Lesbók Morgunblaðsins - 17.04.1955, Side 16
220
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
BRIDGE
DRÁTTARHUNDUR. — Allir kannast við hundinn, sem lenti í flugslysinu á
Vatnajökli og bjargaðist þaðan nauðulega. En það er nú af honum að segja, sem
fæstir munu vita, að hann jók kyn sitt hér á landi. Komst hann i kynni við tík
af Scháfer-kyni, sem Jón Guðmundsson á Syðri Reykjum í Mosfellssveit átti,
og er hundurinn hér á myndinni afkvæmi þeirra. Þessi hundur á heima í
Hafnarfirði og er eigandi hans Skú'i Hansen rennismiður. — Skúli vinnur í
verksmiðjunni Kletti, en á heima að Skálabergi, en bað er í Setbergslandi og
er nokkuð lanfft á milli og fer Skúli það jafnan á hjóli. En til aðdrátta hefur
hann smíðað dálítinn vaen eða kerru, sem hann hefur vanið hundinn á að
draga. Og svo verða þeir samferða, Skiili á hjólinu og hundurinn fyrir kerr-
unni. Hér má sjá mynd af þeim, en dreneurinn, sem er í kerrunni, er sonur
Skúla, og þykir honum gaman að slikum ökuferðum. (Ljósm. Gunnar Rúnar).
AÁ952
V Á K 4
♦ Á K 9 6 4 2
—
AKG64
¥ 3
♦ G 8 7
AÁKG83
A 10
¥ G 10 9 5
♦ 10 5
* 9 7 6 5 4 2
ETTA spil var í keppni og á báðum
borðum voru sögð 4 hiörtu. Á öðru
borðinu var sögnin tvöfölduð. En á
báðum borðum var spilið unnið. V sló
út LÁ og hann var drepinn með lág-
trompi í borði. S sér nú, að eina ráðið
til þess að vinna er, að hann fá 7 slagi
í trompi og hann verður því að geta
trompað sitt á hvað. Hann slær út SÁ
og síðan lágspaða, sem hann trompar
og tekur því næst tvo slagi á TÁ og
TK. Þá kemur spaði og er trompaður
á hendi. Síðan kemur lauf og er drepið
með HK, spaða slegið út og trompað í
borði. Enn kemur lauf og er drepið með
HÁ. Og svo er slegið út tigli. Nú er
sama hvað A gerir, bví að S hlýtur að
fá slag á HG. — Við þetta spil er það
að athuga, að ef V hefði slegið út
trompi upphaflega, þá var það tapað.
^^>®®®G^J>
Fjaðrafok
NÁM HINNA UNGU
Kennarar vilja víst allir leys'a hlut-
verk sitt sem allra bezt af hendi. En
að hafa göfgandi áhrif á sálarlíf hinna
ungu, virðast beir annaðhvort telja
fyrir utan verkahring sinn, eða þeir
hafa ekki lag á því. Sú skoðun er
komin inn hjá íslenzkum kennurum,
að þeir leysi ætlunarverk sitt af hendi
með því að kenna nemendum það,
sem heimtað er af þeim til prófs. En
ætlunarverkið er miklu víðtækara.
Það er í því fólgið, að kenna mönnurn
vel undir hið mikla próf lífsins, —
hjálpa ungum mönnum til að verða
menn í orðsins bezta skilningi, gf>ra
þá að góðum og göfugum mönnum
er séu alveg sjálfsagðir til að ganga
út í baráttuna gegn hinu illa og öfuga
í mannlífinu í hvaða stöðu, sem þeir
kunna að standa í lífinu. — Þannig
ritaði séra Friðrik J. Bergmann fyrir
hálfri öld, en á þetta ekki við enn
í dag?
VEGURINN Á
HVILFTARSTRÖND
Einhverju sinni þegar Ellefsen var
að byrja að reisa hvalstöð sína (í Ön-
undarfirði), átti séra Janus Jónsson
í Holti ferð út Hvilftarströnd, út á
Flateyri. Hann reið svo sem leið lá,
en er hann kom þangað, sem Ellefsen
hugðist reisa stöðina, þá var allskon-
ar efniviður í götunni og teppti hana.
Séra Janus nam staðar og þóttist ekk-
ert vita. Spurði hann menn, er voru
þarna við vinnu, hverju það sætti að
hreppsvegurinn væri nú lokaður, og
lézt enga möguleika hafa til þess að
halda áfram ferðinni. Varð af þessu
nokkurt þóf, sem ekki fór fram hjá
Ellefsen, er eigi var fjarri. En er
hann frétti hver maðurinn var, setti
hann þegar menn til þess að ryðja
leiðina, svo að prófastur kæmist leiðar
sinnar. Að vísu komst hann ekki hjá
því að reisa hvalstöð sína þarna í
fjörunni, en litlu síðar lét hann leggja
upphleyptan veg uppi á bökkunum í
stað hins aflagða. (Óskar Einarsson
læknir).
FRÉTTIR
Bæarlífið í Reykjavík var ekki jafn
viðburðaríkt fyrir aldamót og það er
nú orðið. En þá var það talið til stór-
frétta, sem enginn gefur gaum nú. Um
það segir Knud Zimsen þetta dæmi í
endurminningum sínum: Þegar hann
var drengur í Hafnarfirði, var hann
eitt sinn sendur til Reykjavíkur. Þar
hitti hann ýmsa kunningja sína, sem
voru á líku reki. „Þeir höfðu frá ýmsu
að segja. Skip frá útlöndum hafði kom-
ið í gær, og með því voru ýmsir far-
þegar, sem þeir töldu upp, en ég þekkti
ekki haus né sporð á. Svo hafði gam-
all bær verið rifinn í Vesturbænum,
en upp í Þingholtum var verið að reisa
stórt timburhús, og þeir sögðu að ég
þyrfti endilega að sjá það“.
AD873
¥ D 8 7 6 2
♦ D 3
A D 10