Lesbók Morgunblaðsins - 17.04.1955, Qupperneq 8
212
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
ÞETTA GERÐIST I MARZMÁNUÐI
AKVEÐIÐ var að forsetahjónin
fari í opinbera heimsókn til
Noregs hinn 25. mai næstkomandi
(12.)
Mörg verklýðsfélög í Reykjavik
og Hafnarfirði höfðu sagt upp samn-
ingum frá 1. marz, en ákveðið var
að verkfall skyldi ekki hafið þeg-
ar, enda þótt nýir samningar væri
ekki komnir á þá. Viðræður voru
þegar hafnar, en ekki gekk saman,
enda bar mikið á milli í öndverðum
mánuðinum skrifaði rikisstjórnin
brcf til beggja aðilja, Vinnuveit-
cndasambands íslands og Samnings-
nefndar verklýðsfélaganna, og lagði
til að skipuð yrði sérstök nefnd
af fulltrúum beggja og oddamanni
frá Hæstarétti, til að framkvæma
hlutlausa rannsókn á möguleikum
á kauphækkunum og hvort þær
mundu leiða til kjarabóta fyrir
verkalýðinn. — Vinnuveitendasam-
bandið tjáði sig fúst til þessa og
tilnefndi menn af sinni hálfu, en
Verklýðsfélögin neituðu. Hinn 10.
marz tilkynntu svo 13 verklýðsfélög
i Kcykjavík og Hafnarfirði, er hafa
samtals um 7300 félaga, að þau
mundu hefja verkfall hinn 18., ef
samningar væri þá ekki komnir á.
En er sýnt var að svo mundi ekki
verða, skipaði rikisstjórnin sátta-
nefnd i vinnudeilunni, og eru i
henni: Torfi Hjartarson sáttasemjari
ríkisins, Brynjólfur Bjarnason
alþm., Emil Jónsson vitamálastjóri,
Gunnlaugur E. Briem skrifstofu-
stjóri og Jónatan Hallvarðsson
hæstaréttardómari. Ncl'ndin tók til
starfa hinn 15. og átti fundi með
deiluaðiljum. — Hinn 18. skall verk-
fallið á. Stöðvaðist þá samstundis
sala á benzini og olium og vélavið-
gerðir, og öll hafnarvinna. Sú til-
hliðrunarsemi var þó sýnd, að frest-
að var verkíalli við mjóikurstöðina,
svo að næg mjólk fékkst til mán-
aðarloka. En skortur á öðrum vör-
um gerði þegar vart við sig. Kaffi
var uppgengið þegar fyrsta daginn
og kjöt fékkst ekki nema endrum
og eins. Allar flugsamgöngur stöðv-
uðust þegar í stað og Strætisvagnar
Reykjavikur urðu að fækka ferðum
sinum um helming, og vögnum
fækkaði stöðugt vegna þess að ekki
fékkst gert við bilanir sem á þeim
urðu. Póstur, sem skip koinu með,
fékkst ekki fluttur í land, og skip
stöðvuðust. Undir mánaðarlok gerði
Hafnarfjarðarbær og nokkur fyrir-
tæki þar sérsamning við verkfalls-
menn, en bæarstjórn Reykjavíkur
vildi ekki fara að dæmi þeirra. —
Fimm verklýðsfélög á Suðurnesjum
höfðu boðað samúðarverkfall um
mánaðamót, en hurfu frá því á sein-
ustu stundu. Stóð svo verkfallið enn
við mánaðamót.
VEÐRÁTTA
mátti kallast ágæt í þessum mán-
uði, einkum vestanlands. Frost voru
lítil, en veður stillt og úrkomulítil. Þó
gerði nokkurra daga afspyrnurok í
Vestmanneyum seinni hluta mánaðar-
ins. Snjólaust var í byggð, en nokkur'
snjór á heiðum. Var þar gott færi fyr-
ir snjóbíla, enda var það notað til
þess að flytja mörg hundruð smálesta
af girðingarefni upp á Arnarvatns-
heiði og allt svæðið milli Borgarfjarð-
arhéraðs og Hrútafjarðar. Þar á að
gera nýa girðingu í sumar vegna mæði-
veikinnar, sem kom í ljós í haust. —•
Til tíðinda var það og talið, að 12 menn
af Fljótsdalshéraði fóru skemmtiferð
á bíl upp á Vatnajökul. Hafísspöng kom
að Vestfjörðum um miðjan mánuð og
teppti siglingar í bili.
ÚTGERÐIN
Gæftir voru yfirleitt góðar og mok-
afli í flestum veiðistöðvum, svo að
annað eins hefir ekki verið lengi. Er
nú kominn miklu meiri fiskur á land
l
*
Sáttanefndin
i vinnudeilunni
á fundi.