Lesbók Morgunblaðsins - 10.05.1964, Blaðsíða 2
SVIP-
MVND
WILLIAM SCRANTON
Elrm þeirra manna sem helzt
koma til greina við vænt-
anlegt val forsetaefnis Repúblikana
í ár, var til skamms tíma tiltölulega
lítið þekktur í Bandaríkjunum.
Þessi maður er William Warren
Scranton fylkisstjóri í Pennsylvan-
íu. Hann hefur verið mjög tregur
til að hafa sig í frammi og hefur
þrásinnis lýst því yfir, að hann ætli
ekki að gefa kost á sér við kjör for-
setaefnis Repúblikana. Hins vegar
hafa vinir hans, aðdáendur og ýmsir
áhrifamiklir flokksbræður trú á
honum sem sigurstranglegum keppi
nauti Lyndons B. Johnsons. Hann
nýtur t.d. stijðnings Eisenhowers
fyrrverandi forseta, sem er náinn
vinur hans og kjósandi í Pennsylv-
aníu.
Þó beinir kostir Scrantons sem for-
setaefnis liggi kannski ekki ljóst fyrir,
þá þykir hann hafa færri ókosti en
þeir menn sem helzt hafa hug á að
keppa við Johnson um forsetaembættið.
Hann er ekki öfgafullur hægrima&ur
eins og Barry Goldwater. Hann er
hvorki tvísigraður frambjóðandi eins og
Richard Nixon né tvígiftur eins og Nel-
son Rockefeller. Hann hefur ekki orðið
að láta í minni pokann fyrir þinginu
í fylki sínu eins og George Ronmey
fylkisstjóri í Michigan. Og loks er hann
nærtækari en Henry Cabot Lodge, sem
nú er sendiherra Bandaríkjanna í Suð-
ur-Víetnam.
^l illiam Scranton er enn tiltölu-
lega ungur maður, 46 ára gamall, hár
og myndarlegur, hægur í fasi, en fast-
ur fyrir og fylginn sér. Hann er dug-
mikill og athafnasamur, og á að baki
sér stuttan en glæsilegan stjómmála-
feril. Hann er alþýðlegur í viðmóti,
eðlilegur og þægilegur, og ber utan á
sér öll auðkenni þess, að hann kemur
af auðugu og veraldarvönu fólki.
Fjórar kynslóðir forfeðra hans hafa
safnað miklum auði með ýmiss konar
iðnaðarrekstri, einkum kola- og járn-
iðnaði. Borgin þar sem hann ólst upp
ber líka nafn fjölskyldunnar. ,
En sá kostur Scrantons, sem þykir
einna álitlegastur, er hinn pólitíski
ferill hans, 'því hann hefur aldrei
beðið ósigur. Þegar hann bauð sig
fyrst fram til þings árið 1960 í heima-
héraði sínu, vann hann sæti í öld-
ungadeildinni af Demókrötum, sem
höfðu lengi haldið því — og þótti sá
sigur einkum merkilegur fyrir þá sök,
að lýðhylli Johns F. Kennedys forseta-
efnis Demókrata var þá að ná hámarki.
Tveimur árum síðar, eða 1962, bauð
hann sig fram til fylkisstjóra í Penn-
sylvaníu og vann embættið úr höndum
Demókrata, sem höfðu haldið því í átta
ár, með 486.000 atkvæða meirihluta,
sem þótti frægur sigur.
eir sem gerst þekkja segja, að
erfitt sé að gefa rétta mynd af mann-
inum William Scranton. Níu daga af
hverjum tíu fellur hann inn í mynd-
ina, sem venjulega er dregin af hon-
um — háttvís, hlédrægur og laus við
öll látalæti. En tíunda daginn sleppir
hann fram af sér taumnum og á það til
að láta eins og fábjáni til að þóknast
nærstöddum ljósmyndunxm. í stjórn-
málum er hann ýmist djarfur eða var-
kár, þrjózkur eða sáttfús. Hann hefur
einstakt lag á að rugla men,n í ríminu.
Ameríkumáður sem lengi hefur
fylgzt náið með stjórnmálum í Penn-
sylvaniu lét eftirfarandi orð falla ný-
lega: „Mér er Bill Scranton alger ráð-
gáta. Ég get alls ekki gert það upp
við mig, hvort han,n hefur verið góður
fylkisstjóri. Ég get ekki heldur gert það
upp við mig, hvort hann er hæfur í
forsetaembættið. Og mér er ómögu-
legt að spá neinu um það, hvaða af-
stöðu hann muni endanlega taka til
forsetaframboðsins. Það er útilokað að
segja nokkuð almennt um manninn.“
Þrátt fyrir öll sín ólíkindalæti, er
enginn vafi á því, að Scranton hefur
auga á forsetastólnum. Þegar hann var
spurður á dögunum, hvort hann teldi
sig hæfan til að gegna forsetaembætt-
inu svaraði hann á sinn dæmigerða
hátt: „Þetta er lævísleg spurning. Er
nokkur fullkomlega til þess hæfur að
gegna öllum þáttum þessa embættis?
Ég held ekki. Það er ákaflega marg-
þætt, élnstaklega torvelt, en veiga-
mesta starf í heiminum. Hvort ég telji
mig geta gegnt starfinu, ef mér væri
falið það? Já, það geri ég.“
^l illiam Warren Scranton fædd-
ist á íburðarmiklu óðalssetri skammt
frá borginni Scranton í Pennsylvaníu,
þar sem forfeður hans hafa búið síð-
ustu fjórar kynslóðir. Áður en þeir
fluttust til Pennsylvaníu, hafði ættin
búið um 200 ára skeið í Nýja Eng-
landi, þannig að William Scranton er
af gamalli bandarískri ætt. Langafi
hans, Joseph Scranton, gerðist um-
svifamikill iðnrekandi í Pennsylvaníu,
og ber borgin Scranton nafn hans. Son-
ur hans, William Walker Scranton, var
þó ennþá umsvifameiri, byggði t. d.
vatnsgeyma borgarinnar og vatnsleiðslu
kerfi, þannig að fjölskyldan
græddi jafnvel enn meira á vatni en
nokkurn tíma járni og kolum. Síðar,
þegar verkföll tóku að brjótast út í
kolanámunum, tók William Walker
Scranton málin í eigin hendur, stjórn-
aði lögreglusveit námufélagsins og
skaut sjálfur einn námumanna til
bana. Hann var dreginn fyrir dóm, en
slíkur var gustur gamla mannsins, að
hann var sýknaður og dómarinn hrósaði
honum jafnvel fyrir hispurslausa
skyldurækni við þjóðfélagið!
Sonur þessa heljarmennis, Worthing
ton Scranton, var ákaflega Ijúflyndur
og óframfærinn lögfræðingur, mennt-
aður í Harvard. En honum hélzt vel
á fjármunum ættarinnar. Þegar hann
lézt 78 ára gamall fyrir níu árum,
hafði hann losnað við stáliðnað, kola-
iðnað og járnbrautarfélög ættarinnar á
hagstæðu verði og selt vatnskerfið í
Scranton fyrir 26 milljónir dollara.
Worthington var þekktur fyrir mann-
úðarstarfsemi sína, en þekktastur
var hann samt fyrir konu sína,
Margery, sem jafnan gekk undir nafn-
inu „Hertogafrúin". Henni er þannig
lýst af einum Scranton-búa: „Hún var
tilsýndar eins og Elízabet drottning á
eftir að verða, þegar hún hefur fengið
nokkra áratugi í viðbót til að venjast
'stöðu sinni.“
„Hertogafrúin“ var í alríkis-fulltrúa-
ráði Repúblikana í 23 ár og kom mjög
við sögu í opinberum málum. Jafnvel
á kreppuárunum var hún tíður gestur
í námunum og heimtaði að námumenn
formæltu „þorparanum Roosevelt“.
Thomas E. Dewey, sem var tvívegis
forsetaefni Repúblikana, sagði vum
„Hertogafrúna“, að hún værj eina
manneskjan í heiminum, sem farið gæti
spariklædd niður í námur og sámt
tryggt sér atkvæði námumanna.
^SI illiam Warren Scranton ólst
upp undir handarjaðri þessarar stór-
brotnu konu, enda er sagt að hann hafi
drukkið í sig stjórnmálaáhugann með
móðurmjólkinni. Þegar á bernskuárum
var hann farinn að svara í símann
fyrir móður siína og taka við mikil-
vægum pólitískum skilaboðum. Hann
ólst upp í áhyggjulausu umhverfi auð-
mannanna í Scranton, en hann gerði
sér líka dælt við þjónustufólkið og
eignaðist marga vini meðal þess. Hann
var mjög smávaxinn sem drengur,
þrátt fyrir mikla mjólkurdrykkju, lík-
amsæfingar og sumardvalir úti i
sveit. Heima fyrir umgekkst hann
mest kvenkynið þ.e.a.s. móður
sína, þrjár eldri systur sínar, fóstru
sína og frænku hennar, og hina smá-
vöxnu en harðgeru ömmu sína. Meðal
húsdýranna voru tvær tíkur og meri.
Föður hans var ekki um „allt þetta
kvennastand" gefið og sendi drenginn
12 ára gamlan burt til náms.
Á skólaárunum tók William Scranton
virkan þátt í félagslífi og gaf sig að
sjálfsögðu einkum að stjórnmálum og
kappræðum um þau. Einnig fékkst
hann eitthvað við að leika í skóla-
leikritum. Þegar hann kom til Yale-
háskólans, þar sem hann lagði stund
á lögfræði, varð hann ásamt bekkjar-
bróður sínum, McGeorge Bundy, starfs
maður „Stjórnmálaklúbbsins", og jafn-
framt störfuðu þeir sem leiðarahöfund-
ar við blaðið „Daily News“ og voru
auðvitað alltaf á öndverðum meiði.
Á skólaárum sínum var hann m.a. i
vinfengi við systur Kennedys, Kathleen,
sem nú er látin, en hann gekk að eiga
laglega dökkhærða stúlku úr heima-
borg sinni, Mary Chamberlin, þremur
dögum eftir að hann náði flugmanns-
prófi í flughernum árið 1942. Stríðið
olli því, að hann varð að hætta námi
um skeið, en hann lauk prófi í lögfræði
eftir stríð.
■A. ð prófi loknu vann hann ýmis
störf, m.a. hjá útgáfufyrirtæki náms-
bóka, banka, útvarps- og sjónvarps-
stöð. Hann hafði líka afskipti af fjár-
málum ættarinnar og vann m. a. að
Framhald á bls. 4
Utgeíancu: w.t. ArvaKur, ReykJavXlc.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason fr4 Vlaur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýslngar: Arni Garðar Kristlnsson.
Ritstjórn: AðalstræU 6. Sími 22480.
2 LESBÖK MORGUNBLAÐSINS
17. tölublað 1964