Lesbók Morgunblaðsins - 22.07.1962, Síða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 22.07.1962, Síða 16
HEIMSV •^ÍÐASTA öld Inkanna var mesta blórnaskeið þeirra. Þegar Pizarro lenti með spænska innrásarherinn árið 1533, ríktu Inkarnir yfir víðáttumildu heims- veldi, sem náði allt frá Maule- fljótinu í Chile til Quito í Ecua- dor. Það var eina raunverulega heiinsveldið í Ameríku fyrir daga Evrópumanna. Sögu þessa landsvæðis má rekja aftur til 2500 fyrir Krist, þegar fyrstu íbúarnir, sem kunn- ugt er um, tóku sér bólfestu með- fram sjávarsíðunni og lifðu á fiski og sæljónum. En saga Inka-veldisins hefst með Inkanum Manco, sem lagði út í óvissuna vopnaður gullnum teini eða fleyg, í þeirri bjarg- föstu trú að þar sem fleygurinn sykki í jörð hefði sólguðinn ætl- að honum að setjast að. Fleyg- urinn sökk í jörð í Cuzco („nafla jarðarinnar“), og frá Cuzco stýrðu eftirmenn Mancos her- ferðum sínum og landvinningum. Upp frá þessu var Inka-heims- veldið fjölskyldufyrirtæki, sem varð frægt fyrir stórkostlegt vegakerfi, frábæra leirkera- smíði, marghyrndar og veiga- miklar steinbyggingar og fjöl- kvæni aðalsins eða hástéttanna. Margir af vegum Inkanna eru enn í notkun. Inkamir gátu hins vegar ekki reiknað eða talið með öðru móti en því að binda hnúta á litaða strengi. Venjuleg borg í ríki Inkanna, þegar þaö stóð með mestum blóma, áður en Spánverjar komu árið 1533. Teikningin, sem byggð er á upplýsingum frá British Museum, er af borginni Macchu Pichu í Peru. Borgarveggir voru óalgengir. að heimsveldið féll í hendur innrásarhernum. í ríkinu voru tvenns konar lög, önnur fyrir aðalinn, hin fyrir almenning. ! Það var ekki fyrr en meðlimir fjölskyldunnar lentu í innbyrðis deilum og ilhndum út af erfðum, Þetta eru rústirnar í Macchu Pichu, eins og þær standa mörgum öld- um eftir hrun heimsveldisins. Gislar Bandarískur auglýsingameistari, Stephen James að nafni, 37 ára gam- all, hefur fundið upp aðferð sem hann telur að tryggja muni heimsfriðinn. Hún nefnist „gisla-aðferðin“ og er ekki óþekkt úr íslandssögunni í sam- bandi við kristnitökuna. Aðferðin er í því fólgin, að „fjand- samleg“ ríki skiptist á gislum, og muni það koma í veg fyrir styrjöld — og kveðst hann þegar hafa fengið mörg hundruð tilboð frá Bandaríkja- mönnum, sem tjá sig fúsa til að fara sem gislar til Sovétríkjanna eða hvert í heim sem verkast vill. Hann hefur ennfremur átt því láni að fagna, að eitt riki að minnsta kosti hefur tekið hugmynd hans alvarlega. Stjórnin í Ghana hefur boðizt til að leggja hugmyndina fyrir afvopnunar- ráðstefnuna, sem innan tíðar verður haldin í Accra. Er þetta abferbin? í París er verið að gera kvikmynd, sem heitir „Hvernig menn verða happasælir í ástum“. Kvikmyndin hefst á því, að kven- hetjan, I.ise Delamare, réttir hetjunni, Jean Poiret, fjórtán kinnhesta. Skyldi það annars vera aðferðin? PRCNTMYNDAGERDIN MYNDAMÓT H.F. MORGUNBLAÐSHÚSINU - SÍMI 17152

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.