Lesbók Morgunblaðsins - 17.04.1955, Side 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSíNS
213
Óvenju mikill afli
barst á land í ölluni
veiðistöðvum í
þessum mánuði.
í verstöðvum við Faxaflóa en undan-
farin ár. Þrátt fyrir verkföllin gátu
bátar hér syðra haldið uppi róðrum
allan mánuðinn, en á Austfjörðum var
orðinn svo mikill olíuskortur að til
stórvandræða horfði um útgerð og
rekstur frystihúsa, en á seinustu stundu
varð olíufarmi komið þangað. — Tog-
ararnir fóru allir á saltfiskveiðar í
þann mund er verkfallið hófst. Voru
þeir fyrstu að koma inn um mánaða-
mótin og stöðvuðust þá jafnharðan. —
Tilraun var gerð í Vestmanneyum
með nýtt veiðarfæri, þorskanót, og gaf
góða raun, hvort sem svo verður til
frambúðar er fiskigöngur breytast.
SLYSFARIR
Tíu ára drengur í Reykjavík fót-
brotnaði í knattspyrnukeppni (2.)
Erlendri flugvél með 40 farþegum
hlekktist á í lendingu á Keflavíkur-
flugvelli og kviknaði í henni, en
mannbjörg varð (4.)
Telpa varð fyrir bíl í Reykjavík og
handleggsbrotnaði (8.)
Stórri flutningabifreið hvolfdi norð-
ur í Hjaltadal. Voru á henni 28 stúlk-
ur frá kvennaskólanum á Langamýri.
Handleggsbrotnaði ein þeirra, en tvær
hlutu minni meiðsli (15.)
Ölvaður maður stal leigubíl í
Reykjavík, ók suður í hraun, hvolfdi
bílnum og stórskemmdi hann (17.)
Ungur rafvirki, Einar Lúðvíksson
frá Reykjavík, var að vinna að raf-
lögn í höggsteypuhúsi í Hornafirði, og
slasaðist þá þannig, að járnfleinn fór
með miklu afli í höfuð hans. Flugvél
sótti manninn til Hornafjarðar, en
læknar Landspítalans treystust ekki
til að hjálpa honum. Var þá fengin
flugvél til að flytja hann til Kaup-
mannahafanr, þar sem heilaskurðlækn-
irinn dr. Busch skar hann upp og náði
járnfleininum úr höfði hans. En Ein-
ar lézt nokkru síðar (19., 22. og 29.)
Nýlegum bíl var ekið með miklum
hraða út af Hraunaveginum. Valt hann
í hrauninu og hvolfdi og meiddist bíl-
stjórinn nokkuð (29.)
Sigurður Ólafsson flugmaður fór á
hinni nýu flugvél sinni fyrsta far-
þegaflug vestur á Hellissand. Snjór
var á brautinni og steyptist flugvélin
í lendingu og brotnaði, en menn sak-
aði ekki (29.)
Áttæring með 11 mönnum hvolfdi
í lendingu og brimi í Þykkvabæ.
Björguðust menn allir og þótti það
ganga kraftaverki næst (29.)
Piltur á hjóli varð fyrir bil i Njarð-
vík suður og meiddist mikið (30.)
Helgi Stefánsson frá Hallgilsstöðum
í Fnjóskadal, ungur maður, ók drátt-
arvél út af götu á Akureyri, varð und-
ir henni og beið bana (31.)
Togarinn Jón Baldvinsson, eign
Reykjavíkurbæar, strandaði aðfaranótt
31. fremst á Reykjanesi. Var með mik-
inn saltfiskafla og nokkuð af fiski-
mjöli. Menn björguðust allir með að-
stoð björgunarsveitarinnar í Grinda-
vík, en skipinu mun ekki unnt að
bjarga. Þetta var einn af nýustu og
beztu togurum landsins.
t
ÍÞRÓTTIR
Friðrik Ólafsson tefldi fjölskák við
23 menn úr Taflfélagi Hafnarfjarðar,
sigraði 21 og gerði jafntefli við tvo
(1.)
Á sundmóti í Reykjavík setti Helga
Haraldsdóttir nýtt met í 100 m. skrið-
sundi kvenna, Helgi Sigurðsson setti
þrjú met í drengjasundi, 50 m., 100
m. og 50 m. aftur (bringusund) (3.)
Morgunblaðið og Stockholms Tidn-
ingen efna til skákkeppni milli
Reykjavíkur og Stockholms (6.)
Þorsteinn Löve setti nýtt íslandsmct
í 100 m bringusundi (9.)
Knattspyrnufélagið Valur varð ís-
landsmeistari í handknattleik karla
(15.)