Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.1953, Síða 8
654
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
IVIeð heilauppskurði
er hægt að lækna óða menn
ÞAÐ ERU nú 25 ár síðan að
prófessor Berger í Jena í Þýzka-
landi fór að gera tilraunir að mæla
heilabylgjur manna. Gerði hann
þessar tilraunir á dóttur sinni.
Hafði hann til þess móttökutæki,
sem ekki var ósvipað nýustu loft-
mælitækjum, með veltiás og sjálf-
ritandi nál, eða penna. Og þá skeði
það, sem engan hafði órað fyrir
áður. Veltiásinn tók að hreyfast og
nálin ritaði á hann merkilegar
bylgjulínur. Það var rafmagnsút-
streymi frá heila dótturinnar. í
fyrsta skifti í sögunni hafði tekizt
að sýna, að þessar heilabylgjur
áttu sér stað.
En þótt þetta hefði tekizt, vissu
menn fyrst í stað ekki hvernig átti
að færa sér þessa nýu þekkingu í
nyt. Það var að vísu gert áhald
til þess að mæla heilabylgjurnar
(kallað elektroenzephalograph), en
gagnsemi þess virtist vera heldur
lítil. En þá var það, að einhverj-
um lækni hugkvæmdist að nota
þetta áhald til þess að rannsaka
heilabylgjur ungs manns, sem fékk
Sérfræðingar í heilasjúkdórnum hafa
gert nokkurs konar „landabréf" af
mannsheilanum og skift honum í rnörg
aímorkuð hverfi, er hvert um sig
gegnú ákveðnu hlutverkí.
Prófessor P. Bailey
æðisköst, bæði á milli kastanna og
eins í köstunum sjálfum. Köstin
í þessum manni byrjuðu með því,
að augnaráð hans varð æðisgengið,
síðan gekk hann berserksgang og
braut og bramlaði allt sem í ná-
munda var og æddi síðan fram og
aftur og talaði tóma vitleysu. En
á milli kastanna virtist hann al-
heilbrigður og mundi þá ekkert af
því sem skeð hafði í æðisköstun-
um. Þegar læknirinn rannsakaði
hann nú meðan hann virtist heil-
brigður, þá var línurit það er heila-
bylgjumælirinn sýndi, ekki frá-
brugðið því sem er um aðra heil-
brigða menn. En þegar hann var
svo rannsakaður í æðiskasti, þá
varð línuritið með undarlegutn
skörpum sveiflum. Og læknirinn
fann að þessar sveiflur stöfuðu af
óreglulegum rafbylgjum frá gagn-
auganu, og komst að þeirri niður-
stöðu að þar fyrir innan væri ein-
hver skemmd á heilanum, er þess-
ari truílun væri valdandi.
Þetta var þýðingarmikil upp-
götvun. Áður höfðu menn enga
hugmynd um af hverju menn
fengu æðisköst. Það var ekki að sjá
á þeim, að neitt gengi að þeim, og
þess vegna voru þeir taldir ólækn-
andi. Nú var sönnun fengin fyrír
því, að æðisköstin stöfuðu frá ein-
hverri skemmd í heilanum við
gagnaugun.
Nú víkur sögunni vestur til
Ameríku til prófessor Percival
Bailey í Chicago. Honum kom til
hugar að hægt mundi að lækna
þessa óðu menn með uppskurði,
með því að opna heilabú þeirra og
nema á brott skemmdina á heil-
anum. Og þetta hefir honum tekizt
svo vel, að hann er orðinn heims-
frægur fyrir heilaskurðlækningar
sínar,
I haust heldu ýmsir af merkustu
geðlæknum Þýzkalands ráð-
stefnu í Munchen og var
prófessor Bailey fenginn til að
Hér sjást línurit af heilabylgjum. Hjá
heilbrigðum manni eru bylgjurnar
nokkurn veginn jafnar, en neðst má
sjá hve mjög þær breytast þegar ein-
hver skemmd er í heílanum.