Lesbók Morgunblaðsins - 21.01.1951, Side 16
I'
LESBÖK MORGUNBLAÐSJNS
ð
THOR J. BRAND umsjóm.rmaður
á Þingvöllum hefur sent Lesbók
eftirfarandi vísur og þessa athuga-
semd með:
— í Lesbók 5. nóv. var sagt frá
jarðskjálftunum 1789 og breyting-
um þeim, sem þá urðu á Þingvöll-
um og nágrenni, hvernig mikið
hrun varð í Hrafnagjá svo að Gjá-
bakkastígurinn varð ófær. Datt
mjer þá í hug, að vísur þessar
mundu hafa verið orktar um það
leyti. Er talið að þær sje eftir prest
inn á Þingvöllum, og hann hafi
sagt svo til vegar frá Þingvöll-
um suður í Flóa, að ekki verður
um vilst hvar þá hefur verið farið.
Símon D. Pjetursson bóndi í Vatns-
koti er upp alinn hjer á Þingvöll-
um og lærði hann vísur þessar í
æsku, en ekki segist hann muna,
eða máske aldrei hafa heyrt, hver
presturinn var, sem orkti þær. —
Símon er nú sjötugur að aldri og
eru vísurnar ritaðar eftir minni
hans.
Veginn jeg vil ei spara
að vísa, Jón minn, þjer.
Til Vatnskots fyrst skal fara
forsjállega sem ber.
Hjá Vellankötlu er vegur,
víst liggur þar í frá
hallurinn hættuleaur,
Hrafna hvar endar gjá.
NÝSKEÐ hafa þrjár íslendingasögur komið út á ensku í Bandaríkjunum og
eru útgefendur Princeton University PresS og The American-Skandinavian
Foundation. Sögurnar eru Gunnlaugs saga ormstungu, þýdd af Mr. M. H.
Scargill við háskólann í Alberta (Kanada), Bandainannasaga og Droplaugar-
sonasaga, þýddur ungfrú Margaret Schlauch, sem er prófessor í ensku við
háskólann í New York. Nokkrar myndir eru í bókinni eftir H. G. Glyde, þar
af ein litmynd, er sýnir dauða Helgu hinnar fögru. Myndin hjer að ofan er af
þvi er Hrafn svíkur Gunnlaug í trygðum. — Áður hafa þar komið út: Sæ-
mundar Edda, þýdd af Henry Adams Bellows, Snorra Edda, þýdd af Arthur
Gilchrist Brodeur, Vatnsdæla saga, þýdd af Gwyn Jones, Kormáks saga og
Fóstbræðra saga, þýddar af Lce M, Hollander.
Þá er Arnarfellsendi,
áttu að gaa faarbi.
Miðfell á hægri hendi,
hafa skalt gát á því.
í kleif hjá höfðanum kalda
komast áttu með skil,
beint svo til Brúar halda,
báturinn er þar tiL
Þá þetta er vfirunnið
fyrir utan töf og bið,
Grafninginn geturðu runnið,
og grjótlaust ölfusið.
Strax yfir stranga móðu
stefnirðu heim til þín.
Seg frjettir fólki góðu
og færðu því kveðju mín.
W ^ W
Á miSöldunum þegar riddarar og
hestar þeirra voru albrynjaðir, þurfti
um 200 pund af stáli til að hertýgja
hvern mann. í seinasta stríði þurfti
24.600 pund af stáli á hvern einstak-
an amerískan hermann til jafnaðar.
----o----
Hestar og filar eiga ekki saman.
Hestar fælast ef þeir sjá fíl, en á hinn
bóginn getur heil fílahjörð trylst af
hræðslu, ef hestur kemur nærri henni.
Þó er fílum enn ver við hunda og
ganga berserksgang, ef hundur kem-
ur nserri þeim.