Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1954, Side 21

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1954, Side 21
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 793 SMÁSAGAN ÉG VAR SENDUR TIL NOREGS A STRIÐSARUNUM BLA og gul blóm í grænu grasi allt um kring. Úti á höfninni hóstaði dráttarbátur. Fuglar sungu í trjánum í garðinum. Ég horfði lengi á Akershusvígið og á tvo marmarakrossa, mannhæðarháa. Á marmarastein fyrir framan þá stóðu þessar línur letraðar: Þeir börðust, þeir féllu, þeir fórnuðu oss öllu. Að baki annars þeirra stóð stórt almtré og var bolur þess sundur tættur eftir byssukúlur. En grasið breiddi yfir öll missmíði á jörð- inni. tarna höfðu áður staðið tveir aftökustaurar og þar höfðu hundr- uð norskra manna úr leynihreyf- ingunni verið bundnir við og skotnir. Hafði Karen staðið bundin við annan hvorn þennan staur? Hafði hið seinasta er hún horfði á í þessu lífi verið þýzkir einkennisbúningar og byssur, sem á hana var miðað? Ég vissi það ekki.... En mér var farið að gerast órótt.... Ég hafði nú dvalizt eina viku í Noregi og á hverjum degi hafði ég setið hér á bekk frá því klukkan eitt til klukkan fimm, eins og ég hafði lofað og eins og ég hafði aug- lýst í öllum blöðunum. Ég hafði setið hér á þessum bekk í garðinum hjá Bygdö Allé, vongóður fyrst, en daprari og hugsjúkari með hverj- um deginum sem leið. Kirsuberjatrén í Bygdö Allé stóðu í blóma og angan af liljum barst í loftinu þangað sem ég sat. Fyrstu dagana hafði ég horft eftir- væntingaraugum á alla, sem fram hjá gengu og vonað að fá að sjá gullna hárið hennar Karenar þar á meðal. En þetta var allt ókunnugt fólk. Og nú sat ég hér aðeins og beið. Það leið á daginn og ég sökkti mér niður í umhugsun um þá tvo sólarhringa sem við höfðum verið saman. P'ORELDRAR mínir höfðu flutzt vestur um haf og numið lana í Bandaríkjunum. — Ég fæddist f norsku nýlendunni í Minnesota ár- ið 1917. Þar ólst ég upp og lærði að tala ensku og norsku jöfnum höndum. Foreldrar mínir sögðu mér svo margt frá Noregi að mér fannst það vera mitt annað föður- land. ' Ég var í háskólanum í Minnesota þegar Þjóðverjar réðust inn í Nor- eg. Þá yfirgaf ég skólann, fór til Kanada og gerðist sjálfboðaliði í hernum. Ég lenti í upplýsingadeild- inni og var skömmu síðar sendur til Englands. Og þar var mér falið það trúnaðarstarf að fara til Nor- egs. Það var vegna þess að ég tal- aði norsku reiprennandi og var að öllu norskur að útliti. Það átti að senda mig til Noregs í kafbáti og skjóta mér á land á einhverri ey. Þar átti ég að ná sam- bandi við leynihreyfinguna norsku, færa þeim nýar tegundir af sprengj -um og kenna þeim að fara með þær. Að því búnu átti ég að fara til Englands aftur — ef ég gæti. Svo var það eitthvað viku seinna á dimmri ágústnótt að ég skreið upo úr kafbáti hjá Noregsströnd og gekk á lítinn gúmmíbát með allar sprengjurnar mínar. Rétt fram- undan reis há klettaey og bar skugga hennar við ljósari himin- inn. Kafbáturinn hafði farið eins nærri og menn þorðu, til þess að vera þar í skjóli fyrir radartækj- um Þjóðverja. „Góða ferð, liðsforingi,“ sagði yfirmaðurinn við mig. Hljóðlaust seig báturinn frá kaf- bátnum. Úti var niðamyrkur. Veðr- ið var gott, en þó skalf ég. Við eyna var röm lykt af þangi og þara. Við renndum rétt fram hjá klett- um nokkrum og svo skreið bátur- inn að dálítilli steinbryggju. Ein- hver skuggi var á hreyfingu á bryggjunni og ég heyrði hvíslað: „Eiríkur Björnsson?" Þetta var nafnið, sem ég átti að ganga undir og það var skráð á vegabréf mitt. Ég svaraði því eins og fyrir mig hafði verið lagt: „Já, er það þú Finnur?“ Maðurinn muldraði eitthvað í ánægju tón, rétti mér höndina og kippti mér upp á bryggjuna. Svo komu pokarnii* með sprengjunum upp á bryggjuna, en gúmbáturinn hvarf út í myrkrið.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.