Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1954, Síða 24

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1954, Síða 24
796 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS að þeir urðu að segja frá öllu. En ef þeir vissu ekki hin réttu nöfn félaga sinna, þá gátu þeir ekki bent á þé. Þetta var nauðsynlegt svo að Þjóðverjar gæti ekki náð í þá er enn léku lausum hala. Árni lagði poka á bak sér og fór með mönnunum inn í skóginn. „Nú færðu annan leiðsögumann,'' sagði hann um leið og hann kvaddi mig, „miklu skemmtilegri félaga en mig. Ég öfunda þig.“ Ég stóð þarna eftir og horfði á eftir þeim og var að brjóta heilan um hvað Árni hefði átt við. Þá kom bóndinn á bænum og sagði: „Leiðsögumaðurinn bíður hér inni. Gjörið svo vel að ganga í bæ- inn.“ * Þarna var bjálkahús með máluð- um dyrastöfum. Inni var allt snot- urt og þokkalegt. Stúlka stóð þar við glugga og mér varð þegar star- sýnt á hana. Mér fannst þá — og mér finnst enn — að fegurri konu hafi ég aldrei séð. Þegar hún varð mín vör brosti hún, gekk til mín og rétti mér höndina. Hún var grönn og fagur- lega limuð, hárið var eins og á gull sæi og augun voru blá og skær. Hún var sólbrunnin og varir henn- ar voru rjóðar, enda þótt hún hefði ekki notað varasmyrsl. „Átt þú að vera leiðsögumaður minn?“ spurði ég. „Já, sögðu þeir þér ekki frá því? Það var álitið öruggast til þess að koma þér til Ósló að við færum þangað sem hjón. Við ferðumst á reiðhjólum. Ertu ekki ánægður með það?“ Hún var dálítið áhyggjusamleg, en ég fullvissaði hana um að þetta líkaði mér ágætlega. „Ég ætla að kalla þig Eirík, en þú átt að kalla mig Karen,“ sagði hún. „Það er að vísu ekki mitt rétta nafn, en mér þykir það fallegt. Jæja, bóndi minn, ertu þá tilbú- inn?“ Og hún brosti undur þýtt, en varð þegar alvarleg er hún sá hvernig ég horfði á hana. Tvö reiðhjól stóðu fyrir utan dyrnar. Sinn böggullinn var bund- inn á hvort reiðhjól og gömlum strigatuskum vafið utan um. „Það er ein sprengja í hvorum böggli,“ sagði húsráðandi. „Okkur leizt ráðlegast að skifta þeim, svo að fyrirferðin væri ekki of mikil og grunsamleg.“ „Við skulum leggja á stað,“ sagði Karen. Það var áhyggjusvipur á húsráðanda og ég vissi vel hvað hann var að hugsa um. Ég var að hugsa um hið sama. Það var hræði- legt að stofna þessari ungu og fögru stúlku í þá hættu að lenda í klon- um á Þjóðverjum og vera ákærð fyrir spellvirki. En hún virtist al- veg áhyggjulaus. Leið okkar lá um þröngvan skóg- arstíg. Stundum urðum við að ganga og draga hjólin þar sem veg- urinn var verstur. Skógurinn var yndislega fagur, dökkgrænn með gullnum blettum þar sem sólin skein milli greinanna og geislarnir fellu á mosadyngjurnar undir trján -um. Eftirlegu gaukur gall einhvers staðar inni í þykkninu. „Nú er von á hörðum vetri,“ sagði Karen og benti upp í reynitré. „Sjáðu hve mikið er af berjum þarna.“ „Er það öruggt merki um harðan vetur?“ spurði ég. „Já, það bregst aldrei,“ sagði hún. „Guð lætur svona mikið af berjum vaxa til þess að fuglarnir hafi nóg að eta í harðindunum.“ Við töluðum margt saman þenn- an dag og vorum opinská hvort við annað eins og títt er um menn í fögru umhverfi og þegar sameigin- leg hætta vofir yfir þeim. Mig lang- aði til að spyrja hana hvaðan hún væri og hverra manna hún væri, en ég mátti það ekki. Ég fann að- eins að hún var vel upp alin og menntuð, því að hún gat talað ensku reiprennandi. Um kvöldið settumst við að milli furutrjáa. Svefnpokar voru bundn- ir á hjólin, og í bakpokum höfðum við nesti. Við kveiktum eld, en hann kastaði aðeins glætu á næstu tré. Þó þorðum við ekki annað en drepa hann þegar við höfðum hit- að okkur vatn. Svo skriðum við í svefnpokana og lágum þarna hlið við hlið á mjúkri mosadýnu, og töl- uðum lengi saman í hálfum hljóð- um.... Daginn eftir bjargaði Karen okk- ur úr yfirvofandi hættu. Hún hafði heyrt óm af mannamáli og þekkti að þar voru Þjóðverjar. Hún skip- aði mér að koma á eftir sér og svo földum við okkur í urð utan við stíginn. Rétt á eftir komu þýzkir varðmenn og fóru fram hjá. Við biðum góða stund, en heldum svo áfram för okkar. Næstu nótt hreiðruðum við um okkur á sama hátt og áður. Þegar við vöknuðum uppgötvuðum við, að við höfðum tekizt í hendur í svefni. Karen roðnaði og kippti að sér hendinni. „Við komum til Ósló í kvöld,“ sagði hún og fór að taka saman dótið. „Ég vildi að það væri hundrað mílur til Ósló,“ sagði ég. Hún leit alvarlega á mig. „Ég segi sama,“ sagði hún, „og þó veit ég ekki hvað þú heitir.“ Svo kysstumst við heitt og inni- lega. Hún strauk hárið á mér blíð- lega og sleit sig svo lausa. Við stig- um á hjólin og lögðum á stað. Um miðjan dag komum við út á þjóðveg. En áður en við fórum út úr skógarskjólinu kysstumst við heitt og lengi. Nú var aðalhættan framundan. Við mættum tveimur flutninga- bílum fullum af þýzkum hermönn- um. Þeir kölluðu glettnisorðum til Karenar um leið og þeir óku fram

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.