Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1954, Side 5

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1954, Side 5
Blaðaútgáfa í sveitum Einn þáttur í menningarsögu þjóðarinnar l/'ARLA mun það of mælt, að * þjóðvor íslendinga hafi byrjað árið 1874, er landið fekk stjórnar- skrá og hin mikla þúsund ára minningarhátíð landnámsins hóf hugi manna ofar daglegu striti og volæði. Þjóðernistilfinningin fekk þá byr undir vængi. — Hreyfing komst á hugi manna. Vorblærinn vakti þá til umhugsunar um hve margt væri hér ógert, og hann gaf þeim einnig von um að nú mundi fara að rætast úr með samhug og samhjálp. Meðal þess vorgróðurs, er spratt upp af þeirri þjóðarvakningu, er nú hafði orðið, má telja sveitar- blöðin, sem farið var að gefa út upp úr þessu. Sjaldan eða aldrei er á þau minnzt, eða hverja þýð- ingu þau hafi haft, en þau eru þó áreiðanlega merkilegur þáttur í menningarsögu vorri um hálfrar aldar skeið. Um þessar mundir voru fá blöð gefin út í landinu, lítil vikublöð, sem bárust seint og illa út um sveitirnar, vegna þess hvað sam- göngur voru lélegar. Þessi blöð ræddu aðallega landsmál, en sér- mál héraða og sveita urðu útundan. Því var það, að ýmsir góðir menn fóru að gefa út skrifuð sveitarblöð, sem send voru milli bæanna. Þessir menn voru sér þess meðvitandi að engin von væri til þess að sigrast á fásinni og ein- angrun sveitanna, nema með því móti að vakningin kæmi innan frá, að fólkið í sveitunuin hefði sjálft samtök um að hrinda af sér deifð og drunga. Fyrsta skrefið til þess var að tala saman, ráða ráðum sín- um og reyna að koma upp félags- lífi til þess að hrinda í framkvæmd hagsmunamálum heildarinnar og vekja menn til umhugsunar um allt það, er til bóta gat horft í bú- skap og fyrir afkomu einstakling- anna. Þetta var hlutverk sveitar- blaðanna um land allt og verður nú ekki metið hverja þýðingu þau hafa haft. Enginn mun nú svo fróður að hann viti hve mörg sveitarblöð voru gefin út, né í hve mörgum sveitum. En alltaf voru slík blöð einhvers staðar á gangi frá því um 1875 og fram að lokum fyrri heims- styrjaldar og ef til vill lengur. DLAÐ þetta var gefið út í Fnjóska " dal og var gefið út í tveimur samritum; fór annað um Hálssókn en hitt um Draflastaðasókn. Rit- stjóri var Gísli Ásmundsson bóndi á Þverá í Dalsmynni (faðir Garð- Nokkur af þessum sveitarblöðum eru til í Landsbókasafninu og verð- ur sagt frá þeim hér á eftir og birt nokkuð úr þeim, svo að þeir, sem ekkert þekkja til þeirra geti kynnzt þeim. Út um land ætti enn að vera til fjöldi af sveitarblöðum og ættu þeir, sem hafa þau undir höndum að senda þau til Landsbókasafns- ins, svo að þau geti geymzt þar og hægt sé að fá betra yfirlit en nú, um þessa merkilegu grein íslenzkra bókmennta. Tímabili sveitarblaðanna er lok- ið. Með bættum samgöngum, aukn- um blaðakosti, síma og útvarpi gerðist þeirra ekki þörf lengur. Og það er enn ein ástæðan til þess þeim sé haldið saman og forðað frá glötun. ars stórkaupmanns og þeirra syst- kina). Fyrsta blaðið kom út ein- hverntíma á árinu 1875, og segir svo í forustugrein þess: „Það hefur þótt tilhlýðilegt og jafnvel nauðsynlegt, að Framfara-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.