Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1954, Page 25

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1954, Page 25
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 797 hjá, en hún varð hörð á svip, og eg hataði nú Þjóðverjana miklu meira en áður. Fjöldi Norðmanna var á veginum og flestir á hjólum. Nú var sunnu- dagur og þeir voru að koma úr skógarferð. Hjá Sandvík beygir vegurinn til Ósló og þar var flokk- ur þýzkra hermanna á verði. Þeir gáfu okkur gætur, en skiftu sér ekkert af okkur. EGAR við vorum komin miðja vegu milli Sandvíkur og Ósló, kom ólánið yfir okkur. Vegurinn var afgirtur og þar stóðu þýzkir hermenn til þess að yfirheyra fólk og skoða vegabréf og önnur skil- ríki. Ég leit á Karen og sá að hún var náföl. En hún brosti samt við mér og svo slógumst við í biðröð- ina. Nú kom röðin að Karen. Hún sagði til nafns síns og sagði að ég væri maðurinn sinn. Liðsforinginn virti hana fyrir sér frá hvirfli til ilja og sagði svo eitthvað á þýzku við félaga sinn, og báðir hlógu. En þeir leyfðu Karen að halda áfram og nú var komið að mér. „Hvað heitir þú?“ þrumaði fyrir- liðinn. „Eiríkur Björnsson," svaraði ég stuttlega og rétti honum vegabréf mitt. Hann spurði hvaðan ég kæmi. Ég kvaðst koma úr skemmtiferð ofan úr fjöllum. Hann trúði þessu og var í þann veginn að hleypa mér í gegn, en snerist hugur skyndi- lega. „Það væri nógu gaman að sjá hvað þú ert með í bakpokanum, karl minn,“ sagði hann. Mér fell allur ketill í eld og Kar- en rak upp vein. Liðsforinginn skipaði mönnum sínum að taka hana og halda henni fastri. Svo opnuðu þeir bakpokann minn og upp úr honum drógu þeir stóran böggul vafinn innan í bréf og bund- ið um. Þá fór Karen að gráta, en gremjukliður heyrðist meðal þeirra Norðmanna, sem þarna voru. „Jæja, við skulum hjá hvað það er sem frúnni er svona sárt um,“ sagði liðsforinginn og hló. Þeir rifu böggulinn sundur og innan úr honum kom tylft af eggj- um og stór skaka af smjöri. Karen grét þá enn meira og grátbændi þá um að taka þetta ekki, því að hún þyrfti að nota eggin og smjörið í afmælisveizlu mömmu sinnar. Þjóðverjarnir hlógu og liðsfor- inginn rétti böggulinn að einum hermanninum. Svo fengum við ávítur fyrir það að vera að sanka að okkur matvælum, sem við hefð- um ekki skömmtunarseðla fyrir. Liðsforinginn skrifaði hjá sér nöfn okkar og heimilisfang í Ósló, og svo var okkur leyft að halda áfram för okkar. Ég reyndi að vera alvarlegur og Karen helt áfram að snökta þangað til við fórum fyrir bugðu á vegin- um. Þá litum við hvort á annað og brostum. Og ég var hrifnari af henni en -nokkuru sinni fyr. Þetta var almennileg stúlka! Myrkur var komið er við náðum Ósló. í garðinum hjá Bygdö Allé snerum við út á hliðargötu og fór- um eftir henni um stund. Svo kom- um við að húsi nokkru og Karen drap á dyr. Okkur var hleypt inn, og þá var öllum kvíða lokið. Um kvöldið sýndi ég nokkrum mönnum sprengjurnar og útskýrði fyrir þeim hvernig ætti að búa þær til og nota þær. Það var auðvelt verk, því að mennirnir tóku vel eftir. Þegar ég gekk til svefnherbergis þess, er mér var 'ætlað, kom ein- hver við handlegginn á mér. Ég sneri mér við. Karen stóð þarna og brosti við mér. Við féllumst í faðma og kysstumst heitt og lengi. Og þá varð mér það ljóst að ég elskaði hana af öllu hjarta. „Ég átti að vera farin heðan,“ hvíslaði hún, „en ég gat ekki farið án þess að kveðja þig. Ó, Eiríkur, ég vil ekki spyrja um það hver þú ert, en ég skal segja þér hver ég er og hvar þú getur fundið mig

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.