörð. Þess vegna er lögð svo mikil rækt við að svara vel og nákvæmlega öllum þeim ara- grúa af brjefum, sem börn skrifa Sameíhuðtt þjóðunum. — Og þess véjgha leggja Sameinuðu þjóðirnar svo míkía aherslu á bað, að í öll- um skölum fari fram fræðsla um starf og stefnumið þeirra. Þar geta kennarar gert ómetanlegt gagn. — Kjer er ein saga um það, og hún kom fram í brjefum fjölda barna í skóla í Nantes. Nantes er borg i Frakklandi og þar eru 187.000 íbúa. Þjóðverjar hertóku hana á stríðsárunum og gerðu þar kafbáta bækistöð. Þeir borgarbúar, sem störfuðu í frelsis- hreyfingunni, voru skotnir hópum saman á torgi í borginni, fjTÍr aug- um allra. En svo þegar kafbátahöfn in var fullger í september 1943, þá komu flugvjelar bandamanna í stór -hópum og ljetu sprengjum rigna yfir stöðina og borgina. Þær koma hvað eftir annað. Hús hrundu, eld- ar geisuðu, fólk beið bana hundr- uðum saman og þúsundir særðust. — Börnin í Nantes vita því hvað stríð er. Og nú skýrðu þau Sámeinuðu þjóðunum frá því, að þau hefði skipað sjer undir merki Joeirra og ætluðu að kappkosta að vinna að friði þegar þau stækkuðu. Og á hverjum degi segjast þau styrkja sig í þessum ásetningi. — Það sje kennaranum sinum, Gernaux, að þakka. Hann haíi fundið upp á þvj að láta þau ferðast með sjer á hverj um degi um allan heim í ímyndaðri flugvjel. í þessari flugvjel ferðast þau land* úr landi, borg úr borg, og alls staðar hitta þau íyrir gott fólk, sem líka hefur bremiandi á- huga fyrir friðarsamtökum þjóð- anna. Þetta sýnir, að hjer hefur kennarinn fundið upp skemtilega aðferð til þess að kerma landafræði og mannkynssógu, og notar það jafnframt til þess að vekja skibúng barnarma á því, að aliir menn eru bræður, hvar sem beir búa a hnett- iuum. Slik-r moon vinna í kyrþey merkilegra starf en hægt er að meta. Börnin hafa það líka daglega fyrir augum, að starfsemi Samein- uðu þjóðanna er ekki skraf eitt. Það er verið að reisa Nantes úr rústum með aðstoð Sameinuðu þjóðanpa og Marshallstyrk. Það er um auðugan garð að gresja í brjefum barnanna. Þau eru á ótal tungumálum. Sum eru fra Svertingjabörnum í Afríku, önnur frá brúnum börnum í Malajalönd- um, frá kínverskum börnum í Ind- landi o. s. frv. Þar er brjef frá litl- um dreng, sem á heima í kjallara hrunins húss í Berlín. Þar er brjef frá litlum Gyðingadreng í Pales- tínu, einum af þeim, sem komst undan ofsóknum Nasista í Þýska- landi. Öll bera þessi brjef vott um breytt hugarfar frá því sem áður var, þegar bömin voru klædd í hershöfðingja búninga og' látin leika sjer að tindátum og íallbyss- um. Sameinuðu þjoðirnar reyna að gera mikið fyrir börnin. Barna- hjálpin, sem er sjerstök stofnun á vegum : þeirra, hefur bjargað mil- jónuju barna um allan heim. Að.því hafa íslendingar stutt með fram- lögum sinum. í byrjun þessa árs hjálpaði Barnahjálpiji til þess að klæða um 250 þúsundir fátækra barna i Japan. Þau skrifuðu þakk- arbrjef til Sameinuðu þjóðanna. — Síðast liðinn vetur var þröngt i búi hjá Finnum. Þá sendi Barnahjálp- in þangað allskonar matvæli til út- býtingar í skólum, ennfremur klæðnað og skófatnað. Eitt þakkar- brjef þaðan gat gert harðsvíraðasta mánn 'klökkvan. Það var frá litlum dreng, sem sagðist ekki hafa burft newa ahnan skóirna, því að hann

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.