Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1954, Qupperneq 10

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1954, Qupperneq 10
782 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS höndin hjálpi annarri og hver létti undir með öðrum. „Þá mundi hag- ur sveitarfélagsins batna og sam- vinna, því til eflingar, eiga sér hæli á fleiri stöðum en nú er.“ Mörg framfaramál og nauðsynja- mál eru rædd í blaðinu, svo sem um barnaskóla og nauðsyn þeirra, um menntun bænda, um bindindis- mál og drvkkjuskap, um niðurjöfn- un og útsvör, um túnrækt og áburð -arnotkun; er þar bent á hve mjög menn vanræki ræktunarmálin og fari hirðuleysislega með áburðinn, sumir bændur hafi t. d. þann sið, að aka mykjunni beint í bæarlækinn. Þá er og rætt um ýmislegt annað, sem aflaga fer í sveitinni, meðal annars salernisleysi og þau óþrif, sem af því stafi. Ekki verður séð hve lengi blað- inu hefur verið haldið úti. Fyrstu 12 blöðin eru til (einn árgangur, sem endar 23. febrúar 1892). En síðan vantar í og seinast kemur 4. blað III. árgangs í janúar 1897 og er ekki meira til. Þá í millibil- inu hefur orðið einhver breyting á, því að nú er ekki getið um rit- nefnd, heldur aðeins ritstjórann, Guðmund Sigurðsson. Þá er og kominn skrautritaður haus á blað- ið, og nú stendur þar: „Ef blaðið skemmist eða glatast, borgist það 30 aura.“ ETTA var sveitarblað í Bæar- sveit í Borgarfirði og var rit- stjóri þess Sig. Júl. Jóhannesson skáld, og hefur þar byrjað blaða- mennskuferil. Fyrsta blaðið kom út 14. desember 1894. í forustugrein þess segir: „Það er í mörgum héruðum landsins sem haldið er út blöðum, sem bæði hafa meðferðis ýms hér- aðsmál og almenn málefni, smá- sögur, skrítlur, kvæði og ýmislegt fleira. Þykir það mjög glæða fé- lagslíf, æfa menn í að hugsa og rita, og leiðir margt gott af sér. Ekkert þess konar hefur hingað til sézt hér í hrepp, þótt því verði hér betur við komið en víða annars staðar, því bæði er hér fremur þétt- býlt og margir færir um að beita pennanum. — Stefna blaðsins verð- ur ekkert ákveðin, allar greinar teknar, hvers efnis sem eru, ef rit- stiórinn aðeins telur þær tækar.“ í fyrsta blaðinu er rætt um menntun alþýðu og sund. Vill blaðið koma upp sundfélagi og sundlaug, eins og þeir hafi gert í Hálsasveit og Reykholtsdal árið áð- ur. Sundkennara sé auðvelt að fá, því að Jón Blöndal stúdent í Staf- holtsey og þeir bræðurnir Sigurð- ur og Andrés Fjeldsted á Hvítár- völlum, sé syndir vel. Telur blaðið að hentugan sundstað megi gera milli Bæar og Langholts í Bæar- sveit, og þar hafi varið sundæfing- ar fyrir 20 árum. í grein í 2. tbl. kemur fram til- gangur blaðsins að vekja og hvetja: „Það, sem allir þurfa að kunna, en mörgum er ábótavant í, er að kunna að hugsa, sem er undirstaða undir öllu er menn aðhafast. Þeir 5 ^ l OLr i s \ \ J l 5 l s /° anna 6tt.C \ ý 1 Kvöldið skygsir. — Kemnr nótt Kertin lýsa. — Myrkrið eyðist. Himnastjörnur stara rótt storðar til og: yfir breiðist norðurljósa leifturglit — log:a böndin fagurlit. Tignum berast turnum frá töfradýrir klukknahljómar, — líða upp í loftin blá. Lyfta vængjum helgir ómar. Hátt þeir andann hefja þá hugsjónanna tindinn á. Þar má teyga lífsins lind. Ljóssins gyðja eyðir trega. Jatan sýnir Jesúmynd, jólabarnsins guðdómlega. — Augun ljóma undraskær. Eilíf rós í hjarta grær. Kristnum mönnum virðist vörn vélabragða-leiðartáima, ef þeir verða allir börn eina stund við bæn og sálma, — ( fögur búa friðarskjól — ^ fagna — eiga gleðijól. ý TRYGGVI Á TINDUM *j s: \ eru svo margir, sem kunna það ekki og gera svo margt nálega hugsun- arlaust, rétt eins og dauðar vél- ar.... Það eru til svo fjölda marg- ar vélar í mannsmynd, sem ganga aðeins fyrir afli vanans, en þannig ætti enginn að vinna.“ Svo koma greinar um margs kon- ar málefni. Þar er rætt um járn- brautarmálið og útgerð, barna- kennslu, húsabætur, lestrarfélög, ofdrykkju og bindindi, kirknajarð- ir, hreppsnefndarkosningar, sauð- fénað, söngfélög, verkfæravöndun, Búnaðarfélagið, kynbætur sauð-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.