Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1954, Side 12

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1954, Side 12
784 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 120 kr. á ári — og það sé mikið. Þá er grein um „Skaðlega flakk- ara,“ en svo kallar hann þá menn er fara um sveitir með smíðisgripi til sölu. í 4. blaðinu er skýrsla um Lestr- arfélagið, sem þá er 7 ára. Tekjur þess hafa orðið kr. 106.00 á árinu, en bókaútlán um 300. Á 3—6 bæum segir að lesin hafi verið um 40 bindi. Þá er og í blaðinu fréttabréf frá séra Þorvaldi Jakobssyni, sem þá var prestur á Brjánslæk, og segir hann nokkuð frá háttum manna þar vestra. Meðal annars segir þar frá galtatjöldum eða hærum, sem menn hafi til þess að breiða yfir sæti og reynist mjög vel til þess að verja hey skemmdum. (Slíkar ábreiður voru ekki teknar í notkun hér syðra fyr en seinna, en hafa reynzt bændum hin mestu þarfa- þing). Sem sýnishorn af fréttum blaðs- ins skal þetta tekið úr 28. blaði: „Þjóðviljinn í ísafirði skýrir frá því, að séra Matthías Jochumsson hafi verið kærður af amtmanni fyrir landshöfðingja, fyrir það að hann lýsti 3. lýsingu á mánudegi um leið og hann gaf saman, og höfðu þó orðið 3 messuföll milli 1. og 2. lýsingar. En hjónabandinu varð að hraða, af því að persón- urnar ætluðu vestur á ísafjörð með strandferðaskipinu, og leyfis- bréf að sögn ófáanlegt hjá amt- manni. Séra Matthíasi eru nú sett- ir tveir kostir, annaðhvort að láta úti kr. 33.66, eða sæta opinberri málssókn að öðrum kosti, og hefur hann tekið þann kostinn.“ Til þjóðlegs fróðleiks verður þetta að teljast (í 25. tölubl.): „Eftir kjörfundinn seinasta að Leirá, er Grímur Thomsen var á og náði ekki kosningu, kastaði hann fram þessari stöku: Laxa var þar mikil mergð, þótt margir væri smáir, en svo voru net úr garði gerð að gátu smogið fáir. Skömmu seinna sendi Andrés Fjeldsteð honum reyktan lax. Þá kvað karl: Munntamur að morgni dags matarlyst að glæða rekkar segja reyktan lax, ríkismanna fæða. mig hinn reykti minnti strax á mann frá Reykjakoti. Þriðja erindið var þakklæti og kann ég ekki það að þylja.“ Seinasta blaðið kom út 15. marz 1899 og hafa þá tvö blöð fylgzt að, því að þar segir: „Blöð þessi 2 ættu að berast ofurlítið greiðara en þau, sem send voru fyr í vetur, er voru á þriðja mánuð á leiðinni.“ Þegar ég sá þennan lax þótti súrt í broti, „ • # • - C(cjÍH V X.' i , >,./ /V / < »> X<?. K /f> . ,, * (( ( /*(>■> */„ , tfM . / <?C3. /> >>, < _ » ____________________*______ DLAÐ þetta var gefið út í Mið- ** dalsgröf í Kirkjubólshreppi í Strandasýslu og var ritstjóri þess Halldór Jónsson bóndi þar og fræðimaður. Báðum megin við nafnið eru klausur. Öðrum megin stendur: „Kemur út annan hvern laugardag til sumarmála," en hin- um megin: „Lestur blaðsins kostar 25 aura á hverju býli“. Gjald þetta átti að renna til Lestrarfélags sveit- arinnar, en ritstjórinn mun hafa verið formaður þess. Fyrsta blaðið kom út 26. janúar 1907 og segir ritstjórinn í upphafs- grein að hann hafi lengi haft áhuga fyrir að koma út blaðkríli til skemmtunar og fróðleiks, en ýmsir haldi að það verði aðeins til þess að vekja þras og illdeilur meðal manna. Sú hafi að vísu orðið raun- in á um þau blöð, er þar hafi verið gefin út áður, „Morgunstjörnu“, „Ungling“ og „Skinfaxa", en tím- arnir breytast og mennirnir með. Óskar hann svo að sem flestir — karlar og konur, yngri sem eldri — vildu serida sér ritgerðir, sögur og ljóðmæli óprentuð. „Ritgerðirn- ar ættu einkum að vera um þau ______________»_______________ _ atriði, er sveitarfélag okkar varðar, svo sem búskap, verslun, bók- menntir og sérhvað annað, er til framfara og félagsskapar mætti verða.“ Þrátt fyrir þetta virðist þó svo, sem aðallega hafi komið í hlut rit- stjórans að draga saman efni blaðs- ins og semja greinar í það. Og honum hefur tekizt að gera það furðu fjölbreytt. Þar er alls konar sagnafróðleikur, vísur, gátur, talna gátur og smávegis til skemmtunar og fróðleiks. En svo eru þar að sjálfsögðu greinar um alvarleg málefni svo sem heyásetning, heya og fjárskoð- anir, haughús, túnasléttur, klæðnað manna, eyktamörk, móðurmálið, söludeildina á Hólmavík og spari- sjóðinn, sem hann veitti forstöðu, vegabætur og fóðurskýrslur. Er margs konar fróðleik í þessar greinar að sækja. Þá eru og at- hyglisverðar skýrslur um það hvort betra sé að færa frá, eða láta ær ganga með dilk, byggðar á eigin reynslu. Og ennfremur eru þar skýrslur með tölum er sýna mis- mun þess að selja fé á fæti eða

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.