Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1954, Page 9

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1954, Page 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 781 ur hafi verið með mönnum, enda höfðu þeir um annað að hugsa, því að þá var mjög hart í ári þar. Var því mest rætt um hver úrræði væri vænlegust. Einn vildi safna saman öllu smjöri í sveitinni og senda það til Reykjavíkur, þar fengist 80 aur- ar fyrir pundið og væri að því stór búhnykkur. Hann vildi líka láta menn spara sér saltkaup með því að geyma kjötið í klaka fram eftir vetri. Annar hvatti til aukinnar grasatekju. Ung kona (Hólmfríður Þórarinsdóttir) skrifaði hvatningu til húsmæðra um að auka matjurta rækt. Hún minnir á orð Tegnérs: „Ætlun og framkvæmd er hjá kon- um eitt og hið sama.“ Býðst hún svo til að leiðbeina konum og út- vega þeim fræ í garðana og segir að ekki muni af veita að afla ein- hvers heima, því „það gengur ekki svo greitt að fá úttekt í verslun- um, enda hafa menn lítið fyrir að láta, þar skepnur eru fáar og ís- lenzkar vörur í engu verði.“ Húi: bendir einnig á það, að nytin úr kúnum sé nú eina bjargræði heim- ilanna, en hvernig fari ef kýrnar drepist? Vill hún að konur stofni með sér ábyrgðarfélag fyrir kýr, og greiði iðgjaldið í smjöri á hverju ári. (Þess má geta, að þetta félag komst á laggirnar, líklega hið fyrsta í sinni röð á íslandi, og ein- stakt að því leyti að það voru kon- urnar í sveitinni er stóðu að því. Varð sá félagsskapur til mikils gagns). Ritstjórinn skrifar og mikið um búskap og jarðrækt. Hann talar um kynbætur nautgripa og hrossa, sem bændur vanræki, sjálfum sér til tjóns. Og svo skrifar hann um tún- ræktina og þykir hún hörmuleg. Hann segir að á árunum 1870—80 hafi að meðaltali fengizt 2 þurrir hestar töðu af dagsláttu. Nú sé vit- að að sumir hafi fengið 30 hesta af dagsláttu og sýni því meðaltalið að sumir fái ekki nema einn hest af dagsláttu. „Túnræktin er aðal grundvöllur fjárræktar og þegar góð túnrækt er fengin, þá má æv- inlega byggja hvað af öðru upp á við.“ Þarna hefur hann verið á und- an sínum tíma, því að þá var aðal- lega treyst á útengja heyskap. Og þá er hann ekki síður á undan sín- um tíma er hann hvetur menn til að fegra í kring um bæi sína: „Ef það kraftaverk skeði, að dáðleysis og vanans þokukápu létti svo upp í suðri, norðri, austri og vestri, að áhugans og manndómsgeislar fellu logandi niður á hálf hordauða þjóð, þá mundi í framtíðinni sjást fleiri og fegurri blómreitir í kringum bóndans bæ en nú er — víðast.“ Þá má minnast á það, að blaðið gLAÐ þetta var gefið út á Látr- um í Sléttuhreppi á Horn- ströndum, þar sem nú er engin byggð. Fyrsta blaðið kom út 31. marz 1891. Aðalritstjóri var Guð- mundur Sigurðsson, en talið er að sex menn sé í ritnefnd, og hefur hún sennilega verið kosin af Lestr- arfélaginu þar og blaðið komið út að tilhlutan þess. Ekki er vitað hverjir þessir menn hafa verið, því að nöfnin eru skammstöfuð. í upphafsgrein segir að tilgangur blaðsins sé sá, „að öllum, jafnt yngri sem eldri, gefist kostur á að láta skoðanir sínar í ljós, á þann hátt að semja greinar út af því efni, sem þeim hugkvæmist helzt um að rita, þó einkanlega um það, hvernig vér stöndum að vígi í fram birtir fundarsköp, svo að menn geti lært af því hvernig þeir eigi að haga sér á fundum og mannamót- um. Einkennilegt er, að einn lesandi kvartar um að blaðið sé varla læsi- legt, „því að ekki eru allir svo vel að sér í snarhöndinni, að þeir hafi full not af innihaldi þess.“ í blaðinu er skrá um þá bæi, er það á að heimsækja. Sést á fyrra blaðinu, að það hefur verið mánuð á leiðinni, því á hverjum bæ er skrifað hvenær það kom og hvenær það fór. Frá einum bæ er það sagt farið 11. febrúar, en kemur ekki á næsta bæ fyr en 12, og er þar skrif- að við: „Lá úti nóttina 11.—12., óskemmt af kali.“ faralegu tilliti“. Blaðið telur að þetta geti orðið til þess að menn æfist í að hugsa, svo að þeir geti síðar borið fram skoðanir sínar í ræðuformi. Blaðið h'efur stælt svip þeirra vikublaða, er þá voru hér. Báðum megin við nafnið eru smáklausur. í annarri stendur: „Það er áformað að blað þetta komi út einu sinni í hverjum mánuði, ef því berst svo mikið af greinum, að það geti hald- ið áfram.“ Hinum megin stendur: „Ef sér á blaði þessu af nokkru því, er menn geta að gert, að það rifni eða blettist, svo ei verði lesið, varðar það 50 aura sekt, eyðilegg- ist það, þá 1 krónu.“ Blaðið leggur mikinn hug á að auka og efla félagsskap, að hver I ÍU 1

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.