Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 08.03.1953, Qupperneq 1

Lesbók Morgunblaðsins - 08.03.1953, Qupperneq 1
XXVIII. úrg. 9. tbl. Jttí>rðitnMaí>2sáns Surmudagur 8. marz 1958 ar® ' i_ > ®%. > S“Sí®\ jl ® rjarbuio a tllioavatni Hvernig fjárkláðinn barst hingað. Kom gin- og klaufaveiki með honum? FJÁRBÚ þetta átti konungur og var það kallað „Schæfferiet paa Vatne". Það var stofnað i góðum tilgangi, til viðreisnar íslenzkum landbúnaði, en varð hið mesta óhappa fyrirtæki. í Sögu íslendinga VI er sérstakur kafli um það, en þessum samtíningi er þó ekki ofaukið. — Elliðavatn. (Mynd úr ferðabók Gaimards) MAÐUR er nefndur Friedrich Wilhelm Hastfer og var barón að nafnbót. Hann hafði verið liðsfor- ingi í her Svía, en lét af her- mennsku 1749 og fór að gefa sig við sauðfjárrækt. Ritaði hann síð- an bók um sauðfjárrækt og kyn- bætur sauðfjár og var það talin merkasta bók um það efni allt fram á 19. öld. Þessi maður kom til Danmerk- ur veturinn 1756 og bauðst til að fara til íslands og setja þar u<pp kynbótabú og koma upp nýum fjárstofni er gæfi af sér miklu betri og meiri ull, en áður hafði átt sér stað. En það setti hann upp, að konungur greiddi allan kostn- að, sem af þessu leiddi. Sauðfjárræktin var þá aðal at- vinnuvegur íslendinga og ullin helzta útflutningsvara bænda. Það gat því gjörbreytt hag þeirra, ef þeir gæti fengið meiri ull af fé sínu og þar að auki ull, sem keypt var miklu hærra verði á heimsmarkað- inum heldur en íslenzka ullin. Konungur felzt því á að gera þessa tilraun og 26. apríl er gefin út kon- ungleg tilskipun þar um. Er Hast- fer ráðinn til þess að koma á fót kynbóta fjárbúi á íslandi og er ráðningartími hans þrjú ár. í kaup á hann að hafa 200 rdl- á ári, 100 rdl. fær hann til að launa aðstoðar- mann og 100 rdl. fær hann í ferða- kostnað og flutningskostnað. Auk

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.