Lesbók Morgunblaðsins - 05.11.1950, Side 12
512 *
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
BÖRN SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA
—- .. -«■
Ef œskan vill rjetta þjer örvandi hönd
þá ertu á framtiðar vegi. — (Þ. E.)
ÞEIR, sem nú eru börn, eiga að
bera hugsjón Sameinuðu þjóðanna
fram til sigurs. Og börn í öllum
löndum hafa tekið opnum örmum
boðskapnum um frið og bræðralag
manna, boðskapnum, sem felst í
stefnuskrá og mannrjettindaskrá
Sameinuðu þjóðanna. Þetta sjest
best á brjefum þeim, sem Trygve
Lie berast dags daglega frá börn-
um í öllum heimsálfum.
Brjefin eru óteljandi og forustu-
mönnum Sameinuðu þjóðanna þyk-
ir vænt um þau. Brjefin sýna það,
að æskan um allan heim er að slá
skjaldborg um málefni friðar og
mannrjettinda. — Hverju einasta
brjefi er svarað og til þess eru
valdir ótal menn, sem best kunna
skil á hugsunarhætti barna. Með
þessu móti er verið að safna al-
heimsher, ekki vopnuðum her, held
-ur hersveitum barna, sem lofa því
að gera alt sem þau geta til þess
að vernda friðimi, svo lengi sem
þau lifa. Sameinuðu þjóðirnar telja
það skyldu sma að hafa samband
við börnin um allan heirn, því að
þar er sú kynslóð sem á að taka
við af þeim, sem nú eru fremstir í
fylMngu og koma í frarnkvæmd
hugsjón þeirra um einingu allra
þjóða á jörðinni, samtök og sam-
vianu í stað stríðs og styTjalda.
Meðal barnanna á að koma upp
fríðarher um alla jörð. Þess vegna
er lögð svo mikil rækt við að svara
vel og nákvæmlega öllum þeim ara-
grúa af brjefum, sem börn skrifa
Sameíhuðtt þjóðunum. — Og þess
véjgha leggja Sameinuðu þjóðirnar
svo míkía aherslu á bað, að í öll-
um skölum fari fram fræðsla um
starf og stefnumið þeirra. Þar geta
kennarar gert ómetanlegt gagn. —
Kjer er ein saga um það, og hún
kom fram í brjefum fjölda barna í
skóla í Nantes.
Nantes er borg i Frakklandi og
þar eru 187.000 íbúa. Þjóðverjar
hertóku hana á stríðsárunum og
gerðu þar kafbáta bækistöð. Þeir
borgarbúar, sem störfuðu í frelsis-
hreyfingunni, voru skotnir hópum
saman á torgi í borginni, fjTÍr aug-
um allra. En svo þegar kafbátahöfn
in var fullger í september 1943, þá
komu flugvjelar bandamanna í stór
-hópum og ljetu sprengjum rigna
yfir stöðina og borgina. Þær koma
hvað eftir annað. Hús hrundu, eld-
ar geisuðu, fólk beið bana hundr-
uðum saman og þúsundir særðust.
— Börnin í Nantes vita því hvað
stríð er.
Og nú skýrðu þau Sámeinuðu
þjóðunum frá því, að þau hefði
skipað sjer undir merki Joeirra og
ætluðu að kappkosta að vinna að
friði þegar þau stækkuðu. Og á
hverjum degi segjast þau styrkja
sig í þessum ásetningi. — Það sje
kennaranum sinum, Gernaux, að
þakka. Hann haíi fundið upp á þvj
að láta þau ferðast með sjer á hverj
um degi um allan heim í ímyndaðri
flugvjel. í þessari flugvjel ferðast
þau land* úr landi, borg úr borg,
og alls staðar hitta þau íyrir gott
fólk, sem líka hefur bremiandi á-
huga fyrir friðarsamtökum þjóð-
anna. Þetta sýnir, að hjer hefur
kennarinn fundið upp skemtilega
aðferð til þess að kerma landafræði
og mannkynssógu, og notar það
jafnframt til þess að vekja skibúng
barnarma á því, að aliir menn eru
bræður, hvar sem beir búa a hnett-
iuum. Slik-r moon vinna í kyrþey
merkilegra starf en hægt er að
meta. Börnin hafa það líka daglega
fyrir augum, að starfsemi Samein-
uðu þjóðanna er ekki skraf eitt.
Það er verið að reisa Nantes úr
rústum með aðstoð Sameinuðu
þjóðanpa og Marshallstyrk.
Það er um auðugan garð að
gresja í brjefum barnanna. Þau eru
á ótal tungumálum. Sum eru fra
Svertingjabörnum í Afríku, önnur
frá brúnum börnum í Malajalönd-
um, frá kínverskum börnum í Ind-
landi o. s. frv. Þar er brjef frá litl-
um dreng, sem á heima í kjallara
hrunins húss í Berlín. Þar er brjef
frá litlum Gyðingadreng í Pales-
tínu, einum af þeim, sem komst
undan ofsóknum Nasista í Þýska-
landi. Öll bera þessi brjef vott um
breytt hugarfar frá því sem áður
var, þegar bömin voru klædd í
hershöfðingja búninga og' látin
leika sjer að tindátum og íallbyss-
um.
Sameinuðu þjoðirnar reyna að
gera mikið fyrir börnin. Barna-
hjálpin, sem er sjerstök stofnun á
vegum : þeirra, hefur bjargað mil-
jónuju barna um allan heim. Að.því
hafa íslendingar stutt með fram-
lögum sinum. í byrjun þessa árs
hjálpaði Barnahjálpiji til þess að
klæða um 250 þúsundir fátækra
barna i Japan. Þau skrifuðu þakk-
arbrjef til Sameinuðu þjóðanna. —
Síðast liðinn vetur var þröngt i búi
hjá Finnum. Þá sendi Barnahjálp-
in þangað allskonar matvæli til út-
býtingar í skólum, ennfremur
klæðnað og skófatnað. Eitt þakkar-
brjef þaðan gat gert harðsvíraðasta
mánn 'klökkvan. Það var frá litlum
dreng, sem sagðist ekki hafa burft
newa ahnan skóirna, því að hann