Lesbók Morgunblaðsins - 17.04.1955, Page 2
206
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
og var hann þá 44 ára en hún
fimmtug. Þeim varð ekki barna
auðið, en arfleiddu hvort annað
1719. Guðrún dó 1726, 85 ára að
aldri, en séra Einar andaðist ekki
fyr en 20. júlí 1742.
Þau Bjöm Grímsson í Viðvík og
Ingibjörg kona hans eignuðust átta
börn. En auk þess eignaðist Björn
einn son utan hjónabands og hét
hann Árni og mun hafa verið
fæddur um 1661. Hann gerðist
bóndi á Grásíðu í Kelduhverfi og
hét kona hans Sesselja Halldórs-
dóttir.
CIGURÐUR prestur sonur Jóns
biskups Arasonar, helt Grenj-
aðarstað og þótti mjög fyrir öðr-
um mönnum bæði vegna ættar
sinnar og hæfileika. Kona hans var
Sesselja dóttir Péturs sýslumanns
á Staðarhóli, Loftssonar sýslu-
manns á Staðarhóli, Ormssonar
hirðstjóra á Staðarhóli, Loftssonar
ríka Guttormssonar á Möðruvöll-
um. Þau eignuðust tvö börn, Pét-
ur og Halldóru og dóu þau bæði
uppkomin og barnlaus.
Þuríður hét laundóttir séra Sig-
urðar og leiddi hann hana til arfs
eftir sig. Þetta líkaði Halldóru
ekki. Er sagt að þá hann las arf-
leiðslubréfið, hafi hún þrifið til
þess og mælt: „Ekki skal sonur
ambáttarinnar erfa með syni hinn-
ar frjálsu“. En séra Sigurður
mælti: „Láttu svo vera, dóttir mín,
þú færð nóg fyrir því“.
Þá er sagt að Þuríði hafi orðið
á munni: „Guð blessi hana móður
mína fyrir að velja mér svo góðan
föðurinn“.
Þuríður giftist síðar Magnúsi
Árnasyni frá Stóradal, bróðursyni
Sesselju konu séra Sigurðar. Þau
eignuðust fimm börn og er margt
stórmenni frá þeim komið. Einn
sonur þeirra hét Björn og varð
hann bóndi á Laxamýri. Var hann
gildur maður og mikill fyrir sér um
allt. Björn átti sex sonu og var
einn þeirra Árni hinn gamli í Haga.
Hann var kvæntur Bergþóru Jóns-
dóttur Sigurðssonar klausturhald-
ara á Reynistað og áttu þau mörg
börn. Árni var ekki stór vexti, en
kraftamaður mikill og heilsuhraust
-ur. Hann varð rúmlega tíræður að
aldri og gekk til sláttar sumarið
áður en hann dó. Hann lézt 1704.
Sonur þeirra Bergþóru var Jón
bóndi í Keldunesi í Kelduhverfi.
Hann varð úti á Reykjaheiði í stór-
hríðarbyl í ágústmánuði 1700, og
var það kölluð gerningahríð. Kona
hans hét Guðrún Gunnarsdóttir og
dóttir þeirra Oddný, „kona mjög
veglynd af hennar stétt að vera,
skynsöm og dyggðum prýdd“, segir
Skúli sonur hennar í æviágripi
sínu. Hún var tvítug þegar faðir
hennar dó. Á m^jpntalinu 1703 má
sjá, að hún hefur verið um aðrar
konur fram til handanna, því að
þar er þess getið að hún kunni
krosssaum og vefnað. Guðrún bjó
í Keldunesi eftir mann sinn, en
árið 1704 giftist Oddný Magnúsi
Einarssyni prests í Garði og fóru
þau þá að búa í Keldunesi. Síðar
varð Magnús aðstoðarprestur föður
síns 1706—1712, en þá fekk hann
Húsavíkur prestakall. Var Magnús
búmaður mikill og röskur að
hverju sem hann gekk. Seinasta
árið sem þau bjuggu í Keldunesi,
eignaðist Oddný dreng og þótti það
tíðindum sæta að örn settist á bað-
stofumænirinn um leið og barnið
fæddist. Þótti það forboði þess, að
þetta mundi verða mikilmenni, og
svo varð, því að drengur þessi var
Skúli landfógeti, „faðir Reykja-
víkur“.
ÁRNI BJÖRNSSON, mágur séra
Einars, bjó nú á Grásíðu, sem
fyrr segir. Hann var talinn hinn
vandaðasti maður til orða og verka-
og naut almennra vinsælda í sveit-
inni. í manntalinu 1703 er hann
talinn 42 ára að aldri. Kona hans,
Sesselja Halldórsdóttir er þá talin
37 ára og heil heilsu. En á þessu
ári, eða hinu næsta varð hún sinn-
isveik og voru svo mikil brögð að
því að hún mátti aldrei vera eftir-
litslaus, ef Árni var ekki nálægur.
Var sem hún mætti aldrei af hon-
um sjá, og rauk jafnvel út í stór-
hríðar að leita hans, ef hann var
ekki inni við. Varð hann því að
láta hana fylgja sér til allra úti-
verka, hvernig sem á stóð. Fekk
þetta svo mjög á hann, að hann var
lítt mönnum sinnandi. Þau áttu
fjögur börn: Jón 11 ára, Guðrúnu
5 ára, Arngrím 2 ára og Gísla 1 árs.
Hjá þeim var þá vinnukona, Krist-
ín Halldórsdóttir, systir húsfreyu,
talin 34 ára og „vanheil“. Hún var
talin ærleg og meinlaus, en fávís
allt frá barnæsku og varla haft
verksvit. Þarna í heimilinu er
einnig talinn 6 ára drengur, Kol-
beinn Jónasson og 66 ára gömul
ölmusukona sem Sigríður Björns-
dóttir hét. Enn eru þarna hús-
mennskuhjón, Jón Ólafsson 46 ára
og Ástný Bergsdóttir 43 ára.
Nú skeður það, að Kristín Hall-
dórsdóttir verður barnshafandi og
ól hún barnið haustið 1704, þremur
vikum fyrir vetur. Kenndi hún það
Ásmundi nokkrum Jónssyni og
gekkst hann við faðerninu. Fengu
þau síðan aflausn hjá séra Einari í
Garði hinn 16. nóvember. Var svo
kyrrt um hríð.*
En nokkru eftir nýár hafði Ás-
mundur verið staddur í Syðri
Tungu á Tjörnesi, og þá látið sér
þau orð um munn fara, að hann
ætti ekkert í barninu. Barst svo
saga þessi um Tjörnes og norður í
Hverfi og kom til eyrna hreppstjór-
ans. Má og vera að eitthvað hafi
* í Þjóðsögum Jóns Árnasonar er
getið um Ásmund vinnumann á Grá-
síðu, um þessar mundir. Sagt var að
hann faeri með kukl og að einu sinni
hefði IUuga-Skotta farið í rúm til hans.