Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.1952, Page 6

Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.1952, Page 6
f'290‘J l LESBÓK MORGUNBLAÐSINS gildum samkvæmt leigumála Jarðabókar. En til þess að gamlir og fátækir leiguliðar konungs fari ekki varhluta af þeim styrk er spítalinn hafði veitt þeim, leggur hann til að sex fátækir leiguliðar á kongsjörðum í Gullbringusýslu og Mosfellssveit skuli framvegis fá 10 rdl. árlegan styrk, og sex ekkj- ur leiguliða á sama svæði skul; fá 6 rdl. stvrk árlega meðan líf end- ist. V Ástæðuna fyrir þessari breyt- ’ ingu taldi stiftamtmaður þá, að samtkvæmt reikningum landfógeta væri kostnaður „kóngsins kassa“ af spítalanum orðið óhæfilega mik- ill, eða 181 rdl. 10% sk. árlega, þar með talin leigan af Gufunesi og Eiði 18 rdl. 70 sk., og andvirði dagsverkanna, sem reikna megi á 18 rdL 4% sk., en leigur af kúgild- um jarðanna sé reiknaðar 19 rdl. 12 sk. Konungur felst á tillögur stift- amtmanns, þó þannig, að spítalinn yrði ekki lagður niður fyr en eft- ir þrjú ár, eða frá fardögum 1795. Þá var ráðsmaður spítalans Páll Jónsson. Tók hann við því embætti 1792 og var ráðinn til þriggja ára. Hefir það sennilega verið þess vegna að spítalinn skyldi ekki lagð- ur niður fyr en eftir þrjú ár. Páll hafði áður verið „hospitalshaldari“ á Hörgslandi á Síðu, en flýði það- an með konu og börn í Skaftáreld- unum. „Liðu þau þá svo stóra neyð, að þau suðu hey sér til matar“, segir í Sýslumannaævum. Páls er oft getið í ævisögu Jóns Stein- grímssonar. Voru þeir vinir og varð Helga dóttir séra Jóns kona Ólafs sonar Páls, er prestur var að Eyvindarhólum. Eftir að Gufu- nesspítali lagðist niður, varð Páll klausturhaldari Kirkj ubæj arklaust urs á Síðu og gengdi því um 30 ára skeið, en bjó á Elliðavatni. Hann var tvívegis settur héraðs- dómari í Gullbringusýslu og sýslu- maður í Kjósarsýslu, fvrst 1801— 1803 og síðan 1818. Hann andaðist í hárri elli að Elliðavatni á önd- verðu árinu 1819 og hafði verið „mikill maður meðal bænda og mikill búhöldur“. Jörðin Gufunes. Eins og fyr er getið var Gufu- nes orðin leigujörð frá Skálholti 1575, en varð seinna konungseign. Konungur seldi hana þegar spítal- inn var lagður niður og upp frá því var hún bændaeign. Jörðin var þá seld fyrir 150 rdl., en Geldihga- nes var selt seinna (1837) fyrir 251 rdl. í Jarðabók þeirra Árna og Páls er lýsing á jörðinni og segir þar; að engar sé þar engjar að kalla, úti- rgangur í lakasta lagi og landþröng •mikil. Þar sé hægt að fóðra 8 kýr, 1 ungneyti og 10 lömb. Selstöðu hafi jörðin haft fyrrum í Stardal, þar sem nú sé risið upp býlið Stardalur. Eggver hafi áður verið í litlum hólma, sem liggur þar fyr- ir landi, en nú sé það nær alveg horfið. Sölvafjara sé þar nokkur og skelfiskfjara. Heimræði hafi verið þai haust og vor meðan fisk- ur gekk inn til sunda, en aldrei hafi verið þar verstöð. „Vatnsból mein- slæmt og erfitt". Jörðinni fylgja þá fjórar hjáleig- ur. Ein þeirra er nafnlaus og þar einn ábúandi. Svo er Brandakot og þar tveir ábúendur, þá Hólkot og einn ábúandi. Þá Helguhjáleiga og þar búa tvær konur. Á þessum hjáleigum voru þá samtals 12 kýr, 9 ær með lömbum og 14 geldfé, 7 hross yngri og eldri. Heimilisfólk á hjáleigunum vpr alls 14, en 6 á heimajörðinni. Þar var bústofn- inn þessi: 10 kýr, 1 kvíga vetur- gömul, 10 ær með lömbum, 9 sauð- ir og 5 hross. Heimajörð fylgja tvö kúgildi kirkjunnar og geldur bóndi af þeim hálfar leigur til prestsins, en hefur hálfar fyrir áhættu. Kirkjan á veiði í Korpúlfsstaðaá þriðja hvern dag. Áður hafi kirkjan átt mánaðarbeit fyrir all- an kvikfénað heimabóndans þar sem heita Sólheimatjarnir, „en nú er kallað Keldnasel, fyrir þá orsök að bóndinn á Gufunesi skal hafa fvrir mörgum árum léð ábúandan- um á Keldum þetta ítak til sel- stöðu“. Þessari lýsingu ber ekki saman við það sem segir um jörðina í sóknarlýsingu 1855, því að þar er hún talin allmikil heyskaparjörð. Þá eru talin í landi jarðarinnar tvö eyðikot, Niðurkot og Norður- kot. Björn Bjarnarson í Grafarholti segir að kallað hafi verið Gufunes- hverfi heimajörðin, Suðurkot, Norðurkot, Knútskot og Eiði. En meðan kirkja var í Gufunesi voru í sókninni þessar jarðir í Mosfells- sveit: Miðdalur, Helliskot, Reyn- isvatn, Kálfakot, Lambhagi, Gröf, Grafarkot, Árbær, Ártún, Keldur, Gufunes, Knútskot (Núpskot), Eiði, Korpúlfsstaðir, Blikastaðir, og þessir í Kjalarneshreppi: Þern- ey, Víðines, Sundakot (Niðurkot), Álfsnes og Glóra. Af Gufunes- kirkjueign voru þá prestinum á Mosfelli goldnir 2 fjórðungar smjörs. Ýmsir merkir menn hafa búið í Gufunesi, en fremstan þeirra má telja Bjarna Thorarensen skáld og amtmann. Árið 1820 kvæntist hann Hildi Bogadóttur en hafði þá áður keypt jörðina Gufunes undir bú sitt. Þarna bjó hann fram til ársins 1834 að hann fluttist norður að Möðruvöllum. Þá seldi hann bú sitt í Gufunesi við uppboð „með miklum skaða sínum“, segir í Sýslumannsævum. Þegar Bjarni bjó í Gufunesi var þar enn álfabygð og ætluðu álfarn- ir einu sinni að heilla til sín Þór- arinn son hans, er var barn að aldri. Hvarf Þórarinn og fannst ekki aftur fyrr en eftir 2 eða 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.