Lesbók Morgunblaðsins - 01.03.1953, Síða 7
'■ LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
115
loftfari, var það að hverfa í fjarska.
Engan vélaþyt heyrði hann í því og
sá ekki heldur neinn útblásturs-
mökk---------
Þetta eru þrjár öruggustu frá-
sagnirnar um hinar fljúgandi
kringlur. Eru nú fjögur ár síðan
þetta gerðist, en sumt í þessum
frásögnum hefur ekki verið birt
fyr en alveg nýlega. — Það voru
reyndir og áreiðanlegir menn, sem
þarna komu við sögu, menn sem
þekktu flest ljósafyrirbæri í lofti.
Frásagnir þeitra eru enn merki-
legri þess vegna.
En upp úr þessu greip um sig sú
veiki, sem nefnd hefur verið „sauc-
eritis“ og hefur valdið því, að
fjöldi manna um allan heim, ^allt
frá Svíþjóð austur í Kóreu, hefur
þótzt sjá óteljandi fljúgandi kringl-
ur á lofti. Mest kvað þó að þessu
í Bandaríkjunum.
í Kaliforníu sáu menn hóp af
þessum kringlum á flugi yfir
Kyrrahafi. Texas-búar hafa séð
stærstu kringlurnar, og er það að
vonum, því að allt er mest hjá
þeim. Kenneth Arnold lagði eið út
á það að hann hefði séð „sjálfsagt
fimm mílna langa runu af hinum
fljúgandi kringlum“ inn á milli
fjallanna hjá Rainer í Washington-
fylki. (Það var þessi Arnold, sem
fann upp nafnið „fljúgandi disk-
ar“).
Blöðin voru full af kynjasögum
um alls konar loftsjónir, og til-
kynningar streymdu hvaðanæva til
herstjórnarinnar og flugmálastjórn
-arinnar um alla vega flugtæki,
sem sézt hefði á lofti. Flestar þess-
ar sýnir reyndust hafa verið flug-
belgir, ljós á flugvélum, ljósaend-
urkast í skýum, eða þá stjarnan
Venus, þegar farið var að rann-
saka þetta. En til slíkrar rannsókn-
ar valdi flugmálaráðuneytið sér-
staka nefnd, sem nefnist „Opera-
tion Saucer“.
Enn streyma tilkynningar að
þessari nefnd og blöðunum. Stund-
um hafa þær við eitthvað að styðj-
ast, en oftast er um tóma ímyndun
að ræða- Sumir hafa gert sér leik
að því að ljúga upp slíkum sögum.
Maður að nafni Frank Scully og
tveir kumpánar hans, þóttust hafa
séð fljúgandi kringlu falla til jarð-
ar og hafa náð brotum úr henni.
Scully skrifaði svo bók um fljúg-
andi kringlur og græddi vel á
henni. En brotin úr kringlunni
reyndust vera venjulegt alumin-
íum og þeir félagar svikarar. Ann-
ar maður, Ed. Sullivan að nafni,
stofnaði „rannsóknarnefnd leik-
manna“ til þess að komast fyrir um
hvað hinar fljúgandi kringlur væri.
Stofnaði hann svo tímarit til þess
að útbreiða þekkinguna og græddi
vel á því vegna þess að fólk var
sólgið í að kaupa það. Sjálfur þótt-
ist Sullivan hafa séð fljúgandi
kringlur, og þegar hann átti að
gera frekari grein fyrir því, vísaði
hann til manns, er Victor Black
heitir, að hann hefði séð þær líka.
En Black neitaði algerlega og kvað
þetta allt uppspuna úr Sullivan.
Þannig reyndu menn að auðga sig
á trúgirni fjöldans.
Til þess að fá sem greinilegastar
og áreiðanlegastar sagnir af þess-
um fyrirbærum, sneri ég mér til
höfuðstöðva flughersins í Was-
hington, og fekk þar upplýsingar
hjá John A. Sanford major general,
sem er manna kunnugastur öllu
þessu, því að hann er formaður
rannsóknarnefndarinnar. Hann var
mjög hreinskilinn. Hann sagði
meðal annars:
„Flugherinn hefur aldrei haldið
að sögurnar um hinar fljúgandi
kringlur væri uppspuni einn, er
stafaði af hjátrú. Slíkt næði ekki
neinni átt. En nákvæm rannsókn
hefur sýnt, að um 80% af þessum
furðusýnum eiga sér eðlilegar or-
sakir“.
En þá er fimmti hlutinn enn eft-
ir. Og er ég spurði hann hvort
nokkur líkindi væri til þess að hér
væri um að ræða flugför utan úr
geimnum, svaraði hanþ:
„Mennirnir þekkja alheiminn
enn svo lítið, að það væri fásinna
að fullyrða að ekki geti verið til
á öðrum stjörnum mannverur, er
hafa aflað sér svo mikillar þekk-
ingar, að þær geti heimsótt oss. En
ég skal taka skýrt fram, að rann-
sóknarnefndin heíur enn eigi nein-
ar fullgildar sannanir fyrir því, að
um slíkar heimsóknir sé að ræða.
Og ég skal einnig taka fram, að
allar athuganir og rannsóknir
benda til þess, að Bandaríkjunum
sé ekki nein hætta búin af þessum
óþekktu geimförum “
Hann sagði mér, að meðal ann-
arra ráðstafana, sem rannsóknar-
nefndin hefði gert, væri að senda
sérstaklega útbúnar myndavélar
til allra stöðva flughersins. Þessar
vélar ætti að geta náð myndum af
öllum fyrirbærum í lofti og sýna
jafnframt hvers eðlis þau sé. Jafn-
framt er svo lagt fyrir að vörður
sé haldinn nótt og dag við allar
stjörnusjár í landinu og haft eftir-
lit með því hvort nokkur nýung
sjáist á lofti.
„Það er skoðun mín,“ sagði her-
foringinn enn fremur, „og það er
skoðun flugmálastjórnarinnar, að
fyrir fjölda áreiðanlegra manna
hafi borið óskiljanlegar sýnir“.
Þessi er þá sannleikurinn um
hinar fljúgandi kringlur, eins og
málið horfir við í dag. Það hefur
enn eigi fundizt eðlileg skýring á
fimmta hluta fyrirbæranna.
„Vér vonum, að þegar fram í
sækir verði allt þetta skiljanlegt,“
sagði herforinginn að lokum.
En það er meira að frétta en
Frh. á bls. 122