Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1954, Blaðsíða 30

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1954, Blaðsíða 30
802 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS hafa einn viðarkubb? spurði bróð- ir minn. — Nei, hann þolir meira, sagði ég. Þá fór hann á fætur, náði sér í marga viðarkubba og kom með þá upp í bólið. Svo biðum við lengi, lengi. En ekki kom storkurinn og seinast sofnuðum við. Ég vaknaði undir morgun og það var orðið bjart í eldhúsinu. Svefn- herbergishurðin opnaðist. Ég hélt að storkurinn væri að koma, svo að ég þreif prikið mitt og ætlaði að láta hann fá fyrir ferðina. En þetta var þá hjúkrunarkona, svo að • ég lá kyr. Bróðir minn vaknaði líka og í svefnrofunum þreif hann einn viðarkubbinn og þeytti hon- um í hjúkrunarkonuna og sagði: — Þetta skaltu fá, stork-óféti, svo að þú deyir! Hann ætlaði að fleygja öðrum viðarkubb, en ég varnaði honum þess. Og áður en við fórum í skól- ann um morguninn sáum við hvar litla systir lá í rúminu hjá mömmu“. Þú, sem undan ævistraumi flýtur sofandi að feigðarósi, lastaðu ei laxinn, sem leitar móti straumi sterklega og stiklar fossa. ÞETTA ljóðabréf orkti séra Matthías Jochumsson þegar hann var prest- ur í Móum á Kjalarnesi (1869 eða 1870) undir nafni fóstursonar síns og frænda, Matthíasar Eggertssonar, er þá hefir verið 4—5 ára að aldri, en varð seinna prestur í Grímsey. Bréfið var til jafnaldra hans, Þórðar sonar Þórðar Guðjohnsens, þá í Reykjavík, en síðar á Húsavik. Þórður yngri varð seinna læknir í Rönne á Borgundar- hólmi. Seinasta erindinu er sleppt úr kvæðinu. Skrítið er lífið, Þórður minn, hvernig allt gengur til; ég á svo margar gimburskeljar og skipa þeim sem ég vil. Hann pabbi segir að tunglið sé ostur ofan úr Kjós, en sólin og litlu stjörnurnar séu Jesú jólaljós. Eg þekki hana Grýlu, hún er grá eins og örn. Hún situr uppi á Esju og gleypir óþæg börn. Frá Einari á Sjónarhólum hún hremmdi fjögur lömb, þau jörmuðu og sögðu „me, me“ í hennar slæmu vömb. Aumingja Þorsteinn kóngur, sá eldgamli mann, hann datt ofan allan stigann, og búið var svo með hann. En hver gat sagt við kónginn: „hvað gerðirðu fuglinn minn?“ Annars átti hann engan að utan Drottin sinn. Við skulum aldrei gráta og aldrei tala ljótt, þá verðum við svo stórir, og vöxum upp svo fljótt. Við skulum lesa bænirnar, þá kemur ekkert ljótt, því Guð og allir englarnir vaka hverja nótt. Molar MIKILL LEKI — Eg heyri sagt að komið hafi leki að skipinu á seinustu ferð yðar vestur yfir Atlantshaf. — Leki!? Það var meira en leki. Átta sinnum urðum við að dæla öllu Atlantshafinu í gegnum skipið áður en við náðum New York. ★ ÞRAUTSEIGJA Það var í járnbrautarlestinni milli Bonn og Hamborgar. Tveir menn sátu í sama vagni og var annar fjörgamall. Þeir tóku tal með sér og það kom upp úr kafinu að sá gamli var uppgjafaher- maður úr stríðinu 1871 og var nú að fara á þing uppgjafahermanna frá þeim árum. — Nú trúi ég varla sagði förunautur hans. Ef þér hafið verið í stríðinu 1870—71 þá hljótið þér að vera orð- inn rúmlega hundrað ára gamall og tæplega eruð þið félagar margir á lífi. — Nei, það er satt, sagði sá gamli, seinustu árin hefi ég verið aleinn á þingunum. ★ í ÞVOTTAHÚSI — Því miður eru skyrturnar manns- ins yðar ekki tilbúnar enn. — Þá megið þið eiga von á góðu, eða hitt þó heldur. Hann kemur sjálfur hingað og þá fáið þið fyrir ferðina. — Komi hann og komi hann, við erum ekki hræddar, hann notar skyrtu númer 37. ★ ÞJÓÐNÝTING Meðan verkamannastjórnin var við völd í Bretlandi, voru ýmiskonar fyr- irtæki þjóðnýtt, en þá kom upp úr kafinu að þau gátu ekki borið sig. Blaðið „Daily Express" stakk þá upp á því að allir glæpir skyldi þjóðnýttir, svo að almenningur gæti séð að þeir borga sig ekki.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.