Lesbók Morgunblaðsins - 10.02.1963, Blaðsíða 10
OP
S.MAVEDTALIÐ
F/esf/r erci íasfagestir
— 18976.
— Gufubaðstofan
29!
Kvisthaga
©57?
— Er höfuðpaurinn við?
— Augnabli'k og síðan svarar
glaðleg rödd:
— Jónas Halldórsson.
— Hvernig gengur nuddið?
— f>að gengur bara vel.
— Hefur þjónusta Gufubað-
stofunnar orðið vinsæl?
— Já ég held ég megi full-
yrða það. Á morgun, 11. febrúar
eru 4 ár síðan við opnuðum hér.
— Og hvað eru gestirnir
orðnir margir?
— f>að veit ég ekki. Hingað
hafa komið tugir karla og
kvenna daglega síðan. Við höf-
um opið alla daga árið um
kring, nema á sunnudögum í
júní, júlí og ágúst. í viku hverri
eru sérstakir kvennaíímar,
stund á hverjum degi frá mánu
degi til föstudags.
— Og er kvenfólk mikið
fyrir gufubað?
— Já kvennatímarnir eru
allvel sóttir.
— Kvenfólkið er kannski enn
þá meira fyrir nudd?
— Margar vilja fá það nudd,
sem við veitum. Annars er hér
um margt að velja. Gufubaðið
er alltaf opið og þarf ekki að
panta það sérstaklega. En vilji
menn Ijósböð eða nudd er
vissara að biðja um það fyrir-
fram, sérstaklega á annadögum
um helgar til að komast hjá
FtSKRÉTTUMNN
OKKUR hefur borizt bréf
frá frú Wanda Þórðarson,
Brekkugerði 12, og sendir
hún okkur þrjár góðar fisk-
uppskriftir, sem hér fara á
eftir. Hún merkir þær 1, 2
og 3 og við birtum þær
einnig í þeirri röð:
Fiskflök St. Germain
Fiskflök eru skorin í litla
bita og krydduð með salti
og pipar, pensluð með
bræddu smjöri og síðan velt
upp úr raspi og steikt við
vægan hita. Með er höfð
bearnaise-sósa:
3 matsk. vatn, 3 matsk.
vínedik, Vi laukur er soð-
inn í nokkrar mínútur, þá
er laukurinn tekinn úr og 4
eggjarauður hrærðar út í
yfir gufu, bætið smám sam-
an út í 4 matsk. af bræddu
smjöri. Hrærið í þar til sós-
an er orðin þykk.
„Fiskbögglar“
' 250 gr. hakkaður fiskur, 2
hveitibrauðssneiðar lagðar í
bleyti og síðan allt vatn
kreist úr þeim, kryddaðar
með salti og pipar og múz-
kat. Þá er þessu blandað
saman við smátt saxaðan
lauk og svolítinn sítrónu-
safa og hrært vel. Þá eru
búnir til „bögglar", farsið
lagt í hálfsoðin kálblöð og
hnýtt vel utan um, rúllurn-
ar lagðar í vel smurt, eld-
fast mót, þunnri tómatsósu
hellt yfir og smátt skornu
beikoni raðað yfir. Þetta er
loks bakað í ca 30 mín. í vel
heitum ofni, soðnar kartöfl-
ur bornar með.
Fiskbúðingur
500 gr fiskflök og 1 stór
laukur hakkaður í vél, 1
peli heitri mjólk hellt yfir
3 hveitibrauðssneiðar, brauð
ið látið í pott og látið blotna
vel, hrært í þar til það losn-
ar frá pottinum, þá er hrært
100 gr smjör út í, þá er fisk-
urinn og laukurinn látinn
út í, kryddað með salti og
smá ögn af engiferdufti, rif-
inn ostur eftir vild. 2 eggja-
rauður hrærðar út í, og hvít-
urnar þeyttar sér og látnar
út í siðast. Þetta látið í form
og soðið í vatnsbaði í ca.
lVz klst.
Um leið og við þökkum
frú Þórðarson fyrir upp-
skriftirnar, viljum við
hvetja húsmæður til þess að
senda okkur línu — og upp-
skrift að góðum fiskréttum
sem þær hafa á takteinum.
Sköpum fjölbreytni í fisk-
réttum og borðum fisk á
hverjum degi, það er bæði
hollari og ódýrari fæða en
kjöt!
bið. Það eru hér margir fasta-
gestir, sem hafa ákveðna tíma.
— Hafa margir verið fasta-
gestir allt frá byrjun?
— Daginn, sem opnun stof-
unnar var auglýst fyrir 4 árum,
hringdu margir. Sá fyrsti var
prófessor Jón Sigtryggsson
læknir. Hann hefur síðan kom-
ið hér vikulega á sama tíma
ár eftir ár.
Segja má, að meirihluti gest-
anna sé fastagestir. Eftir að
fólk hefur kynnzt finnska gufu-
baðinu og notið hvíldarinnar
eftir það umvafið teppum í
hvíldarstofu, fengið sér Ijósböð
og nudd, finnst því sem heim-
sókn í slíka baðstofu sé nauðsyn
legur þáttur í lífi þess.
— Léttast menn mikið við
gufuböð?
— Allir eitthvað. Metið hér
er 2.7 kg í eitt skipti. Það var
Ásbjörn á Álafossi sem fagnaði
þeim léttleika.
Hitinn í baðinu orsakar öra
útgufun. Þar er engin gufa en
hitastigið um 100 gráður. Menn
fara 2—3 í baðstofuna en fá' sér
heit og köld böð þess á milli.
— Og halda menn áfram að
léttast í það óendanlega?
— Þunginn kemur fljótt aftur
að mestu leyti. En það má ætla
að varanlegur sé fimmti hluti
þess þunga sem menn missa,
þannig að í „meti“ sínu hafi Ás-
björn raunverulega létzt um 540
grömm. En þetta er líka algert
met hér og sá er næst kemur
stendur Ásbirni langt að baki.
— Og svo er hægt að nudda
af mönnum pundin lika, er það
ekki?
— Jú, margir fá sér nudd til
að losna við óþarfa keppi, aðrir
aðeins til hressingar og enn aðr-
ir samkvæmt læknisráði á ein-
hverja líkamshluta.
— Og þú nuddar bæði konur
og karla?
— Ég hef bæði nuddkonu og
karlmann til aðstoðar. í karla-
tímunum verðum við oft að
vera tveir sakir anna. í sum-
um kvennatímum nudda ég, en
í öðrum nuddkona. Annars
stjórnar kona mín, Rósa Gests-
dóttir, kvennatímunum, að öllu
leyti.
— Og hvort er nú þægilegra
fyrir nuddarann að nudda karl-
manns- eða kvenmannslíkama?
— Það er lítill eða enginn
munur þar á. Aðalatriðið íinnst
mér vera að ég finn að Gufu-
baðsstofan hefur orðið fjölda
manns að liði í veikindum og
stórum hópi til mikillar hress-
ingar. Það er líka gott að finna
að fyrirkomulag allt hefur
reynzt mjög vel, enda hafði ég
kappkostað að kynna mér slíka
starfsemi erlendis. Það eina er
að piássið mætti nú, að 4 árum
liðnum, vera svolítið stærra.
T. d. var hugmyndin að setja
upp „róðrarvélar" og önnur
áreynslutæki en úr því hefur
ekki getað orðið síðan bæta
varð við aðstoðarnuddfólki,
sagði Jónas að lokum.
Láttu þetta ekki blekkja þig. Ef þau háldust ekki í hendur mundu þau drepahvort annað.
10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
5. tölublað 1963